Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 39

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 39
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 39 Erlendis hafa margskonar plöntu- eiturtegundir verið prófaðar gegn skógarkerfli í gegnum tíðina. Niður- stöður þessara prófana hafa verið nokkuð misvísandi. Sum efnin hafa gefið góða raun, að minnsta kosti tímabundið, en árangur af öðrum hefur ekki staðið undir væntingum.27,29 Erlendar rann- sóknir hafa sýnt að svo virðist sem hefðbundið tvíkímblöðungaeitur (t.d. mecoprop-P og chlorfurecol-methyl) geti haft tímabundin áhrif á vöxt skógar- kerfils en nái ekki að eyða skógarkerfli varanlega af tilteknu svæði.21,29 Eit- urtegundir sem innihalda virka efnið glýfosat virðast vera þær einu sem geta drepið eldri skógarkerfilsplöntur og eytt þeim þannig af tilteknu svæði, að því gefnu að ekki verði samhliða nýliðun frá fræforða eða fræregn úr nágrenninu.31,33 Glýfosat er breiðvirkt plöntueitur sem fyrst kom á markað um 1974 og hefur verið mikið notað í land- búnaði um allan heim.32,33 Þekktustu plöntueitrin hér á landi sem innihalda glýfosat eru Roundup og Clinic og hafa þau einkum verið notuð hingað til í bar- áttunni gegn skógarkerfli. Í innlendri rannsókn þar sem prófuð voru tvenns konar plöntueitur, annars vegar hefð- bundin tvíkímblöðungaeitur og hins vegar eitur með glýfosati, kom í ljós að áhrifaríkasta eitrið innihélt glýfosat.16 Skógarkerfill er afar útbreiddur í Eyjafirði enda er jarðvegur þar frjó- samur og veðurfar almennt fremur hagstætt (2. mynd). Útbreiðsla hans í Eyjafirði er gott dæmi um hve hröð framvinda skógarkerfils getur verið. Landeigendur þar tala margir um að á einungis 5–6 árum nái stök skógar- kerfilsplanta að verða að skógarkerf- ilsbreiðu, sé ekkert að gert. Á árunum 2007–2014 stóð sveitarstjórn Eyja- fjarðarsveitar fyrir átaksverkefni þar sem markmiðið var að hefta útbreiðslu skógarkerfils í sveitarfélaginu, en að auki var unnið að því að safna gögnum um eðli plöntunnar, útbreiðslu og ár- angur við eyðingu. Talsverðir fjármunir voru settir í átaksverkefnið og í það fékkst styrkur á fjárlögum frá ríkinu. Markmið rannsóknanna voru fjórþætt. Þar skyldi athuga a) útbreiðslu skógar- kerfils í vegköntum í Eyjafirði, b) hvort hægt væri að eyða skógarkerfli af svæði með endurtekinni notkun á plöntueitri nokkur ár í röð, c) hvaða tímasetningar hentuðu til úðunar, og d) hvort styrk- leiki plöntueiturs skipti máli. AÐFERÐIR Þær niðurstöður sem hér verða kynntar byggjast á þremur sjálfstæðum rannsóknarverkefnum sem öll fóru fram í Eyjafirði á árunum 2011–2014. Skógarkerfill í vegköntum: Í grein frá árinu 2006 greindu Sigurður H. Magn- ússon16 og félagar frá því þegar ekið var eftir stofnbrautum nokkurra sveitar- félaga í Eyjafirði árið 2005 og lagt mat á umfang og þéttleika skógarkerfils- brúska í vegköntum. Í kjölfar átaks- verkefnisins í Eyjafjarðarsveit var ákveðið að endurtaka þetta mat árið 2011 (sex árum síðar) og fara sömu leiðir 3. mynd. Yfilitskort af Eyjafirði. Svarta línan sýnir þá þjóðvegi sem eknir voru við talningu á skógarkerfilsbrúskum. Gulu punktarnir sýna staðsetningu úttektarreita eftir mismargar úðanir með plöntueitri og rauði punkturinn sýnir Kaupang þar sem til- raun með tímasetningar úðunar og styrk plöntueiturs fóru fram. – An overview map of Eyjafjördur. Black line represents driven roads when counting cow parsley patches. Yellow dots show the location of experimental plots and the red dot shows the location of Kaupangur where the main experiment took place. (Kort/Map: BB). 2. mynd. Skógarkerfilsbreiður (ljósir flekkir) í landi Knarrabergs og Kaupangs í Eyjafjarðarsveit – Cow parsley (white patches) in Knarraberg and Kaupangur in Eyjafjardarsveit, N-Iceland. (Ljósm./Photo: JIC).

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.