Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 9

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 9
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 9 4. mynd. A. Langalón var skammlíft 140 km2 lón sem varð til í Veiðivatnadæld og farvegi Tungnaár eftir gosið í Vatnaöldum. Gígar og vikurdyngjur stífluðu Tungnaá þar til vatn fór að renna yfir stífluna og rauf hana. Meira en 1 km3 af vatni flæddi út úr lóninu. Staðsetning ljósmyndar í B sýnd með svörtum depli. – A. Langalón was a temporary 140 km2 lake that formed when the tephra craters on the Vatnaöldur fissure dammed the Tungnaá river. The lake extended along the Tungnaá river bed and into the Veiðivötn depression. The tephra dam was breached when the water overtopped and about 1 km3 of water flooded the lava fields along Tungnaá river. Location of the photograph in B is indicated by a black dot. 4. mynd B. Strandlína Langalóns í austanverðu Tjörvafelli á Landmannaafrétti. Hvít ör bendir á þrepið í strandlínunni. Það er grafið í skolaðan basaltvikur úr Vatnaöldum, á því liggur jarðvegur og yngri gjóska, einnig grjót úr hömrunum ofan við. Strandlínan er í rúmlega 580 m y.s. en kletturinn ofan við nær hæst í 670 m y.s. samkvæmt sömu kortum. – Shoreline of the Langalón lake (white arrow) at approximately 580 m a.s.l. on a hillside. The top of the big rock on the hillside is at 670 m a.s.l. GOS Í KÖTLU OG EYJAFJALLA- JÖKLI Á LANDNÁMSÖLD Katla í Mýrdalsjökli lét á sér kræla minnst tvisvar á landnámsöld. Í litlu Kötlugosi um eða eftir 900 (~905) barst gjóska til suðsuðausturs yfir austan- verðan Mýrdalinn og Mýrdalssand (5. mynd) sem þá var gróið land, að minnsta kosti að hluta. Gjóskan er hvergi þykk- ari en 2 cm þar sem byggð er nú en var þykkari á Mýrdalssandi. Fyrir landnám urðu jökulhlaup vegna gosa í Kötlu- öskjunni bæði um skarð Entujökuls og Sólheimajökuls niður í Markarfljót og Jökulsá á Sólheimasandi en ekkert er vitað um hlaup í þessu fyrsta Kötlugosi á sögulegum tíma. KATLA ~920 Síðla landnámsaldar, um eða eftir 920, kom nokkuð stórt gos í Kötlu. Megin- þykktarás gjóskunnar lá til vestnorð- vesturs yfir Suðurlandsundirlendið og hún barst meðal annars til Reykjavíkur (5. mynd). Gjóskulagið var upphaflega kallað K-R en er nú nefnt K~920. Tíma- setningin er byggð á þykknunarhraða sets milli gjóskulaga af þekktum aldri.23 Gjóskufallssvæði á landi var um 8.400 km2 og rúmmál nýfallinnar gjósku þar um 0,27 km3.24 Heildarrúmmálið var þó mun meira því hluti gjóskunnar féll í sjó. Gjóskan er hvergi þykkari en 5 cm þar sem byggð er nú en kann að hafa verið 10 cm eða meira í Þórsmörk þegar hún var nýfallin. Landnáma nefnir tvo landnáms- menn austan Markarfljóts í Þórsmörk, Ásbjörn og Steinfinn Reyrketilssyni,25 og þar eru fornar byggðarleifar. Einar þeirra eru kenndar við Þuríði tengda- dóttur Ásbjörns sem bendir til að tvær kynslóðir hið minnsta hafi búið þarna, en byggð er ekki talin hafa staðið lengi. Hvort þetta Kötlugos hafði úrslitaáhrif skal ósagt látið. Vestan Markarfljóts, við Einhyrningsflatir, eru einnig fornar byggðarleifar og þar virðist hafa verið byggð fram yfir Eldgjárgos.26 Eins og nefnt var í inngangi voru þykk Kötlu- gjóskulög undir þunnri jarðvegshulu á þessu svæði og ef hún rofnaði varð landið ónýtanlegt til búskapar. Líklega höfðu þessi gömlu Kötlulög meiri áhrif á líftíma þessarar byggðar en K~920 og Eldgjárgosið ~939. Samtímis Kötlugosinu um 920 varð gos í Eyjafjallajökli, líklega á gossprungu við Skerin norðvestantil í jöklinum, og dálítið jökulhlaup niður norðurhlíð hans niður í Langanes og nágrenni.27,28 JÖKULHLAUP TIL SUÐURS UNDAN SÓLHEIMAJÖKLI Jökulhlaup hefur vafalaust einnig fylgt Kötlugosinu ~920. Ummerki eftir jökulhlaup í jarðvegi austan Sól- heimasands, sem sannanlega eru yngri en landnámslagið því hlaupsetið er rétt ofan við það, gætu átt við þetta gos. Það er þó ekki ótvírætt og vel má vera að hlaupið hafi orðið í næsta gosi á eftir, Eldgjárgosinu ~939. Hins vegar eru aðstæður þannig að líklegt má telja að þetta jökulhlaup sé atburðurinn að
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.