Morgunblaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018
NOKIAN stígvélabúðin | Mjóddinni | Reykjavík I Sími 527 1519 | Nokian Stígvélabúðin
Opið virka daga kl. 10.00-18.00
Loðfóðruð barnastígvél
fyrir veturinn
ICQC 2018-20
Kvikmyndin um ofurhetjuna
Aquaman, Sjávarmanninn eða
Vatnsmanninn, skilaði mestu í
miðasölu kvikmyndahúsa lands-
ins helgina 21.-23. desember
eða um 5,3 milljónum króna.
Um 3.900 miðar voru seldir
þessa síðustu daga fyrir jól en
næstmestu skilaði teiknimyndin
um Ralph sem rústar inter-
netið, um 1,8 milljónum króna.
Mortal Engines féll úr fyrsta
sæti í það fjórða og sáu hana
um 600 manns en teiknimynd-
ina um græna fýlupokann
Trölla sáu öllu fleiri, 1.600
manns.
Bíóaðsókn helgarinnar
Sjávarmaður fengsæll
Aquaman Ný Ný
Ralph Breaks the Internet 2 4
The Grinch 3 7
Mortal Engines 1 2
Bohemian Rhapsody 5 8
Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald 4 6
Creed 2 6 4
A Star Is Born (2018) 7 12
Once Upon a Deadpool (2018) 8 2
The Nutcracker and the Four Realms 14 8
Bíólistinn 21.–23. desember 2018
Nr.
Var
síðast
Vikur
á listaKvikmynd
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Vígalegur Jason Momoa í hlutverki
sjávarhetjunnar Aquaman.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
„Þannig að þegar hann [Arnór Pálmi
Arnarson] lýsti yfir áhuga á því að
endurtaka leikinn, með nýju og ekki
síður áhugaverðu teymi, þá tókum við
því fagnandi og slógum til,“ er haft
eftir Skarphéðni Guðmundssyni, dag-
skrárstjóra RÚV, í fréttatilkynningu
um Áramótaskaupið 2018. Einnig að
Skaupið í fyrra undir forystu Arnórs
Pálma hafi verið eitt það best heppn-
aða frá upphafi. Nýja og áhugaverða
fólkið sem dagskrárstjórinn vísar til
samanstendur af máttarstólpum í
gríni á Íslandi – eins og þar stendur
líka – þeim Ilmi Kristjánsdóttur, Jóni
Gnarr, Kötlu Margréti Þorgeirs-
dóttur og Sveppa auk Katrínar Hall-
dóru Sigurðardóttur sem er að stíga
sín fyrstu skref í að skrifa grín fyrir
sjónvarp.
„Framundan er magasár og gleði,“
skrifaði Arnór Pálmi á facebook-síðu
sína í október eftir að gert var heyr-
umkunnugt að hann myndi leikstýra
Áramótaskaupinu, sem þorri lands-
manna horfir á og hefur gríðarlega
miklar skoðanir á. „Annars skrifar
þetta sig víst sjálft,“ skrifaði hann
ennfremur. Í kaldhæðni væntanlega.
„Ekki ennþá, en kannski klukku-
tíma fyrir Skaupið eins og í fyrra,“
svarar hann þegar hann er spurður
hvort magasárið hafi látið á sér
kræla. „En svona í alvöru talað þá er
búið að ganga mjög vel hjá okkur,
bæði upptökur og endurvinnsla. Þeg-
ar fólk spyr hvort Skaupið í ár sé
betra en í fyrra, verð ég þó að viður-
kenna að ég ber ekki nokkurt skyn-
bragð á það. Við í höfundahópnum og
aðrir aðstandendur erum aftur á móti
mjög ánægð, stöndum og föllum með
okkar verki,“ heldur hann áfram.
Kýla upp en ekki niður
Má gera grín að öllu í Skaupinu?
„Erfið spurning, en stutta svarið er
nei. Við settum okkur ákveðnar
vinnureglur, til dæmis þá að kýla upp
en ekki niður. Áramótaskaupið er
spéspegill og fjallar um það sem við
sjáum skondið, jafnvel eitthvað sem
er að í þjóðfélaginu, og því er Skaupið
á vissan hátt rýni til gagns. Við fjöll-
um um tíðarandann, skopumst að
fréttum, pólitík og pólitíkusum,
speglum tíðarandann og veltum fyrir
okkur hvernig sé að vera Íslendingur.
