Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 8

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 8
Náttúrufræðingurinn 8 efnismestar neðst en dofna og þynnast upp á við. Þær hverfa þó áður en næsta gjóskulag fellur, nefnilega Eldgjár- gjóskan á 10. öld. Þess stóra goss er hvergi getið, hvorki með beinum orðum né í minni af því tagi sem sögnin um vatnagang á Sól- heimasandi í tíð Loðmundar og Þrasa er dæmi um (sjá síðar). Vitnin voru líklega fá og fjarri vettvangi. Nokkurra millimetra þykkt „ryklag“ á túnum land- námsbæjarins í Reykjavík, sem hvarf fljótlega ofan í grasrótina, var ekki efni í sögu. En skuggsýnt hefur orðið í Reykja- vík meðan gjóskufallið varði. LANGALÓN Afleiðingar af Vatnaöldugosinu voru ekki eingöngu gjóskufall og hraun- rennsli. Gossprungan lá þvert yfir farveg Tungnaár sem stíflaðist tímabundið þar sem gígveggir og þykkir gjóskubunkar hlóðust upp í farveginum og beggja vegna hans.8 Hvort Tungnaá var jökulá á þessum tíma skal ósagt látið. Bak við 3. mynd. Landnámslag frá því ~877, um 5,5 km3 nýfallið. Aðeins suðurhluti gjóskulagsins er sýndur hér. Gjóskan sem kom upp í gígum Hrafntinnuhrauns (H) er súr og gulhvít í jarðvegi, hér sýnd í rauðgulum lit. Gjóskan sem kom upp í Vatnaöldugígunum er basísk, grágræn á lit með miklu af tærum kristalbrotum, hér sýnd í grænum lit. Dálítil basaltgjóska sem kom upp í gos- stöðvum við Skyggnishlíðarvatn er ekki sýnd (S). – The Settlement tephra layer ~877, southern part. The yellow-white silicic part that was erupted from the Hrafntinnuhraun (H) site is shown in yellowish colour. The greyish-green, crystal-rich, basaltic tephra from the Vatnaöldur crater rows is shown in green. Basaltic tephra from Skyggnishlíðarvatn craters (S) is not shown here. Isopachs are in centimeters. stífluna myndaðist skammlíft lón í far- vegi Tungnaár og inn eftir dældinni þar sem Veiðivötn eru nú (4. mynd). Strand- línur lónsins, með skoluðum Vatnaöldu- vikri og/eða brimþrepi í gjóskubunkana, sjást enn á nokkrum stöðum þótt víðast hafi ummerkin horfið undir gosefni úr yngra gosi, Veiðivatnagosinu ~1477. Hér er nafngift Guðmundar Kjartanssonar,22 Langalón, höfð um þetta lón en strand- línurnar sem hann lýsti eiga, að minnsta kosti sumar, við yngra og minna lón sem myndaðist eftir gosið ~1477. Gjóskustíflan rofnaði þegar vatn fór að renna yfir hana og lónið tæmd- ist. Hversu hratt þetta gerðist er ekki ljóst en ólíklegt er að rennsli hafi orðið meira en 10.000 m3/sek. Farvegir og vikurrastir sýna að hlaupvatn breiddist út yfir hraunið vestan Tungnaár. Hluti þess fór um og meðfram Tungnaá niður að Sigöldu. Krókslón, fornt stöðuvatn í dældinni þar sem Sigöldulón er nú, ræstist fram í flóðum tengdum Vatna- öldugosinu. Sigöldugljúfur varð til í núverandi mynd og Krókslón tæmdist í kjölfarið. Í könnunargryfjum vegna virkjunarframkvæmda við Sigöldu sást að stórgerða flóðsetið framan við gljúfurkjaftinn, með meira en tveggja metra löngum stuðlum, liggur ofan á loftfallinni Vatnaöldugjósku. Reyndar er nú lítið eftir af grjótinu því mikið af því var nýtt í virkjunarframkvæmd- unum. Vatnsborinn Vatnaölduvikur var í lónsstæði Hrauneyjafossvirkjunar, en lengra var flóðsetið ekki rakið. Engin augljós merki eru um stórflóð niðri í byggð. Flóðið fyllti ekki gljúfur Þjórsár milli Tröllkonuhlaups og Þjófa- foss, og hæsta vatnsborð hefur ekki náð 8–9 metra upp fyrir venjulegt árborð því ekkert vatnsborið efni eða rask er í jarð- vegi ofan á landnámslaginu í þeirri hæð. Linsur af vatnsnúinni gjósku í jarð- vegi rétt ofan landnámslagsins í bakka Þjórsár við Skarfaneslæk gætu verið menjar um tæmingu lónanna, en lengra verður ekki komist að sinni.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.