Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 31

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 31
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 31 3. mynd. Rof sjávarbakka. Hér sést dæmi þess hvernig sjórinn hef- ur brotið úr Grundabökkum neðan Láganúps. Hér brýtur brimið niður minjar um hina fornu og miklu verstöð Láganúpsver. Hleðslur hrynja og mannvistarlög tapast, sem ekki hafa hreyfst öldum saman. Hér er um að ræða menningarsögulegan skaða sem ekki verður bættur. Ljósm. Eyþór Eðvarðsson. 4. mynd. Rof mannvirkja á landi. Nokkru sunnar á Grundabökkum er fjara stórgrýtt og sandlaus, og bakkarnir lægri. Við breytingarnar tók sjór að hlaupa þar á land í rótarbrimi og hefur á nokkrum stöðum valdið spjöllum. Þetta eru Garðarnir, ævafornt 350 metra langt mann- virki sem til þessa hefur staðið óhaggað. Eins og sjá má hefur brimið valdið rofi og rutt upp grjóti. Þessi spjöll voru lagfærð sumarið 2016. Ljósm. Valdimar Össurarson. 5. mynd. Nokkur þeirra örnefna á landi og miða sem nefnd eru. Helsta verstöð grásleppuútgerðar í Rauðasandshreppi 1970–1990 var á Gjögrum í Örlygshöfn. Þar er bryggjustúfur, og aðstaða fyrir hrogna- verkun var í sláturhúsi Sláturfélagsins Örlygs á staðnum. Einnig var gert út frá Sellátranesi og áður frá Hænuvík og Kollsvík. Helstu neta- mið voru annars vegar þaragarður á grunnsævi innanfrá Gjögrum, út með firðinum sunnanverðum að miðju Blakknesi, og hins vegar sunnantil á Breiðavík. Einnig var netaveiði undir Breið (Landamerkja- hlein), á Kollsvík og norðurundir Kóp (Krossadal). 6. mynd. Á myndinni er afmarkað með grænni línu það svæði á Kolls- vík þar sem þéttastar þarabreiður uxu fyrir 1980. Þar voru þá ágæt grásleppumið í stilltri tíð, en þar sem víkin liggur fyrir opnu hafi var net- um hætta búin þegar jók sjó. Því lögðu þar ekki aðrir en staðkunnugir. Suðvestur af þarasvæðinu (markað með gulu) er svæði þar sem þari er ekki eins þéttur, og víðáttumiklar lænur með skeljasandi inn á milli boða og grynninga. Þar var Gljáin, helstu lóðamiðin meðan róið var úr Kollsvíkurveri um og eftir 1900. Öflugustu hafáttir í Kollsvík eru norðan og vestan, og báðar geta rifið upp mikið brim. Þegar það er sverast er öll víkin hvít af grunnbrotum. Fyrir 1980 kom iðulega fyrir að nokkuð af sandi rótaðist upp á fjörur og í miklum norðansjó bárust dyngjur af þara upp í fjöruna, slitnar af þarasvæðinu norður á víkinni. Þessi sand- og þaraburður hélst þó alltaf í nokkru jafnvægi þar þetta tók út aftur í stillum og aflandsáttum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.