Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 116
Vilja ljá erlendum
konum rödd
Vinkonurnar Chanel Björk Sturludóttir og Elínborg Kolbeins-
dóttir standa þann 7. mars næstkomandi fyrir viðburðinum
Hennar rödd á Kexi Hosteli í tilefni af alþjóðlega kvennadeginum.
Lífið í
vikunni
23.02.19-
02.03.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
V iðburðurinn á Kexi host el i verðu r í formi pallborðsum-ræðna með konum af erlendum upp-runa á Íslandi með
það að leiðarljósi að gefa þessum
konum tækifæri til að deila upp-
lifun sinni af íslensku samfélagi.
„Hugmyndina að viðburðinum
má rekja til móður Chanel, Letetia
B. Jonsson, en hún er bresk kona
af jamaískum uppruna sem giftist
íslenskum manni og f lutti með
honum til landsins með börn-
unum þeirra árið 2004. Á meðan
hún bjó á Íslandi tók hún virkan
þátt í menningarheimi kvenna af
erlendum uppruna. Hún kynntist
mörgum frambærilegum konum
sem höfðu svipaðan bakgrunn
og upplifðu sömu hindranir hvað
varðar aðlögun að menningu og
tungumáli landsins,“ svarar Elín-
borg.
„Sjálfsævisaga Amalíu Líndal,
Ripples from Iceland, vakti meðal
annars áhuga hennar á málefnum
kvenna af erlendum uppruna á
Íslandi. Amalía var bandarísk kona
sem f lutti til Íslands árið 1949 eftir
að hafa gifst íslenskum manni. Í
bókinni skrifar Amalía um upp-
lifun sína af íslensku samfélagi og
þeim erfiðleikum sem hún mætti,
meðal annars varðandi uppeldi
á börnum sínum sem fór fram í
ókunnugu landi þar sem hún fann
fyrir miklum menningarmun og
tungumálaörðugleikum.“
Safnaði sögum kvenna
„Mömmu fannst saga Amalíu
bæði heillandi og kunnugleg þrátt
fyrir að upplifanir þeirra hafi átt
sér stað með löngu millibili. Eftir
áhrifamikinn lestur á bók Amalíu
ákvað hún að byrja á verkefni þar
sem hún tók viðtöl við frambæri-
legar konur af erlendum uppruna
á Íslandi með því markmiði að gefa
út bók til heiðurs þeim og þeirra
framlagi til íslensks samfélags.
Ekki náðist að ljúka við verkefnið
vegna ýmissa ástæðna, en það varð
til þess að kvöld eitt byrjuðum við
vinkonurnar að rifja upp þessa
upplifun hennar af íslensku sam-
félagi og verkefninu sem hún var
frumkvöðull að. Út frá þeim sam-
ræðum varð hugmyndin að Henn-
ar rödd til, þar sem við samein-
uðum fjölskyldubakgrunn minn
og þekkingu Elínborgar á sviði
mannréttinda en hún er útskrifuð
með MA-próf í mannréttindum og
starfsnemi á Mannréttindaskrif-
stofu,“ segir Chanel.
Þær stöllur segjast hafa valið
konur til að taka þátt í umræð-
unum bæði konur sem hafa verið
sýnilegar í samfélaginu en einn-
ig fengu þær ábendingar. Úr varð
fjölbreyttur hópur: Edythe Mang-
indin, ljósmóðir, hjúkrunarfræð-
ingur og ritari Samtaka kvenna af
erlendum uppruna (W.O.M.E.N.
