Morgunblaðið - 28.12.2018, Side 34

Morgunblaðið - 28.12.2018, Side 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2018 Athafnamaðurinn Lárus Páll Ólafsson fagnar í dag fimmtugs-afmæli sínu. Lárus lauk BA-prófi í heimspeki árið 1995, meist-aragráðu í viðskiptafræði árið 2000, fékk kennsluréttindi árið 2011 og útskrifaðist sem lögfræðingur árið 2016. Lárus starfar í dag sem framkvæmdastjóri Klaka ehf., sem sinnir fjárfestingum og ráðgjöf á alþjóðavísu og sérhæfir sig í hugverkarétti í nýsköpunarverkefnum. Lárus segist ekki hafa ákveðið hvernig hann komi til með að halda upp á afmælisdaginn. „Ég held örugglega einhvern veginn upp á afmælið, ætla að láta daginn koma mér á óvart. Það er svo mikið um að vera í kringum jólin og hátíðarhöldin. Maður heldur bara veislu þegar maður er í stuði til að halda veislu.“ Þá segist Lárus engar áhyggjur hafa af afmælisdeg- inum þó svo að hann hafi ekki neitt ákveðið fyrir stafni. „Það gerist eitthvað skemmtilegt, það gerist alltaf eitthvað skemmtilegt í kringum mig, ég hef engar áhyggjur. Aldur er frekar mældur í vinum en í árum.“ Lárus er giftur myndlistarkonunni Jóní Jónsdóttur, f. 1972, og sam- an eiga þau soninn Frey Lárusson, f. 2013. Ljósmynd/Snorri Bros Feðgarnir Lárus Páll ásamt syni sínum, Frey. Ætlar að láta daginn koma sér á óvart Lárus Páll Ólafsson er fimmtugur í dag J ón Páll Sveinsson fæddist að Hofi á Skagaströnd 28.12. 1933 og ólst þar upp til 10 ára aldurs en þá flutti fjöl- skyldan í Höfðakaupstað. Jón tók landspróf á Reykjum í Hrútafirði 1951, lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1956, var við nám í Kennaraháskólanum í Kaup- mannahöfn 1973-74 og lauk prófi í sér- kennslufræðum við Kennaraháskól- ann í Reykjavík 1990. Jón var kennari á Þórshöfn og á Húnavöllum en lengst af í Höfða- kaupstað þar sem hann var jafnframt skólastjóri í 20 ár. Á námsárunum og framan af starfs- ævinni var Jón sjómaður á sumrin á fiskiskipum, á síldveiðum, handfærum og á togurum. Hann rak hrossabú í Kúskerpi á Refasveit í 20 ár. Nú eru þau hjón skógarbændur á jörðinni. Jón Páll Sveinsson, fyrrverandi skólastjóri – 85 ára Við skírn Jóns Hrafns Jón og Björk ásamt börnum, tengdabörnum og barnabörnum. Á myndina vantar Pál. Skólamaður – við sjó- mennsku og bústörf Gömul fjölskyldumynd Jón og Björk með börnunum í Kaupmannahöfn 1973. Reykjavík Sölvi Ragnar Andrason fæddist 28. apríl 2018 kl. 17.41. Hann vó 4.410 g og var 54,5 cm langur. Foreldrar hans eru Þórunn Inga Kristmunds- dóttir og Andri Jónsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isVatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | sala@postdreifing.is | postdreifing.is FJÖLPÓSTUR SEM VIRKAR *könnun Zenter apríl 2016. 61% landsmanna lesa fjölpóst 70% kvenna lesa fjölpóst 58% neytenda taka eftir tilboðum á vöru og þjónustu í gegnum fjölpóst* Dreifum sex daga vikunnar inn á 80.000 heimili MARKHÓPURINN ÞINN BÍÐUR EFTIR TILBOÐI FRÁ ÞÉR Hafðu samband og við gerum þér tilboð í þá þjónustu sem þér hentar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.