Fréttablaðið - 02.03.2019, Blaðsíða 104
LEIKRIT
Gallsteinar afa Gissa
HHH H
Kristín Helga Gunnarsdóttir,
Karl Ágúst Úlfsson og Þorvaldur
Bjarni Þorvaldsson
Leikfélag Akureyrar
Samkomuhús
Leikstjórn: Ágústa Skúladóttir
Leikarar: Benedikt Karl Gröndal,
Birna Pétursdóttir, Jóhann Axel Ing-
ólfsson, Karl Ágúst Úlfsson, María
Pálsdóttir og Margrét Sverrisdóttir
Með hlutverk barnanna fara: Þór-
gunnur Una Jónsdóttir, Steingerður
Snorradóttir, Örn Heiðar Lárusson
og Daníel Freyr Stefánsson
Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvalds-
son
Leikmynd og búningar: Þórunn
María Jónsdóttir
Danshreyfingar og aðstoðarleik-
stjóri: Katrín Mist Haraldsdóttir
Lýsing: Lárus Heiðar Sveinsson
Hljóð: Gunnar Sigbjörnsson
Hljómsveit á sýningum: Jaan
Alavere, Philip Doyle og Kristján
Edelstein
Um síðastliðna helgi frumsýndi
Leikfélag Akureyrar söngleikinn
Gallsteinar afa Gissa, leiksýningu
sem unnin er upp úr vinsælli barna-
bók eftir Kristínu Helgu Gunnars-
dóttur, gefinni út fyrir fimmtán
árum. Reyndar fékk sagan af systk-
inunum Grímu og Torfa leikrænt
framhaldslíf í Útvarpsleikhúsinu
árið 2016 en nú stökkva börnin tvö
aftur saman á leiksviðið í splunku-
nýrri söngleikjaútfærslu.
Samkomuhúsið á Akureyri er
kjörin staðsetning fyrir sýningu á
borð við þessa enda bæði heillandi
og notalegt leikhús, uppfullt af
möguleikum. Nauðsynlegt er að
hafa reynsluna með sér til að láta
smæð sviðsins vera sýningunni í hag
frekar en hamlandi afl, slíka reynslu
hefur hönnuðurinn Þórunn María
svo sannarlega. Leikmyndin er
kannski einföld á að líta en litar sýn-
inguna einstaklega skýrum litum og
býr til rými á frumlegan hátt. Allt er
einhvern veginn á skjön, sem endur-
speglar átök vísitölufjölskyldunnar
skemmtilega, og er baksviðið fim-
lega notað til að skapa sviðsdýpt.
Búningahönnun hennar ber líka
merki um hæfileika hennar til að
draga fram súrrealískar áherslur
hversdagsleikans.
Gríma og Torfi eru föst í fjöl-
skyldu þar sem alltaf er verið að
skipa þeim fyrir. Foreldrarnir eru of
uppteknir til að vera til, hvað þá að
sinna þeim nema þegar þau þurfa að
gera eitthvað, og eldri bróðir þeirra
er ömurlegur, eins og unglingar geta
verið. Þau þrá frelsi og hömluleysi.
Þegar systkinin fara í heimsókn til
afa Gissa, sem er á spítala eftir gall-
steinaaðgerð, opnast óvænt fyrir
þeim töfraheimur þar sem allar
þeirra óskir rætast en galli reynist á
gjöf afa Gissa...
Blikur á lofti
Handritið er samvinnuverk Krist-
ínar Helgu, tónskáldsins Þorvaldar
Bjarna og Karls Ágústs sem skapa
ágæta umgjörð um málefni sem
varðar allar nútímafjölskyldur í
samstarfi við leikstjórann, Ágústu.
Gallsteinar afa Gissa byrja vel og
ná fljótlega góðri siglingu á meðan
heimurinn og persónurnar eru
kynntar til sögunnar. En eftir hlé
birtast blikur á lofti. Vandamálið
kjarnast í síðustu senum verksins
þar sem alltof margar óþarfa per-
sónur eru kynntar til leiks og kjarni
verksins gleymist.
Þorvaldur Bjarni er þaulvanur
leikhústónlist af öllu tagi, bæði sem
hljómsveitarstjóri og tónskáld, og
byrjar af krafti með fyrsta laginu í
fullri lengd sem er bæði grípandi og
eftirminnilegt. Harmsöngur ungl-
ingsins er sömuleiðis áhugaverður og
hressi hamagangur heimilisföðurins
eftir hlé en eini smellurinn er harð-
stjórasöngur móðurinnar í byrjun.
