Morgunblaðið - 28.12.2018, Qupperneq 19
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Tvö lendingarleyfi á Gatwick-
flugvelli í Englandi, sem flugfélagið
WOW air tilkynnti 20. desember sl.
að það hefði selt, og sagði í sömu
tilkynningu frá flutningi á þjónustu
sinni frá Gatwick til Stansted-
flugvallar frá og með 31. mars 2019,
gætu verið um 800 milljóna króna
virði samtals ef miðað væri við upp-
lýsingar úr vefútgáfu breska blaðs-
ins Evening Standard frá því í nóv-
ember í fyrra.
Í grein blaðsins er fjallað um sölu
á 22 lendingarleyfum úr þrotabúi
breska flugfélagsins Monarch sem
varð gjaldþrota haustið 2017 og tal-
að um að fyrir leyfin gætu fengist
um 60 milljónir punda eða tæpir
níu milljarðar íslenskra króna mið-
að við gengi dagsins í dag.
Wizz keypti 30. nóvember
Samkvæmt upplýsingum á vef-
síðu alþjóðlegs fyrirtækis sem sér
um afgreiðslutíma fyrir fjölda flug-
valla, þar á meðal Gatwick-flugvöll,
Airport Coordination Limited Ltd.
(ACL), keyptu ungverska ofurlág-
gjaldaflugfélagið Wizzair og breska
lággjaldaflugfélagið Easy Jet fyrr-
nefnd lendingarleyfi af WOW air.
Salan til Easy Jet fór fram sam-
kvæmt upplýsingum frá ACL 5.
desember sl. en salan til Wizz air
30. nóvember.
Eins og fram hefur komið í
Morgunblaðinu er stærsti eigandi
Wizzair, með 15,85% hlut, fjárfest-
ingarfélagið Indigo Partners sem
samþykkt hefur, með skilyrðum, að
fjárfesta fyrir 9,3 milljarða króna í
WOW air. Því vekur tímasetning
viðskiptanna með leyfin sérstaka
athygli, en daginn áður, eða 29.
nóvember, var fyrst tilkynnt um
mögulega fjárfestingu Indigo í
WOW air, í kjölfar þess að við-
ræðum WOW air og Icelandair var
slitið, en Icelandair hafði áður til-
kynnt kaup á WOW air, að upp-
fylltum nokkrum skilyrðum.
Í ljósi ofangreinds má því álykta
sem svo að viðskiptin með lend-
ingarleyfin á Gatwick séu hluti af
yfirstandandi samningaviðræðum
milli Indigo og WOW air.
Eins og komið hefur fram í
Morgunblaðinu er fjárfesting In-
digo í WOW air háð ýmsum skil-
málum, eins og niðurstöðu áreiðan-
leikakönnunar sem ekki er lokið en
engin tímasetning er komin á það
hvenær vinnu við hana muni ljúka.
Greint hefur verið frá því að
WOW air muni skera niður flota
sinn á næsta ári úr 20 þotum í 11
og stöðugildum hefur verið fækkað
um 350. Eftir uppsagnirnar munu
rúmlega þúsund starfa hjá félag-
inu.
Lendingarleyfi WOW á
Gatwick um 800 milljóna virði
Wizz air og Easy Jet keyptu leyfin í lok nóvember og byrjun desember
AFP
Flug Wizz Air bætir við sig flugferðum frá Gatwick frá og með 31. mars.
Flugfélög
» Eigandi Indigo, William A.
Franke, er jafnframt stjórnar-
formaður Wizzair.
» WOW air tapaði alls 33,6
milljónum dala á fyrstu níu
mánuðum ársins eða tæp-
lega fjórum milljörðum
króna.
» WOW air mun skera niður
flota sinn á næsta ári úr 20
þotum í 11 og stöðugildum
hefur verið fækkað um 350.
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018
Um leið og við óskum ykkur
gleðilegrar hátíðar viljum við
þakka fyrir ánægjuleg viðskipti
á árinu sem er að líða
- Rut og Silja
Gleðilega hátíð
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | Opið alla virka daga kl. 10-17 | www.rut.is | Ljósmyndir Rutar og Silju
Opnum aftur 3. janúar
Nefndarmenn peningastefnu-
nefndar Seðlabanka Íslands voru
ekki allir sammála um að halda
stýrivöxtum óbreyttum við síðustu
vaxtaákvarðanatöku að því er fram
kemur í fundargerð nefndarinnar.
Fjórir nefndarmenn greiddu at-
kvæði með tillögu seðlabankastjóra
um að halda vöxtum óbreyttum en
einn nefndarmaður greiddi atkvæði
gegn tillögu hans og vildi hækka
vexti um 0,25 prósentur. Helstu
rökin fyrir því að halda vöxtum
óbreyttum voru þau að lækkun
raunvaxta milli funda væri fyrst og
fremst tilkomin vegna skammtíma-
áhrifa gengislækkunarinnar á
verðbólgu- og skammtímaverð-
bólguvæntingar. Helstu rökin fyrir
hækkun að mati nefndarinnar voru
þau að þörf væri á meiri hækkun
vaxta en ákveðið var í nóvember í
ljósi aukinnar undirliggjandi verð-
bólgu og verðbólguvæntinga.
Morgunblaðið/Golli
Vaxtaákvörðun Einn nefndar-
maður vildi hækka stýrivexti.
Ekki ein-
hugur um
stýrivexti