Morgunblaðið - 28.12.2018, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018
ALMAR
BAKARI
BAKARÍ / KAFFIHÚS / SALATBAR
Sunnumörk 2, Hveragerði, sími 483 1919, Almar bakari
Opið mánudaga til laugardaga kl. 7-18, sunnudaga kl. 8-18
JÓLIN KOMIN
hjá Almari bakara
SALATBAR
ferskur allan
daginn
BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS
OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16
TILBOÐSverð Frá kr. 268.560
fullt verð frá kr . 335 .700
J ó l aT I L B O Ð
T I M E O U t
H æ g i n d a S t ó l l + S k e m i l l
Icelandair Group hefur gengið frá
samningi við BOC Aviation um fjár-
mögnun á fyrirframgreiðslum á Bo-
eing 737 MAX flugvélum félagsins
sem eru til afhendingar árin 2019
og 2020.
Í tilkynningu frá Icelandair segir
að áætlaður afhendingardagur síð-
ustu vélanna sé í mars 2020. Þá
segir í tilkynningunni að samtals
muni fjármögnunin nema um 200
milljónum bandaríkjadala á tíma-
bilinu, jafnvirði 23,3 milljarða
króna, og sjóðsstaða félagsins
hækki um 160 milljónir dala í kjöl-
far samningsins.
Tvær vélar seldar
Til viðbótar hafa félögin, sam-
kvæmt fréttatilkynningunni, samið
um sölu og endurleigu á tveimur af
þeim Boeing 737 flugvélum sem
samningurinn nær yfir. „Önnur
þessara flugvéla verður afhent á
árinu 2019 og hin árið 2020. Leigu-
tími vélanna er 12 ár með kauprétti
að loknum 30 mánaða leigutíma,“
segir í tilkynningunni. tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flug Nýju 737 MAX vélarnar verða afhentar á næsta ári og því þarnæsta.
Fjármagna 737
MAX vélarnar
Sjóðstaða hækkar um 160 m. dala
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Langflestir þeirra sem slógu lán hjá
íslensku viðskiptabönkunum í nóv-
ember, með veði í húsnæði sínu, tóku
lán sem bera fasta vexti til nokkurra
ára. Þetta sýna nýjar tölur frá Seðla-
banka Íslands. Í gær var greint frá
því í ViðskiptaMogganum að íslensk
heimili tækju nú nær eingöngu
óverðtryggð lán til að fjármagna
húsnæði sitt. Þannig hefðu bankarn-
ir veitt óverðtryggð íbúðalán að fjár-
hæð 14,3 milljarða króna, að teknu
tilliti til uppgreiðslna og afborgana
en á hinn bóginn hefðu heimilin í
landinu greitt upp verðtryggð lán
sín, umfram nýjar lántökur af því
tagi, sem nam 970 milljónum króna. Í
fyrrnefndum tölum kemur fram að af
þeim 14,3 milljörðum sem heimilin
tóku að láni í formi óverðtryggðra
lána í nóvember hafi um 11% fjár-
hæðarinnar verið í formi lána með
breytilega vexti eða tæplega 1,6
milljarðar. Hins vegar hafi 12,7 millj-
arðar borið fasta vexti. Miðað við
lánatöflur bankanna má gera ráð
fyrir að þeir vextir séu festir til
þriggja eða fimm ára. Sé litið nokkra
mánuði aftur í tímann sést að í þess-
um efnum hefur orðið mikill viðsnún-
ingur. Í október var hlutfall nýrra
lánveitinga með breytilegum vöxtum
23% og hafði farið úr 43% í septem-
ber. Á fyrstu átta mánuðum ársins,
frá janúar og út ágúst, var hlutfall
þeirra óverðtryggðu lána sem slegin
voru og báru breytilega vexti, hins
vegar 52%. Svipaða sögu má segja af
verðtryggðum útlánum bankanna til
húsnæðiskaupa. Verðtryggð lán með
föstum vöxtum jukust um 165 millj-
ónir í nóvember en uppgreiðslur um-
fram nýjar lántökur í þeim lánaflokki
sem ber breytilega verðtryggða
vexti, námu 1,1 milljarði króna. Á
fyrstu 8 mánuðum ársins voru 74%
þeirrar fjárhæðar sem bankarnir
lánuðu verðtryggð með breytilegum
vöxtum. Því hefur algjör viðsnúning-
ur orðið í þessum lánaflokkum, rétt
eins og hinum óverðtryggðu.
Mikill meirihluti lántaka
leitar nú í föst vaxtakjör
Algjör viðsnúningur frá fyrri hluta þessa árs Fastir vextir hækka skarpt
Vaxtakjör Fólk virðist nú í auknum mæli vilja festa vaxtakjör til lengri tíma.
28. desember 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 116.37 116.93 116.65
Sterlingspund 146.95 147.67 147.31
Kanadadalur 85.45 85.95 85.7
Dönsk króna 17.76 17.864 17.812
Norsk króna 13.294 13.372 13.333
Sænsk króna 12.881 12.957 12.919
Svissn. franki 117.45 118.11 117.78
Japanskt jen 1.0494 1.0556 1.0525
SDR 161.37 162.33 161.85
Evra 132.63 133.37 133.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 161.0847
Hrávöruverð
Gull 1261.25 ($/únsa)
Ál 1898.0 ($/tonn) LME
Hráolía 50.84 ($/fatið) Brent
… til að sjá
gengið eins og
það er núna á.
Skannaðu kóðann …