Morgunblaðið - 28.12.2018, Side 22

Morgunblaðið - 28.12.2018, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Enn var bættí viðbúnað ígær vegna eldgossins í Indónesíu. Talið er að rúmlega 400 manns hafi látið lífið í flóð- bylgju sem myndaðist þegar hluti gígsins í eldfjallinu Anak Krakatá féll saman undir yfir- borði sjávar á laugardag. Eld- fjallið er í miðju sundinu Sunda, sem liggur á milli eyjanna Súmötru og Java, og skall flóðbylgjan á ströndum þeirra. Engin viðvörun barst áður en flóðbylgjan skall á landi. Um 1.500 manns slösuðust og rúm- lega 150 er saknað. 22 þúsund manns hafa flúið heimili sín og hafast við í skýlum. Óttast er að fleiri gætu hafa látist en nú er vitað um. Íbúar á þessum slóðum hafa verið beðnir um að halda sig fjarri ströndum vegna þess að búast megi við annarri flóð- bylgju. Þetta er í þriðja skipti á árinu sem náttúruhamfarir valda hörmungum í Indónesíu. Í júlí og ágúst riðu miklir jarð- skjálftar yfir eyjuna Lombok. Í september skall flóðalda á Palu á eyjunni Sulawesi eftir jarð- skjálfta með þeim afleiðingum að um 2.200 manns létu lífið. Anak Krakatá er eyja, sem myndaðist um 1928 í gígnum, sem varð til árið 1883 í einu mesta gosi síðari tíma, í Kraka- tá. Í því gosi létust að talið er rúmlega 36 þúsund manns. Eldfjallið hefur verið mjög virkt síðan í júní og hefur vakn- að umræða um það hvort hægt hefði verið að vara fólk við flóðbylgj- unni í tæka tíð. Talsmaður al- mannavarna í Indónesíu sagði að ekki hefðu verið merki um að flóðbylgja væri á leiðinni og kenndi um skemmdarverkum, tæknilegum vandamálum og takmörkuðum fjárveitingum til að kaupa viðvörunarbaujur. Fyrirvarinn hefði hins vegar verið mjög lítill. „Tíminn á milli orsakar og afleiðingar var að- eins nokkrir tugir mínútna sem var of stutt til að vara íbúana við,“ sagði franski eldfjalla- fræðingurinn Jacques-Marie Bardintzeff við fréttaveitu AFP. Mikið uppbyggingarstarf bíður eftir flóðbylgjuna um helgina og verður að vona að þær verði ekki fleiri. Indónesía liggur á einum virkasta stað jarðarinnar þar sem flekar jarðskorpunnar mætast. Íslendingar þekkja ná- vígið við náttúruöflin af eigin raun þótt ekki sé hægt að bera jarðhræringar hér saman við hörmungarnar í Indónesíu. Þær eru hins vegar áminn- ingar um þær hættur, sem fylgja návíginu við eldstöðvar. Hvað mun gerast verði elds- umbrot í Öræfajökli eða Kötlu? Til eru mælar og tæki til að vakta helstu eldstöðvar og þekkingin til að nýta þau er fyr- ir hendi. Þegar eldsumbrot hefjast getur hver mínúta skipt sköpum. Því er nauðsynlegt að nýta búnaðinn og þekkinguna og óþarfi að spara í þeim efnum. 2018 hefur verið ár náttúruhamfara og hörmunga í Indónesíu} Mannskæð eldsumbrot Margt hefurbreyst í Kína frá dögum menn- ingarbyltingar- innar og stökksins mikla. Kína er orðið eitt mesta efna- hagsveldi heims og velmegun hefur snaraukist í landinu. Eitt hefur þó ekki breyst. Kommún- istaflokkurinn er staðráðinn í að halda völdum og öllu andófi er mætt af hörku. Margir hafa fundið fyrir hrammi kommúnistaflokksins. Meðal þeirra eru lögmenn, sem hafa reynt að gæta mannrétt- inda almennra borgara í réttar- sölum. Einn þeirra er Wang Quanzhang. Wang gerði sér far um að verja andófsmenn og fórnarlömb eignarnáms. Hann var einn 200 lögmanna og and- ófsmanna, sem hurfu þegar stjórnvöld gripu til aðgerða gegn gagnrýnendum sínum 2015. Í janúar 2016 var hann kærður fyrir að grafa undan ríkisvaldinu með ýmsum hætti, þar á meðal niður- rifshugsunum. Kona hans hafði hins vegar engar spurnir af honum fyrr en í sumar. Á miðvikudag kom loks að réttarhöldunum. Þau voru lokuð og fékk konan hans ekki einu sinni að vera við- stödd. Dómur hefur enn ekki verið kveðinn upp. Aðförin gegn þeim, sem tóku upp hanskann fyrir mannrétt- indi í kínverskum réttarsölum, var ætluð til