Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 5

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 5
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 5 Ritrýnd grein Eldgos á suðurhálendi á fyrstu öldum byggðar – áhrif í Rangárvalla- og V-Skaftafellssýslum Guðrún Larsen INNGANGUR Innan sýslumarka Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu (1. mynd) liggur afkastamesta eldvirka svæði Ís- lands eftir ísöld, hvort heldur litið er til tíðni og stærðar gosa eða framleiðni á tímaeiningu.1,2 Það nær frá Bárðar- bungu og Grímsvötnum í norðri til Vest- mannaeyja í suðri. Heitið Eystra gos- belti (2. mynd) er gjarnan notað um allt svæðið en því er einnig skipt í Austur- gosbelti og Suðurlandsgosbelti.3 Nyrðri hlutinn, Austurgosbeltið, er fráreksbelti Gosbeltið sem nær frá Bárðarbungu og Grímsvötnum í Vatnajökli suður í Vestmannaeyjar er virkasta eldgosasvæði landsins eftir ísöld, hvort sem horft er til fjölda eldgosa eða magns gosefna. Það liggur að mestu innan marka tveggja sýslna, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu. Allt að 20 eldgos urðu þar á fyrstu þrem öldum byggðar á Íslandi, stór og smá, en fátt segir af þeim og áhrifum þeirra í íslenskum heimildum. Stórt gos, að mestu basískt sprengigos, varð árið 877 eða þar um bil. Gosefnin voru um 5,5 km3 af gjósku sem náði til meira en helmings landsins og nokkur hraun á um 60 km langri gossprungu kenndri við Vatnaöldur og Hrafntinnuhraun. Um 920 varð eldgos í Kötlu í Mýrdalsjökli með gjóskufalli yfir Suðurlandsundirlendið og smágos í Eyjafjallajökli um svipað leyti. Báðum gosunum fylgdu jökulhlaup. Kringum árið 939 kom upp eldgos á um 75 km langri gossprungu, kennt við Eldgjá á Skaftártunguafrétti. Gosið var bæði sprengigos og flæðigos og myndaði meira en 4,5 km3 af gjósku og um 18 km3 af hrauni sem runnu að hluta ofan í byggð. Skömmu síðar urðu jarðskjálftar á Suðurlandsbrotabeltinu. Allt að tíu Grímsvatnagos skildu eftir gjóskulög á þeim tíma sem hér er um rætt, frá um 870 til fyrsta hluta 13. aldar. Hekla tók við sér árið 1104 með stærsta sprengi- gosi sínu á sögulegum tíma og öðru minna 1158. Íslenskar lýsingar á þessum eldgosum og áhrifum þeirra eru stuttar þegar til eru, ein til fjórar setningar, með einni undantekningu. Segja má að ýtarlegustu – en nokkuð ýktar – lýs- ingar á gosum frá þessum tíma og áhrifum þeirra hafi varðveist erlendis. (þ.e. flekamörk með gliðnun) og einnig framsækið gosbelti sem er að fikra sig til suðvesturs inn í Suðurlandsgosbeltið þar sem fráreks gætir lítt eða ekki.3–5 Á fráreksbeltinu kemur þóleítísk bergkvika upp í eldgosum og þar eru tvö eldstöðvakerfi, kennd við Bárðarbungu- Veiðivötn og Grímsvötn (2. mynd, Þórðarhyrna þar talin með Gríms- vötnum). Alkalískari bergkvika úr svo- kallaðri millibergröð er ríkjandi þar sem frárek er lítið eða ekkert og þar eru sex eldstöðvakerfi, kennd við Heklu, Torfa- jökul, Kötlu, Eyjafjallajökul, Tindfjalla- jökul og Vestmannaeyjar.3,6,7 Í öllum eldstöðvakerfunum nema tveim þeim síðastnefndu urðu eitt eða fleiri eldgos á þrem fyrstu öldum eftir norrænt land- nám á Íslandi. Íslenskar heimildir eru þöglar eða fáorðar um eldgos og áhrif þeirra fram undir 1200 (öll ártöl hér e.Kr.) en veigamiklar upplýsingar geymast þó í örstuttum lýsingum. Á landnámsöld eða þar um bil, frá um 870 til um 940, urðu að minnsta kosti átta eldgos og þrjú þeirra höfðu áhrif, mismikil þó, á landkosti á Suðurlandi, með gjósku- falli, hraunrennsli og jökulhlaupum. Mest voru áhrifin þar sem nú heita Vestur-Skaftafellssýsla og Rangárvalla- sýsla (1. mynd). Hér verður fjallað um þessi þrjú gos, Vatnaöldugos frá ~877, Kötlugos frá ~920 og Eldgjárgos frá ~939. Jafnframt verður minnst stuttlega á önnur eldgos á fyrstu þrem öldum byggðar, þar á meðal fyrstu Heklugosin (1. tafla). Hekla var til friðs fyrstu 230 árin en tók svo rækilega við sér með stórgosi árið 1104. Einnig eimdi eftir af áhrifum gosa sem urðu skömmu fyrir landnám þótt þunn jarðvegshula hefði myndast yfir gjóskulög og hlaupset. Jarðvegur á slíkum svæðum þoldi illa ágang manna og húsdýra, en sú saga verður ekki sögð hér. Náttúrufræðingurinn 88 (1–2), bls. 5–18, 2018
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.