Morgunblaðið - 28.12.2018, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018
✝ Nanna ÞrúðurJúlíusdóttir
fæddist á Bíldudal
9. júní 1926. Hún
lést 8. desember
2018.
Foreldrar henn-
ar voru Ásbjörn
Júlíus Nikulásson,
f. 1. júlí 1884 á
Uppsölum í Ket-
ildalahreppi, d. 15.
desember 1939, og
María Guðbjörg Jónsdóttir, f.
30. nóvember 1886 í Reykjafirði
í Suðurfjarðahreppi, d. 17. ágúst
1976. Systkini Nönnu voru Ingi-
mar og Margrét en þau eru bæði
látin.
Nanna giftist Friðriki Árna
Kristjánssyni hinn 4. janúar
1947. Friðrik Árni fæddist í
Stapadal í Arnarfirði 1. ágúst
1922. Hann lést á heimili þeirra
1. október 2009. Foreldrar hans
voru Kristján Kristjánsson, f.
24. október 1844 á Borg í Arnar-
firði, d. 8. apríl 1928, og Guðný
Guðný, Friðrik og Davíð. 3)
Ingvi, f. 16. ágúst 1950, maki El-
ín Ellertsdóttir, f. 22. ágúst
1954, börn þeirra: Guðni, Ellert
Geir, Sindri Snær, Ægir Örn og
Friðrik Árni. 4) Margrét Elín, f.
24. mars 1952, sambýlismaður
hennar var Pétur Þór Elíasson,
f. 26. júlí 1948, d. 11. mars 1982.
Dóttir hennar og fyrrverandi
eiginmanns, Ómars Awad, er
Miriam Petra. 5) Kristján, f. 24.
febrúar 1954, maki Guðbjörg
Lára Wathne, f. 5. desember
1958, dætur þeirra: Ásta Hrönn
og Maríanna. Dóttir Kristjáns
og Lilju Einarsdóttur var Krist-
ín Björk, f. 11. apríl 1982, d. 5.
febr. 2009. 6) Guðný, f. 10. jan-
úar 1956, d. 25. ágúst 1969.
Barnabörnin eru orðin tuttugu
og eitt.
Nanna og Friðrik bjuggu
lengst af á Grænabakka á Bíldu-
dal en fluttu yfir í Tálknafjörð
1972 þar sem Nanna vann mörg
ár á skrifstofu Hraðfrystihúss
Tálknafjarðar. Eftir lát Friðriks
bjó Nanna áfram í Tálknafirði
en 2014 flutti hún á Hrafnistu í
Hafnarfirði þar sem hún lést.
Útför Nönnu var gerð frá
Fossvogskirkju 14. desember en
jarðsett verður í Bíldudals-
kirkjugarði.
Guðmundsdóttir, f.
7. október 1881 á
Horni í Mosdal í
Arnarfirði, d. 5.
september 1957.
Fósturforeldar
Friðriks voru
Bjarni Árnason, f.
28. júní 1897, d. 19.
maí 1972, og Krist-
jana Th. Ólafs-
dóttir, f. 6. janúar
1898, d. 11. maí
1983, en þau bjuggu m.a. í Lauf-
ási í Bakkadal í Arnarfirði, en til
þeirra kom hann átta ára gam-
all.
Börn Nönnu og Friðriks eru:
1) María Birna, f. 19. október
1946, maki Bárður Árnason, f.
17. október 1944, börn þeirra:
Nanna Björk, Árni Gunnar og
María Guðbjörg. 2) Bjarney
Kristjana, f. 4. júlí 1949, maki
Pétur Sveinsson, f. 8. janúar
1941. Börn Bjarneyjar og fyrr-
verandi maka, Höskuldar Dav-
íðssonar, f. 1. janúar 1948, eru:
Seinnipartinn í september
2009 dreymdi mig draum. Pabbi
stóð við opnar dyrnar á svarta
bimmanum, hristi hausinn og
beið.
„Mamma þín er ekki enn bú-
in að pakka niður.“ Meira man
ég ekki úr draumnum en þetta
atriði er mjög skýrt. Það liðu
ekki margir dagar þangað til
pabbi fór, hann var tilbúinn og
fór 1. október. Mamma var ekki
tilbúin þá, en 8. desember sl.
var hún tilbúin að pakka niður
og fara.
Hún mamma var mikil
handavinnukona, hún saumaði
fötin á okkur krakkana og
prjónaði.