að skapa ótta og ugg og vera öðrum víti til varn- aðar. Aðstandendur þeirra, sem eru handteknir, eru iðulega beittir þrýstingi til að láta af andófi og halda að sér höndum. Láti aðstandendur vera að fara í fjölmiðla eða nota félagsmiðla fá andófsmennirnir vægari refs- ingu. Aðferðir kínverska komm- únistaflokksins hafa breyst, en eðlið ekki. Aðferðir kínverska kommúnistaflokks- ins hafa breyst, en eðlið ekki} Andóf kæft í Kína É g læt hugann reika til þess tíma þegar hefðir og hátíðleiki jólanna var annar en í dag. Þrátt fyrir að mér sem barni í þá daga þætti nóg um hvernig tilverunni var nánast snúið á hvolf í undirbún- ingi jólanna þá var enginn tími skemmtilegri og meira spennandi. Í minningunni skipar jólasveinninn stóran sess. Að setja skóinn í gluggann á kvöldin var svo æsandi að svefninn lét stundum bíða eftir sér. Ein mandarína frá jóla var kærkomin, enda voru þær einungis á boðstólum almúg- ans til hátíðabrigða. Ósjaldan lagðist ég á koddann harðákveðin í að góma Sveinka þeg- ar hann kæmi í heimsókn. Það þarf víst ekki að segja hvernig það tókst til. Hefðin í minni fjölskyldu var að hittast og borða öll saman í litlu stofunni heima hjá ömmu og afa á að- fangadagskvöld. Við krakkarnir fengum öll einhvern glaðning. Oftast eitthvað heimatilbúið og nytsamlegt, stundum bók eða spil. Það veraldlega vék fyrir kærleika og samheldni fjölskyldunnar. Við fórum snemma heim og öll beint í háttinn. Það var algerlega bannað að lesa eða spila þetta kvöld og á jóladag líka. Ég upplifði hátíð- leika sem umvafði mig allt um kring. Þetta var sannkallaður tími Vetrar konungs, fann- fergið svo öflugt að stundum þurftu bæjarbúar að hjálp- ast að við að moka hver annan út. Sérstaklega man ég einnar hæðar raðhúsaíbúðirnar við Aðalgötu á Ólafsfirði sem stundum fóru gjörsamlega á kaf. Urðu að einum risastórum snjóskafli þar sem vandi gat verið að finna innganginn til að frelsa íbúana. Venjur og hátíðleiki jólanna úr bernsku minni er ekki það eina sem er að breytast. Nú gerist það að við fáum rauð jól nánast úti um allt land. Það er orðið langt síð- an að hringja þurfti í nágranna til að biðja um aðstoð við að moka frá útihurð. Margir taka þessari breytingu veðurguðanna fagnandi. En ég sakna hamagangsins og stórhríðar- innar í kringum jólin. Fannst svo notalegt að kúra inni í hlýjunni á meðan veðurofsinn geis- aði fyrir utan gluggann minn og skaflarnir hlóðust upp. Það var partur af stemningunni að dúða sig síðan í öll útifötin sín svo varla sást í neitt nema blánefið. Fara út að kafa og búa til snjó- hús. Allt er breytingum háð Nú safnast fjölskyldan saman hjá mér á aðfangadag. Við njótum samverunnar af öllu hjarta. Hátíðin er okkar þrátt fyrir að margt hafi breyst frá því ég var lítil. Nú er talið sjálfsagt að spila og lesa fram á nótt. Mamma og pabbi eru orðin gömul og amma og afi farin í Sólarlandið sem bíður okkar allra. Þannig týnist tíminn. Guð gefi ykkur öllum gleðilega jólahátíð og gæfuríkt komandi ár. Inga Sæland Pistill Jólahugvekja Höfundur er formaður Flokks fólksins. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Einelti er vandamál á ís-lenskum vinnustöðum ogfleiri tilkynningar berastfrá starfsmönnum hins opinbera heldur en þeim sem starfa í einkageiranum, ef marka má niðurstöður nýbirtrar rannsóknar sem framkvæmd var á vegum Vinnueftirlitsins. Þar voru eineltis- mál sem borist hafa til eftirlitsins frá árunum 2004-2015 tekin saman og þau flokkuð eftir því hvort þau bárust úr einkageiranum eða frá hinu opinbera. Niðurstöður gáfu enn fremur til kynna að þegar þolendur lögðu fram kvörtun til eftirlitsins vegna eineltis höfðu málin oft við- gengist í langan tíma, þolendur beðið heilsufars- tjón vegna þeirra og upplifað að ekkert hefði ver- ið aðhafst í mál- um þeirra en í allmörgum til- fellum