in Iceland), Claudia Ashonie Wil-
son, lögfræðingur hjá Rétti, Zahra
Mesbah, tannlæk nanemi sem
kom til Íslands sem f lóttamaður
frá Afganistan, Sanna Magdal-
ena, oddviti Sósíalistaf lokksins í
borgarstjórn Reykjavíkur, og Anna
Marta Marjankowska, meðstjórn-
andi Ef lingar. „Okkur þykir mikil-
vægt að viðburðurinn sé á faglegu
plani og að sérfræðingur á þessu
sviði leiði umræðurnar áfram og
fengum því Fríðu Rós Valdimars-
dóttur, sérfræðing hjá Jafnréttis-
stofu, til að sjá um fundarstjórn á
viðburðinum.“
Þörf á meiri menningarvitund
„Hópur fólks af erlendum upp-
runa á Íslandi er sívaxandi, meðal
annars vegna fjölskylduaðstæðna,
tækifæra, aukinnar þarfar á vinnu-
af li og aukins f læðis fólks frá
stríðshrjáðum löndum. Með til-
komu þessa hóps er þörf á aukinni
menningarvitund í íslensku sam-
félagi, þar á meðal á sviði tungu-
mála, trúar, siða og venja. Í pall-
borðsumræðunum á Hennar rödd
verður einblínt á upplifun kvenna
á þessum viðfangsefnum,“ segir
Chanel og Elínborg bætir við: „Þar
að auki hallar á sýnileika kvenna af
erlendum uppruna meðal annars í
stjórnmálum og í fjölmiðlum sem
verður til þess að raddir þeirra fá
ekki nægan hljómgrunn. Það þarf
að opna umræðuna um stöðu og
framlag kvenna af erlendum upp-
runa í samfélaginu og viðburður-
inn Hennar rödd er skref í þá átt.“
Þær hvetja alla þá sem hafa
áhuga á umræðunni um stöðu
erlendra kvenna á Íslandi til að
mæta á viðburðinn og ekki síður
ungt fólk og nemendur á sviðum
tengdum málefninu. „Síðast en
ekki síst, hvetjum við konur af
erlendum uppruna á Íslandi til að
mæta og taka þátt í umræðunum,“
segja þær að lokum.
bjork@frettabladid.is
Þær Chanel Björk Sturludóttir og Elínborg Kolbeinsdóttir segja þörf á aukinni
menningarvitund í íslensku samfélagi. MYND/ANTON BRINK
HUGMYNDINA AÐ
VIÐBURÐINUM MÁ
REKJA TIL MÓÐUR CHANEL,
LETETIA B. JONSSON, EN HÚN ER
BRESK KONA AF JAMAÍSKUM
UPPRUNA SEM GIFTIST ÍS-
LENSKUM MANNI OG FLUTTI
MEÐ HONUM TIL LANDSINS MEÐ
BÖRNUNUM ÞEIRRA ÁRIÐ 2004.
LEYFIR GESTUM AÐ HÚÐ-
FLÚRA SIG Á SÝNINGU
Almar Steinn Atlason sem er líklega
hvað þekktastur sem Almar í kass-
anum eftir að hafa dvalið nakinn
í kassa árið 2015 sýnir ekki síður
djörfung í nýjasta verki sínu.
TÓK Á MÓTI EDDU ÓLÉTT
AF FIMMTA BARNI SÍNU
Andrea Eyland Björgvinsdóttir lyfti
á laugardaginn Edduverðlaunum
fyrir mannlífsþátt ársins, Líf kvikn-
ar, en Andrea á von á sínu fimmta
barni; áttunda barni hennar og
kærastans samtals. KASSAGERÐARAFKLIPPUR
MÖRKUÐU UPPHAFIÐ
Grafíski hönnuðurinn og teikn-
arinn Þórir Karl Bragason Celin
segir samstarf við aðra teiknara
mikilvægt en þessa dagana má sjá
afrakstur samstarfs hans við teikn-
arann Sölva Dún á Session Craft Bar.
BLACK EYED PEAS SPILAR
Á SECRET SOLSTICE
Staðfest er að hljómsveitin Black
Eyed Peas mætir á Secret Solstice
í júní með 35 manna fylgdar-
lið. Víkingur Heiðar Arnórsson,
framkvæmdastjóri hjá Secret Sol-
stice, lofar að öllu verði tjaldað til.
Aðeins
95.920 kr.
DENVER
2,5 s.æta
sófi & stóll
2,5 sæta sófi og stóll í
klassískum stíl. Dökkblátt,
ljósbleikt (Dusty Rose), dökkgrænt og koparlitt sléttflauel.
Sófi: 184 x 82 x 82 cm
Fullt verð: 119.900 kr.
Stóll: 84 x 82 x 82 cm
Fullt verð: 69.900 kr.
Aðeins
55.920 kr.
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
FYRIR ÞÍNAR
BESTU STUNDIR
Afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
20%
AFSLÁTTUR
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R68 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
8
-0
9
2
8
2
2
7
8
-0
7
E
C
2
2
7
8
-0
6
B
0
2
2
7
8
-0
5
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K