Þegar um hægðist þá fór
handavinnan að breytast. Fyrst
fór hún að mála á dúka en svo
fóru þeir að fæðast einn af öðr-
um, jólasveinarnir hennar. Þeir
gerast ekki fallegri eða betur
unnir, fötin prjónuð á prjóna nr.
2, vettlingarnir með þumlum,
sokkarnir með Halldóruhæl og
svo klæddir í roðskó. Pabbi sá
um áhöldin meðan hann lifði en
þá tók tengdasonurinn við.
Þessir fallegu sveinar sem hún
bjó til eru yfir 1.000 og komnir
víða um heim.
Eftir lát pabba var mamma
ein í Tálknafirði. Það er gott að
hafa skipulag á deginum, hún
vaknaði alltaf kl. níu og horfði á
Glæstar vonir, fékk sér hafra-
grautinn sinn að því loknu. Kl.
eitt settist hún með Íslendinga-
sögurnar og las upphátt fyrir
sjálfa sig í klukkutíma. Ég veit
ekki hvað bækurnar eru margar
en ef ég man rétt þá var hún
komin í bók númer 15 þegar
hún flutti á Hrafnistu í Hafnar-
firði haustið 2014.
Á Hrafnistu tók hún fljótlega
þátt í handverkinu þar og þá
kom í ljós nokkuð sem „hún
vissi ekki að hún gæti“ eins og
hún sagði, því hún byrjaði að
mála 88 ára gömul. Myndirnar
hennar eru ótrúlegar, hvort það
voru börn eða blóm, eftirmyndir
af Van Gogh-málverkum eða
gamall íslenskur bóndabær,
höndin var styrk og drættirnir í
myndunum og litablöndunin
frábær.
En nú er mamma farin í
sumarlandið til endurfunda við
ástvini, endurfunda sem vafa-
laust hafa verið kærkomnir og
langþráðir.
Góða ferð í sumarlandið,
mamma mín, og þakka þér fyrir
allt, Lilla,
Margrét Elín.
Elsku besta amma Nanna.
Sælar eru minningar okkar
um heimsóknir til þín og afa
vestur á Túngötuna á Tálkna-
firði þegar við vorum yngri.
Alltaf tókuð þið hjartanlega vel
á móti okkur, amma yfirleitt
með nýbakað kóngabrauð og
djúsinn tilbúinn til blöndunar í
bronsglösunum, eða þá kjötsúp-
an ilmandi og hlý ef við vorum
seint á ferðinni. Hugsað var til
alls til að dvölin okkar væri hin
besta og skemmtilegasta.
Dugnaðurinn í þeim gömlu
hjónum var aðdáunarverður og
samrýndin mikil og liggja eftir
þau margir fallegir munir. Þar
má helst nefna alla handunnu
jólasveinana sem voru prjónaðir
af ömmu og afi sá um tréverkið
sem fylgdi þeim. Þeir jólasvein-
ar urðu þó nokkuð margir og
prýða þrettán slíkir sveinar
flest öll heimili hjá afkomend-
um, sem hafa eflaust hugsað
hlýtt til þeirra hjóna um jólin
innan um nærveru sveinanna.
Eins vel og tekið var á móti
okkur á Túngötunni þá voru
kveðjurnar þegar við fórum
heim ekki síðri. Þau gömlu
hjónin fylgdu okkur iðulega út
fyrir verönd, kvöddu og veifuðu
til okkar, á meðan við sem í
bílnum sátum keyrðum út göt-
una, horfandi út um aftur-
rúðuna á bílnum, veifandi á
móti.
Það mætti segja að okkur líði
örlítið eins núna, þegar við
kveðjum þig með söknuði í
hinsta sinn.
Við munum svo sannarlega
sakna þín, elsku amma, og
minnast allra góðra minning-
anna sem við varðveitum í
hjörtum okkar um ókomin ár.
Við trúum því og vonum að ást-
vinir okkar sem farnir eru hafi
tekið hlýlega og vel á móti þér í
sumarlandinu góða og vonum að
þú vakir yfir okkur þangað til
við hittumst næst.
Guð geymi þig.
Þínar sonardætur,
Ásta Hrönn og Maríanna
Kristjánsdætur.
Nanna Þrúður
Júlíusdóttir
✝ Hrafnhildur R.Halldórsdóttir
fæddist í Reykjavík
16. janúar 1962.
Hún lést 12. desem-
ber 2018.
Foreldrar Hrafn-
hildar eru Halldór
Hjaltason, f. 12.
mars 1938, og Þór-
dís M. Sigurðar-
dóttir, f. 2. maí
1942. Systir Hrafn-
hildar er Sif Ellen Halldórs-
dóttir Bohne, f. 6. apríl 1965. Öll
búsett í Flórída í Bandaríkjun-
um.
