Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 22
KÖRFUBOLTI Benedikt Rúnar Guð-
mundsson var í gær kynntur til leiks
sem nýr þjálfari íslenska kvenna-
landsliðsins í körfubolta. Benedikt
Rúnar tekur við stjórnartaumunum
hjá íslenska liðinu af Ívari Ásgríms-
syni sem lét af störfum eftir rúm-
lega fjögurra ára starf eftir að liðið
lauk keppni í undankeppni Evrópu-
mótsins 2019 í nóvember á síðasta
ári.
Íslenska liðið fór í gegnum þá
undankeppni án þess að ná sigri
og ljóst að verðugt verkefni bíður
Benedikts Rúnars ætli hann að færa
liðið skör framar en það hefur verið
undanfarin ár. Benedikt Rúnar
semur um að stýra liðinu næstu
fjögur árin. Ljóst er af lengd samn-
ingsins að honum er ætlað að leiða
liðið til góðra verka og sjá um fram-
tíðaruppbyggingu þess.
„Viðræður um að ég myndi taka
þetta starf að mér hófust fyrir
tæpum tveimur vikum þegar
Hannes [S. Jónsson, formaður KKÍ]
kom að máli við mig og bauð mér
starfið. Með hverjum deginum sem
leið varð ég spenntari fyrir þessu
verkefni og mér leist vel á þessa nýju
áskorun. Það verður gaman að gera
eitthvað sem ég hef ekki gert áður á
löngum þjálfaraferli mínum. Ég hef
gaman af því að ég ögra mér og það
er það sem ég er að gera með því að
taka þetta að mér,“ segir Benedikt
Rúnar um nýja starfið.
„Ég held að það geti verið hollt og
gott að fá að borðinu þjálfara sem
hefur ekki starfað í landsliðsum-
hverfinu áður. Ég tel að ég sé með
ferska sýn á það hvernig hlutirnir
eru gerðir. Með því er ég ekki að
kasta rýrð á störf Ívars sem hefur
staðið sig vel í starfi. Ég mun byggja
liðið áfram á þeim leikmönnum
sem hafa myndað kjarnann í liðinu
undanfarin ár og það gefur augaleið
að Helena [Sverrisdóttir] verður
áfram lykilleikmaðurinn í liðinu.
Ég hef svo kynnt mér fjölmarga
unga og efnilega leikmenn í gegnum
starf mitt sem þjálfari KR og ég er
bara mjög spenntur fyrir fram-
haldinu í íslenskum kvennakörfu-
bolta. Það eru svo leikmenn eins og
Sara Rún Hinriksdóttir og Lovísa
Henningsdóttir sem hafa verið að
gera það gott í bandaríska háskóla-
körfuboltanum sem verður spenn-
andi að fylgjast með. Sara Rún er
að koma heim í vor og ég hlakka til
að sjá hana spila hér heima á næstu
vikum,“ segir hann um sína sýn á
framhaldið hjá liðinu.
„Ég mun svo á næstunni setjast
niður og skipuleggja næstu verkefni
hjá liðinu og fara yfir það með for-
ráðamönnum KKÍ og afreksnefnd
sambandsins hvernig við getum
haft aðstæður og umgjörð hjá lið-
inu eins og best verður á kosið. Mér
sýndist það á meðan ég var utan-
aðkomandi aðili að aðstæður væru
að batna með hverju verkefni og nú
er það okkar að sjá um að sú þróun
haldi áfram. Ég mun á næstu dögum
skoða það hvaða þjálfarar komi til
greina í þjálfarateymi liðsins. Mig
langar mikið að fá konu til þess að
vera í teyminu og aðila sem hefur
annan vinkil en ég og getur komið
með mótvægi við mínar skoðanir,“
segir þessi margreyndi þjálfari um
fyrstu verk sín.
Næsta verkefni liðsins er svo
þátttaka í Smáþjóðaleikunum sem
haldnir verða í Svartfjallalandi
í maí síðar á þessu ári. Þar á eftir
hefur íslenska liðið leik í undan-
keppni Evrópumótsins sem fram
fer í Lettlandi og Serbíu árið 2021. Sú
undankeppni hefst næsta haust en
dregið verður í riðla í sumar. Bene-
dikt Rúnar segist ekki vera farinn að
leiða hugann að því hvernig hann
muni leggja hlutina upp á Smá-
þjóðaleikunum enda aðeins hálfur
sólarhringur frá því að hann ákvað
að taka starfið að sér þegar hann
var tilkynntur á blaðamannafundi
í gær. Það verður spennandi að sjá
fingraför Benedikts Rúnars á liðinu
og hvaða hlutum hann kemur til
með að breyta hjá því á næstu mán-
uðum. hjorvaro@frettabladid.is
Spenntur fyrir þessu verkefni
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mun næstu árin leika undir stjórn hins margreynda og farsæla
þjálfara Benedikts Rúnars Guðmundssonar. Hann er að fara inn á slóðir sem hann hefur ekki fetað áður.
Benedikt Rúnar Guðmundsson skrifar undir samning þess efnis að þjálfa íslenska kvennalandsliðið í körfubolta næstu árin. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ég held að það geti
verið hollt og gott
að fá að borðinu þjálfara
sem hefur ekki starfað í
landsliðsumhverfinu áður.
Ég tel að ég sé með ferska sýn
á það hvernig hlutirnir eru
gerðir og hlakka til.
