Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 114
Við þurfum að tala u m Ósk a r. Sa mt ekki nema aðeins fyrir þá krónísku og útbreiddu ranghug-mynd að Óskars-
verðlaunin séu einhver yfirnáttúr-
legur mælikvarði á gæði kvikmynda
og verka alls þess óteljandi lista- og
fagfólks sem leggur hönd á plóg við
gerð hverrar kvikmyndar.
Óskarinn hringsnýst fyrst og
fremst um alls konar pólitík og
sveif last eins og rótlaust þangið
eftir hvikulum samfélagsstraumum
þannig að „besta myndin“ er síður
en svo alltaf besta myndin. Slíkt
mat er þar fyrir utan vitaskuld allt-
af persónulegt þannig að engin ein
niðurstaða er rétt.
Áður en lengra er haldið er rétt
að halda því vandlega til haga að
Green Book er ákaflega góð mynd,
krúttleg og fantavel leikin enda gaf
undirritaður henni fjórar stjörnur í
dómi í Fréttablaðinu og hafði meðal
annars þetta um hana að segja:
„Margtuggin klisja um óvænta
vináttu ólíkra manna verður eitt-
hvað annað og miklu meira í þessari
fallegu og bráðskemmtilegu mynd
sem aðalleikararnir tveir hlaða
krafti, gleði og hlýju.“
Breytir því samt ekki að auðvitað
vekur það almenna furðu og reiði
hjá tapsárum að Green Book skuli
tekin fram yfir til dæmis Vice, The
Favourite og Roma, miklu betri og
dýpri myndir.
Þar fyrir utan geta aðeins Roma
og The Favourite talist standa undir
stöðluðum kröfum fólks til „Óskars-
verðlaunamynda“ og Roma er lang-
best. Hún átti samt aldrei séns. Í
fyrsta lagi á Akademían til sérstaka
málamy ndar uslak istu, „best a
erlenda myndin“, fyrir myndir þar
sem talaðar eru annarlegar tungur.
Þar fyrir utan er Roma eyrnamerkt
efnisveitunni Netf lix en Holly-
wood-elítan hatar það fyrirbæri
heitar en svæsnustu inflúensu.
Green Book græddi þarna, eins
og margar myndir áður, á músar-
holusjónarmiðum sem eru jafn
þröng hvort sem er í Reykjavík eða
Áttavilltur
Óskar stuðar
Þrátt fyrir að vera allra góðra gjalda verð
þykir Green Book tæpast standa undir
Óskarsverðlaununum sem besta myndin
Þótt Spike Lee sé
fyrirmunað að
tapa með stæl
hefur hann margt
til síns máls eftir
að hafa í tvígang
mátt, með 30 ára
millibili, lúta í
lægra haldi fyrir
glansmyndum
af ökuferðum
svartra og hvítra.
Green Book þykir
hafa skorið Crash
úr snöru lélegustu
verðlaunamyndar
síðari ára. Báðar eru
þó margfalt betri
en Shakespeare in
Love og Chicago en
þar er óhætt að tala
um alvöru skandal.
Los Angeles. Og eins og vera ber er
auðveldast að sameinast um lægsta
samnefnarann þar og hér.
Spike Lee hefur meira að segja
alveg efni á því að vera brjálaður
eftir að hafa nú tapað í tvígang
fyrir glansmyndum af sótthreins-
uðum samskiptum bleiknefja og
þeldökkrar manneskju í bílum.
Lee, eins leiðinlegur og hann getur
verið átti brýnt erindi 1989 með Do
the Right Thing þegar hann mátti
lúta í lægra haldi fyrir Driving Miss
Daisy sem hafði í raun ekkert fram
að færa.
Og eins og hann bendir á núna
hefur ekkert breyst á þessum 30
árum annað en bílstjóra og far-
þega er hrókerað og þrátt fyrir öll
krúttlegheitin er Green Book eins
og Obama hafi ekki verið í Hvíta
húsinu í átta ár.
thorarinn@frettabladid.is
M I Ð - L A U
Í VERSLUNUM FJARÐAR
Fjölskylduhátíðin
Andlitsmálun
Sirkus Íslands kl. 13:00
Opnunarhátíð heldur
áfram
eina af stærstu le
ikfangabúð land
sins
á jarðhæð í FIRÐ
I
· Opnunartilboð
og TaxFree
· Allir sem versla
fá glaðning
TAX-free er 19,35% afsláttur, gildir ekki með öðrum tilboðum.
heldur áfram
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R66 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
8
-1
C
E
8
2
2
7
8
-1
B
A
C
2
2
7
8
-1
A
7
0
2
2
7
8
-1
9
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K