Hrafnhildur var tvígift. Árið
1985 giftist hún Hilmari Hreins-
syni, flugumferðarstjóra, f. 21.
febrúar 1959. Þau slitu sam-
vistum. Börn Hrafnhildar og
Hilmars eru: 1) Ragnar Þór, raf-
virki f. 8. september 1986, 2)
Brynjar, heilbrigðisverkfræð-
ingur, f. 6. september 1988, 3)
Elsa Margrét, læknanemi f. 15.
júlí 1992, maki Bjørnar Krist-
offersen, læknir.
Hún giftist eftirlifandi eigin-
manni sínum árið 2009, Bene-
dikt Gröndal, tæknifræðingi, f.
High School, árið 1980. Hún
lauk A.A.S. gráðu í hjúkrun frá
Suffolk County Community Col-
lege í New York árið 1982 og
kláraði í framhaldi Bachelor of
Science gráðu í hjúkrun frá
Stony Brook University í New
York árið 1988. Hún hafði
áhuga á forystu og stjórnun og
lauk diploma-gráðu í stjórnun
og rekstri í heilbrigðisvísindum
árið 2005. Árið 2015 lauk hún
síðustu gráðunni sinni sem var
frá læknadeild Háskóla Íslands,
meistaragráðu í lýðheilsuvísind-
um (Master of Public Health).
Hrafnhildur starfaði alla tíð
við hjúkrun á ýmsum sviðum,
bráða-, hand- og lyflækninga- og
öldrun. Lengst af starfaði hún
hjá Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins eða yfir 23 ár. Störf
hjá heilsugæslunni voru marg-
þætt m.a verkefnastjórnun í
skólaheilsugæslu, yfirhjúkr-
unarfræðingur á Heilsugæsl-
unni í Mosfellsumdæmi og síðast
sem svæðisstjóri á Heilsugæsl-
unni í Mjódd. Hún var virkur fé-
lagi í Fíh, á árunum 1999-2007
gegndi hún trúnaðarstörfum
m.a í kjaranefnd og samninga-
nefnd Fíh. Hrafnhildur var í
stjórn Rauða krossins í Hafnar-
firði í átta ár. Hún gekk í Odd-
fellow regluna árið 2013.
Útför Hrafnhildar fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag,
28. desember 2018, klukkan 13.
2. október 1963.
Foreldrar Bene-
dikts voru María
Kristín Tómasdótt-
ir, f. 7. desember
1931, d. 25. júlí
2015, og Þórður
Gröndal, f. 20. sept-
ember 1931, d. 21.
júlí 1996. Sonur
Hrafnhildar og
Benedikts er Sig-
urður Andri Grön-
dal, f. 3. október 2007. Fyrri
eiginkona Benedikts var Ragn-
hildur Teitsdóttir, f. 25. janúar
1963, d. 23. janúar 1997. Börn
Benedikts og Ragnhildar eru
Sveinbjörn, f. 8. janúar 1984, d.
26. maí 1984, Ágúst Már, f. 8.
október 1985, og Anna Guðný, f.
24. nóvember 1988. Barnabörn
Benedikts og Ragnhildar heit-
innar eru fimm.
Hrafnhildur ólst upp til sjö
ára aldurs í Reykjavík. Árið
1969 flutti fjölskyldan búferlum
til Bandaríkjanna, þar bjó hún
úti á Long Island í New York, í
tæp 18 ár. Hún flutti ein aftur til
Íslands árið 1984. Hrafnhildur
lauk stúdentsprófi frá Sachem
Elsku besta mamma mín, það
tóm sem ég finn fyrir eftir að þú
kvaddir okkur, er óendanlegt.
Þú varst alltaf kletturinn minn
og þeir sem okkur þekkja vita
hversu sérstakt okkar samband
var. Þú varst svo ótrúleg kona
að orð fá því ekki lýst. Þú hefur
alltaf verið mín fyrirmynd og ég
gæti ekki verið stoltari af þér.
Þú lagðir mikla áherslu á að
standa við orð þín og var alltaf
hægt að treysta því sem þú
sagðir. Þú hefur þurft að takast
á við ýmsa erfiðleika en hefur
alltaf sýnt mikla hörku og styrk-
leika sem fólk dáist að. Ég finn
að það sem knýr mig áfram og
gefur mér styrk kemur frá þér.