Grínið og brandararnir eru ekkert út
í bláinn, í þeim er alltaf einhver vísun
í þjóðarsálina.“
Þótt Arnór Pálmi segist lítið vera
gefinn fyrir þemu í skemmtiþætti
eins og Skaupinu, viðurkennir hann
að í því sé rauður þráður, sem óvart
hafi orðið til eftir því sem handrits-
skrifunum vatt fram. Meira gefur
hann ekki upp, áhorfendur munu átta
sig í fyllingu tímams, eins og hann
segir.
Jón Gnarr hefur þegar ljóstrað upp
að þegar Klausturmálið komst í há-
mæli í lok nóvember hafi handritshöf-
undateymið efnt til krísufundar.
Enda ekki aðeins borðleggjandi at-
burður til að hneykslast og býsnast
yfir heldur líka ómissandi í skopannál
eins og Áramótaskaupið.
Snarlega brugðist við
Arnóri Pálma leið ekki sérstaklega
vel kvöldið sem hann las um skandal-
inn. Hann og teymið urðu að bregðast
við með snöfurmannlegum hætti.
„Þetta var í rauninni martröð, en
okkur tókst að búa til rými og skjóta
inn atriði. Sumir sögðu að svona
uppákoma væri algjör guðsgjöf fyrir
okkur, en því fer víðs fjarri. Bæði er
Skaupið unnið á miklum hraða á
stuttum tíma og þegar eitthvað svona
gerist, sem gengur fram af þjóðinni,
er virkilega vandmeðfarið að snúa því
upp í grín og glens.“
Hvernig til hefur tekist verður lagt
í dóm hennar í 53. skipti á gamlárs-
kvöld. Efalítið verða menn ekki á eitt
sáttir, innan handritshópsins var ekki
einu sinni eining um hvað var fyndið
eða hreint ekkert fyndið. „Stundum
komu dagar þegar maður fór smá
pirraður heim því manni fannst hinir
ekki skilja snilldina, sem maður var
að bera á borð,“ segir Arnór Pálmi og
upplýsir jafnframt að uppröðun atrið-
anna sé lykilatriði.
Grínið er ekkert út í bláinn
Verður Áramótaskaupið í ár betra en í fyrra? Arnór Pálmi Arnarson leik-
stýrir annað árið í röð Klausturmálið martröð sem setti strik í reikninginn
Höfundar Áramótaskaupsins F.v. Arnór Pálmi Arnarson leikstjóri, Sveppi, Jón Gnarr, Katrín Halldóra Sigurðar-
dóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Katla Margrét Þorgeirsdóttir á krísufundi vegna Klausturmálsins í lok nóvember.
Hljómsveitin Hatari heldur sína síð-
ustu tónleika í kvöld kl. 21 á Húrra.
Hatari hefur notið mikilla vinsælda
allt frá stofnun og þykir með bestu
og líflegustu tónleikasveitum lands-
ins. „Hljómsveitarmeðlimum tókst
ekki að knésetja kapítalið á til-
settum tíma og því munum við
reyna að knésetja það innan veggja
heimilisins héðan í frá,“ segir Matt-
hías Tryggvi Haraldsson, einn liðs-
manna Hatara, spurður að því
hvernig standi á því að hljómsveitin
sé að leggja upp laupana. Félagið
Svikamylla ehf. á hljómsveitina og
allt sem henni tilheyrir og segir á
Facebook að tilgangur félagsins sé
niðurrifsstarfsemi á síðkapítalism-
anum, að eiga og reka fasteignir,
miðla íslenskum og erlendum
dómsdagskveðskap, margmiðlun,
útgáfa, að stunda innflutning og
önnur verslunarviðskipti svo og
lánastarfsemi.
Á Sónar Matthías Tryggvi Haraldsson.
Endalok Hatara
„All I Want for
Christmas“, 24
ára gamall jóla-
smellur Mariuh
Carey, sló
streymismet á
Spotify á að-
fangadagskvöld.
Engu lagi hefur
verið streymt
eins oft í sögu
veitunnar, 10,8 milljón sinnum,
hvorki meira né minna.
Jólalag slær met
Mariah Carey