Hér vantar fleiri lög sem hitta í mark.
Danshreyfingar Katrínar Mistar
eru sömuleiðis fín skygging en þær
skortir skýrari áherslur.
Trúverðugt samband
Ungmennin tvö, Steingerður og Örn
Heiðar, leiddu frumsýninguna af
mikilli prýði þrátt fyrir smá tauga-
trekking, allar líkur eru á því að Þór-
gunnur Una og Daníel Freyr verði
alveg jafn heillandi. Mikilvægt er að
muna fyrir leikara sem eru að stíga
sín allra fyrstu sviðsskref að slíkar
taugar eru eðlilegar fyrir hvaða leik-
ara sem er, þeir eldri og reynslumeiri
eru alls ekki undanskildir. Sam-
bandið þeirra á milli var leikandi
lifandi og trúverðugt þar sem sam-
skipti systkina eru ekki alltaf auð-
veld. Einnig sungu þau bæði eins og
leikhúsenglar.
Benedikt Karl hefur sýnt og
sannað á þessu leikári að kómíkin á
einstaklega vel við hann og honum
tekst að gera æsinginn í Guðlaugi
nánast harmrænan. Í hans með-
ferð sjá áhorfendur örvæntingu
hressa pabbans greinilega sem gefur
þessum annars einfalda karakter
óvænta dýpt. Hann og María Páls-
dóttir mynda frábært teymi, sérstak-
lega í byrjun verksins, en hún stelur
algjörlega senunni sem harðstjóri
heimilisins með fyrsta lagi sínu og
frábærri líkamsbeitingu. En fljótlega
fletjast persónur þeirra út og endur-
tekningarnar verða þreytandi.
Jóhann Axel er nýtt andlit á
íslensku leiksviði og augljóslega
leikari sem vert er að fylgjast vel með.
Hann gefur sig allan í sín fjölmörgu
hlutverk en nýtur sín þó sérstak-
lega sem samankrumpaði og súri
unglingurinn Úlfur. Limaburður
hans og líkamlegur styrkur er eftir-
tektarverður, sem og raddbeiting
hans. Margrét og Birna fá minna úr
að spila en skila sínu með ágætum,
bæði í leik og söng.
Ágústa á heimavelli
Þó að gallsteinarnir hans afa Gissa
fari með stórt hlutverk í sýningunni
þá stendur upprunalegi eigandinn
til hliðar við framvinduna. Afi Gissi
birtist líkt og álfamær, þegar eitt-
hvað bjátar á, með töfralausnir sem
virðast í fyrstu vera gulls ígildi en
eru kannski bara glópagull. Hann
meinar þó vel og Karl Ágúst skilar
sínu hlutverki af fagmennsku og
kæti, eins og hans er von og vísa.
Ágústa er reyndur leikstjóri og
er hér á heimavelli. Hún leikstýrir
ærslaganginum virkilega vel og við-
vera lítillar hljómsveitar á sviðinu í
völdum atriðum er einkar góð hug-
mynd. En heildin er óformuð og
stundum agalaus. Atriðið eftir hlé,
þar sem afi Gissi leikur við hvern
sinn fingur og á maga er óþarfi. Þátt-
töku áhorfenda þarf að fara vel með
en ekki nota í uppklapp eftir hlé.
Tempóið er gírað upp alltof snemma,
æsingurinn verður stundum rugl-
ingslegur og sýningin siglir ekki auð-
veldlega í land gegnum ölduganginn
en þangað þó.
Leikfélagi Akureyrar, undir regn-
hlíf Menningarfélags Akureyrar,
hefur vaxið fiskur um hrygg síðan
Marta Nordal tók við stjórnartaum-
unum og spennandi verður að sjá
hvernig málin þróast. Gallsteinar afa
Gissa er stórt skref í rétta átt þar sem
áhorfendur á öllum aldri geta fengið
eitthvað fyrir sinn snúð.
Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Þægileg og gaman-
söm skemmtun um fjölskyldu afa
Gissa sem hefði mátt tálga betur.
Allt er gott í hófi
Áhorfendur á öllum aldri geta fengið eitthvað fyrir sinn snúð, segir gagnrýnandi.
BARCELONAREAL MADRID
stod2.is | 1817
Tryggðu þér
áskrift!
KAUPTU STAKAN LEIK:
intellecta.is
RÁÐNINGAR
2 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R56 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
2
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
7
7
-E
B
8
8
2
2
7
7
-E
A
4
C
2
2
7
7
-E
9
1
0
2
2
7
7
-E
7
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
0
s
_
1
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K