Þú hefur hvatt mig áfram og
stutt mig í einu og öllu. Ég er
svo þakklát fyrir að vera dóttir
þín og ég mun gera allt til þess
að láta drauma okkar rætast og
halda áfram að gera þig stolta.
Elsa Margrét Hilmarsdóttir.
Jólaljósin kvikna eitt af öðru
og lýsa upp svartasta skamm-
degið. Aðventan er gengin í
garð með öllum sínum þunga.
Tími tilhlökkunar, tími samveru-
stunda með fjölskyldu og ástvin-
um. Yndislegur tími til þess að
njóta. Skyndilega hverfa öll ljós-
in, tíminn stöðvast og drunginn
færist yfir. Hversu óréttlátt get-
ur lífið verið? Yndisleg kona er
hrifin á braut og eftir sitja ást-
vinir og velta fyrir sér tilgangi
lífsins á þessum fallega árstíma.
Hrafnhildur kom inn í líf
Bensa bróður eftir erfiðan missi.
Dásamlegt var að sjá hvernig
hamingjan færðist yfir hann á
nýjan leik og framtíðin virtist
björt. Ástfangin með blik í aug-
um tilkynntu þau okkur að von
væri á litlu kríli, þá komin vel á
fimmtugsaldurinn. Síðan hefur
Sigurður Andri verið augasteinn
foreldra sinna sem og annarra í
fjölskyldunni. Fjölskyldan var
Hrafnhildi hinn mesti fjársjóður.
Hún var vakin og sofin yfir vel-
ferð hennar.
Hrafnhildur var dugleg að
viða að sér þekkingu og hafði
mikinn áhuga á sínu fagi sem
var hjúkrun. Með dugnaði lauk
hún framhaldsnámi fyrir nokkr-
um árum og komst fljótlega í
mjög krefjandi stöðu hjá Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðisins þar
sem hún starfaði mestallan sinn
starfsferil.
Hún hafði unun af því að
ferðast. Hún gantaðist stundum
með það að hún væri búin að
panta svo margar ferðir og hótel
að það væri eins gott að mæta á
réttum tíma. Hún sótti oftsinnis
ýmiss konar menningarviðburði,
svo sem leiksýningar og tón-
leika, með feðgunum sínum og
er ég sannfærð um að Sigurður
Andri hafi fengið mikið og gott
menningaruppeldi miðað við
jafnaldra sína. Stundum fengu
einnig stóru fullorðnu börnin að
fljóta með.
Hrafnhildur hafði sérlegt dá-
læti á öllu sem var danskt og
„dejligt“ enda rakti hún ættir
sínar til Danmerkur og fór
þangað reglulega til þess að
skoða staði sem tengdust henni.
Stoltið skein úr andliti hennar
þegar hún sagði mér að hún
hefði tekið upp danskt ættar-
nafn.
Hrafnhildur hafði sterkar
skoðanir á málefnum líðandi
stundar. Hún var afar fróðleiks-
fús og jafnframt ákaflega fé-
lagslynd sem sýndi sig í starfi
hennar fyrir Hjúkrunarfélagið
og Rauða krossinn og nú síðast
Oddfellow-regluna.
Það er gott til þess að hugsa
að hún naut lífsins til hinsta
dags. Rétt tveimur vikum fyrir
andlátið var hún í góðu yfirlæti
á Jómfrúnni, eins og svo oft áð-
ur, eftir að hafa fylgst með ball-
ettsýningu í Hörpu.
Ég kveð elskulega mágkonu
mína með trega í hjarta.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem)
Halldóra Gröndal.
Elsku Habbý vinkona. Þakka
þér innilega fyrir góða vináttu
okkar í rúmlega 34 ár. Ég kveð
þig með miklum söknuði og
minningarnar hrannast upp um
þig, sem ég mun ávallt eiga.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt
(V. Briem)
Mínar dýpstu samúðarkveðj-
ur til ykkar, elsku Benedikt,
Ragnar Þór, Brynjar, Elsa Mar-
grét, Sigurður Andri og fjöl-
skyldan öll.
Við yljum okkur við minn-
ingar um hjartahlýju Habbý
okkar sem aldrei mátti neitt
aumt sjá.
Þín vinkona,
Hrönn Helgadóttir
og fjölskylda.
Hrafnhildi, vinkonu minni,
kynnist ég haustið 1995 þegar
við byrjum báðar að vinna á
heilsugæslunni Sólvangi. Þann
örlagaríka eftirmiðdag er við
hittumst í fyrsta sinn er ég
stödd inn á skrifstofu og hún
sest inn og kynnir sig.