voru þol- endur reknir í kjölfar kvartana. Úrlausn eineltismála tók yfir 3 ár, í flestum tilkynntum málum, en athygli vekur að mál innan einka- geirans höfðu almennt varað skem- ur þegar kvörtun var lögð fram, heldur en í opinbera geiranum. Ásta Snorradóttir, lektor við félagsráðgjafasvið hjá Háskóla Ís- lands, vann að rannsókninni ásamt Kristni Tómassyni, yfirlækni hjá Vinnueftirlitinu. Hún segir muninn á eineltismálum hjá einkageiranum og hinu opinbera liggja að hluta til í ólíku starfsöryggi. Þá sé algengara að þolendum sem starfa hjá einka- aðilum sé vikið frá störfum eða þeir hætti sjálfir. Eftir að kvörtun var lögð fram til Vinnueftirlitsins var staða þolanda oftast óbreytt en þol- anda var sagt upp í 38,1% tilvika í einkageiranum en aðeins í 11,4% tilvika í opinbera geiranum. „Meira starfsöryggi er í opin- bera geiranum heldur en einkageir- anum en einnig hafa rannsóknir sýnt að einelti er oft algengara hjá hinu opinbera. Það gæti skýrst af því að fólk er annaðhvort látið fara í einkageiranum eða það lætur sjálft af störfum,“ segir Ásta. Vinnueftirlitinu barst 121 kvörtun vegna eineltis á vinnustöð- um á árunum 2004-2015, en 72 þeirra bárust frá starfsfólki er starfaði hjá hinu opinbera. Flestir þolendur í þeim hópi störfuðu sem sérfræðingar eða þjónustu,- umönn- unar- og verslunarfólk en flestir þolendur eineltis á einkareknum vinnustöðum voru ósérhæft starfs- fólk og þjónustu-, umönnunar- og verslunarfólk. Yfirmenn voru tilgreindir ger- endur í yfirgnæfandi meirihluta ein- eltismálanna eða í 59% tilvika en í 80,2% tilvika komu yfirmenn við sögu sem gerendur, annaðhvort einir eða þá ásamt samstarfsfélaga eða undirmanni. Í skýrslunni kem- ur fram að rannsóknir sýni að ein- elti valdi þolendum vanlíðan og jafnvel heilsutjóni. Þá getur það haft áhrif á starfsanda viðkomandi vinnustaðar til hins verra, dregið úr framleiðni og leitt til aukinnar starfsmannaveltu. Því gæti kostn- aður fyrirtækis vegna eineltis verið talsverður. Skilgreiningar á einelti geta verið margvíslegar en eiga sér þó sama kjarnann: einelti á vinnustað einkennist af því að starfsmaður, einn eða fleiri, upplifir eða verður fyrir síendurtekinni, kerfisbundinni og viðvarandi neikvæðri hegðun eða athöfn af hendi annars einstaklings eða einstaklinga. Vinnueftirlitið hefur eftirlits- skyldu gagnvart vinnustöðum í heild og ber því skylda til að líta til vinnuaðstæðna sem varða starfsfólk og bregðast við kvörtunum frá starfsfólki. Ásta segir að áhersla sé nú lögð á þennan málaflokk í aukn- um mæli, ekki síst í kjölfar me too- byltingarinnar. Mun fleiri eineltismál hjá hinu opinbera Í kvörtunum vegna eineltis á vinnustöðum, sem komu á borð Vinnueft- irlitsins, greina þolendur einnig frá líðan og heilsu í kjölfar eineltisins. Þar var bæði greint frá versnandi andlegri heilsu og einnig versnandi líkamlegri heilsu. Í 22,3% tilvika fór þolandinn í langt veikindaleyfi í tengslum við eineltið. Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu, segir það sláandi hve mikilli vanlíðan þolendur lýstu í kvörtunum yfir einelti á vinnustað til eftirlitsins. Hann segir niðurstöðurnar gefa til kynna að afar brýnt sé að hlúa að geðvernd og heilsuvernd fyrir fólk sem verður fyrir ótilhlýðilegri háttsemi á vinnustöðum og annars staðar. Samhliða gæti þá einnig fylgt líkamlegt heilsutjón vegna streitu sem eineltið veldur. Versnandi andleg heilsa SÁLRÆNT TJÓN Eineltismál hjá hinu opinbera og í einkageira Fjöldi og lengd mála sem voru tilkynnt til Vinnueftirlitsins 2004-2015 30 25 20 15 10 5 0 Hjá hinu opinbera Hjá einkageira < 6 mán. 6 mán. –1 ár 1–2 ár 2–3 ár 3 ár og meira Kemur ekki fram 4 6 5 10 5 5 11 6 15 19 22 13 121 mál alls, 79 hjá hinu opinbera og 42 hjá einkageira Ásta Snorradóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.