Benedikt Rúnar Guðmundsson
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Bikarkeppni
Frjálsíþróttasambands Íslands fer
fram í 13. sinn um helgina í Kapla-
krika en keppt er í fullorðinsflokki í
dag og 15 ára og yngri keppa á morg-
un. Alls eru átta lið skráð til leiks í
karlaf lokki og níu lið í kvenna-
f lokki. FH og ÍR senda tvö lið til
leiks í ár en þessi lið hafa titil að
verja um helgina, FH í karlaflokki
og ÍR í kvennaf lokki, og er búist
við harðri keppni þeirra á milli um
bikarinn.
Mótið er viku eftir að Meistara-
mót ÍSÍ fór fram og eru því margir
nýkrýndir Íslandsmeistarar að
keppa fullir sjálfstrausts en Hafdís
Sigurðardóttir og Hlynur Andrés-
son eru fjarverandi vegna þátttöku
sinnar á Evrópumótinu í frjálsum
íþróttum sem fer fram þessa dagana
í Glasgow.
Óðinn Björn Þorsteinsson, sem
keppti fyrir hönd Íslands í kúlu-
varpi á Ólympíuleikunum í London
2012, mun draga fram skóna sam-
kvæmt tilkynningu FRÍ og keppa
um helgina en hann er ríkjandi
meistari og á mótsmetið. – kpt
Bikarkeppni
FRÍ um helgina
Frá Meistaramóti ÍSÍ um síðustu
helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Gylfi og félagar ætla sér að gera Liverpool skráveifu. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Það eru tveir nágranna-
slagir þar sem erkifjendur mætast
í ensku úrvalsdeildinni um helgina
en í hádeginu í dag tekur Tottenham
á móti Arsenal og degi síðar mætast
Everton og Liverpool í baráttunni
um Bítlaborgina.
Á síðustu árum hefur uppskeran
verið rýr hjá Arsenal þegar Skytt-
urnar ferðast til nágranna sinna
því Tottenham hefur unnið fimm
af síðustu sjö leikjum liðanna á
heimavelli í deildinni. Liði Totten-
ham hefur hins vegar fatast f lugið
því eftir að hafa endurheimt Harry
Kane hefur Spurs tapað tveimur
leikjum í röð.
Fyrir vikið er Tottenham að missa
af titilbaráttunni og getur Arsenal
minnkað forskot Spurs í baráttunni
um fjórða sætið niður í eitt stig.
Í Bítlaborginni tekur Everton á
móti Liverpool þar sem Everton-
menn fá tækifæri til að hefna fyrir
sárt tap þegar liðin mættust síðast
og sigurmarkið kom á 96. mínútu.
Það virtist sitja í leikmönnum
Everton sem hafa átt erfitt upp-
dráttar síðustu mánuði en öruggur
sigur á Cardiff í vikunni þar sem
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði tvíveg-
is ætti að hafa fyllt Everton-menn
sjálfstrausti. Leikmenn Liverpool
mæta sömuleiðis fullir sjálfstrausts
eftir að hafa sýnt sitt rétta andlit á
miðvikudaginn í 5-0 sigri á Watford
á heimavelli. .
Það eru níu ár liðin síðan Ever-
ton vann síðast sigur á Liverpool
en fjórum af síðustu fimm leikjum
liðanna í deildinni á Goodison Park
hefur lokið með jafntefli. – kpt
Erkifjendur mætast í London og Liverpool
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Hafdís Sigurðar-
dóttir, sem keppir fyrir hönd UFA,
hefur í dag keppni í langstökki á
Evrópumótinu innanhúss í frjáls-
um íþróttum sem fer fram í Glas-
gow þessa dagana. Hafdís mætir
til leiks aðeins viku eftir að hafa
tryggt sér gullverðlaun á Meistara-
móti Íslands þegar hún stökk 6,18
metra . Besta stökk hennar á þessu
ári er 6,49 metrar sem kom henni
inn á EM.
Hafdís keppir í undanrásunum
að morgni til á laugardegi en þetta
er í fjórða sinn sem Hafdís keppir á
Evrópumótinu.
„Markmiðið á EM
er að vera meðal
á t t a e f s t u
í u n d a n -
keppninni
og komast
me ð þv í í
úrslitin. Raun-
hæft markmið er
að stefna á tíunda
sætið þv í þar na
eru bestu stökkv-
arar Evrópu mættir,“
sagði Hafdís í samtali
við Fréttablaðið fyrr í
vikunni. – kpt
Hafdís keppir á
EM í langstökki
HANDBOLTI Fresta þurfti leik ÍBV og
KA í Olís-deild karla í annað sinn á
tveimur dögum í gær eftir að sam-
gönguörðugleikar urðu til þess að
Akureyringar komust ekki til Vest-
mannaeyja í tæka tíð. Óvíst er hve-
nær leikurinn fer fram en ákvörðun
verður tekin um það eftir helgi.
Leikurinn sem er í 17. umferð
Olís-deildarinnar átti að fara fram á
fimmtudagskvöldið en ákveðið var
um miðjan dag að fresta leiknum.
Var honum því frestað til föstu-
dagskvölds en samgönguörðug-
leikar urðu til þess að ekki varð af
leiknum. – kpt.
Þurftu að fresta
í annað sinn
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
7
8
-1
7
F
8
2
2
7
8
-1
6
B
C
2
2
7
8
-1
5
8
0
2
2
7
8
-1
4
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K