Það eru svona augnablik í líf-
inu þegar manneskja bara birt-
ist og eitthvað gerist. Strax er-
um við tengdar með ósýnilegum
þræði örlaganna. Engin orð lýsa
galdri tilverunnar en þeir töfrar
áttu sér stað. Við urðum miklar
sáluvinkonur. Einnig áttum við
það sameiginlegt að báðar hafa
alist upp í Bandaríkjunum og
samtölin okkar voru yfirleitt
bæði íslensk og amerísk.
Langur tími gat liðið á milli
hittinga eða símtala en það var
aldrei eyða í okkar tengingu.
Hrafnhildur var sönn og heil
manneskja og fjölskyldan var
henni mikið kær. Hún hafði allt-
af margt og mikið að gera og
margt og mikið gerðist svo
sannarlega. Tilviljanir og tíma-
mót fléttuðust saman og oft tal-
aði hún um að skrifa ævisögu
sína. Því kaflarnir voru orðnir
margir og hennar frásögn bæði
töfrandi og heillandi.
Ég kveð þig nú, elsku vinkona
mín, og er því varla lýst hversu
mikið ég harma að ekki hafa náð
að kveðja þig. Þó að ég viti fyrir
víst að við eigum eftir að ganga
saman aftur þarna hinum megin
því þá trú áttum við sameig-
inlega.
Ég votta ykkur Benedikt,
Sigurði Andra, Ragnari, Brynj-
ari og Elsu Margréti og fjöl-
skyldum mína dýpstu samúð.
Sigríður S. Gottskálksdóttir.
Þær breytingar urðu á yfir-
stjórn Heilsugæslunnar í Mjódd
2015, að stöðin fékk einn yf-
irmann í stað tveggja, svokall-
aðan svæðisstjóra, og var
Hrafnhildur Halldórsdóttir
hjúkrunarfræðingur fyrir valinu
í starfið. Hér var um nýbreytni
að ræða og bæði starfsmönnum
framandi og hinum nýja yfir-
manni. Þessari ráðstöfun fylgdu
ýmis fyrirmæli frá yfirstjórn
Hrafnhildur R.
Halldórsdóttir
Mig langar í fáum
orðum að minnast
vinar míns Þóris.
Það var hér
snemma í desember að síminn
hringdi. Það var frændi minn
Helgi sem hringdi. „Hann Þórir
er dáinn.“ Þetta var sannarlega
óvænt fregn og hörmuleg, en
þannig var það. Þóri hefi ég
þekkt í tugi ára, allt frá því að
hann var ungur maður. Bezt
kynntist ég honum er ég var við
kennslu á Reyðarfirði.
Þórir var einkar geðugur mað-
ur og bjó yfir margvíslegum
hæfileikum sem nýtzt hefðu hon-
um mæta vel ef hann hefði haft
tækifæri til að rækta þá enn bet-
ur.
Þórir var ágætur leikari, það
sýndi hann mjög vel þegar hann
Þórir Gíslason
✝ Þórir Gíslasonfæddist 4.
nóvember 1943.
Hann lést 4. desem-
ber 2018.
Útför Þóris fór
fram 14. desember
2018.
lék með Leikfélagi
Reyðarfjarðar sem
var leikfélag áhuga-
fólks. Hann söng
gamanvísur af mik-
illi list og hermdi af-
ar vel eftir, ef því
var að skipta, allt yf-
ir í máttarstólpa
stjórnmálanna.
Hann var mjög
greiðugur ef leitað
var til hans um eitt-
hvert verk, vann það vel og hætti
ekki fyrr en því var lokið, hag-
leiksmaður sem hann var. Hann
var einstakt snyrtimenni, heima
hjá honum var allt svo snyrtilegt
og þannig var eins með gripahús-
in hans suður á Nesi, en þar var
hann lengi með kindur sínar.
Það var alltaf einstaklega gott
að koma í heimsókn til Þóris í
Brekku, þar voru veitingar góðar
og maðurinn sjálfur skemmtinn
vel.
Og nú er þessi góði drengur
genginn yfir á annað tilverustig.
Ég kveð hann með söknuði.
Blessuð veri minning hans.
Björn G. Eiríksson.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsam-
lega beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Smellt á Morgunblaðs-
lógóið í hægra horninu efst og
viðeigandi liður, „Senda inn
minningargrein,“ valinn úr felli-
glugganum. Einnig er hægt að
slá inn slóðina www.mbl.is/
sendagrein.
Minningargreinar