Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 40
Náttúrufræðingurinn
40
4. mynd. Horft yfir rannsóknarsvæðið í Kaupangi frá suðri til norðurs. Myndir teknar að vori, sumri og hausti.
An overview of the experimental area in Kaupangur. Photos taken at spring, summer and autumn (Ljósm./Photo: BB).
30. maí 2012 1. júlí 2012 20. ágúst 2012
til að meta hvort einhverjar breytingar
hefðu orðið á útbreiðslu skógarkerfils
í vegköntum. Ekið var frá Öxnadals-
heiði um Akureyri út Svalbarðsströnd
að Grenivík, frá Þelamörk að Dalvík og
loks voru eknir hringir inn Svarfaðar-
dal og Eyjafjarðarsveit (3. mynd). Sam-
tals nam þessi vegalengd um 200 kíló-
metrum og var ekið um fimm sveitar-
félög: Dalvíkurbyggð, Eyjafjarðarsveit,
Grýtubakkahrepp, Hörgársveit og Sval-
barðsstrandarhrepp. Sjáanlegir skógar-
kerfilsbrúskar í vegköntum voru taldir
og breytingar metnar sem fjöldi brúska
á hvern ekinn kílómetra.
Gróðurgreining og þekjumat í út-
tektarreitum: Vorið 2011 voru lagðir
út sextán 1×1 m reitir á átta svæðum
í Eyjafjarðarsveit og Hörgársveit þar
sem vitað var að kerfill hafði vaxið um
nokkuð langt skeið (3. mynd). Þessi
svæði voru valin út frá upplýsingum frá
landeigendum sem allir höfðu unnið
að því í nokkur ár í röð að hefta þekju
skógarkerfils með úðun á viðkomandi
svæði. Settir voru út reitir sem höfðu
verið úðaðir árlega í 1–4 ár (þ.e. einföld
úðun, 1×, eða endurtekin úðun, 2× eða
3–4×) á árunum 2007–2010, auk sam-
anburðarreita. Reitur sem hafði verið
úðaður einu sinni var úðaður árið 2010,
reitir sem höfðu verið úðaðir tvisvar
voru úðaðir árin 2010 og 2009 o.s.frv.
Við úðunina hafði í öllum tilfellum
verið notað plöntueitur sem innihélt
glýfosat. Að loknu svæðavali um vorið
voru reitirnir heimsóttir reglulega yfir
vaxtartímabilið sumarið 2011, háplöntu-
gróður í þeim greindur til tegunda og
þekja einstakra tegunda metin sem
hlutfall (%) yfirborðs í hverjum 1x1 m
reit. Auk þess voru teknar ljósmyndir
af reitunum. Svæðin voru ólík, sum í
vegkanti, önnur við lækjarfarveg og
enn önnur í óræktuðu landi. Af þessum
sökum, sem og vegna ótraustra upplýs-
inga um forsögu úðunar, voru svæðin
ekki að fullu samanburðarhæf og því
var ekki gerð tölfræðileg úttekt á mark-
tækum muni milli svæðanna.
Áhrif af mismunandi styrkleika eit-
urs og tímasetningu úðunar á þekju
skógarkerfils: Viðamesta rannsóknar-
verkefnið hófst í apríl 2012 og fór fram
í landi Kaupangs í Eyjafjarðarsveit, inni
í miðri stórri og samfelldri skógarkerf-
ilsbreiðu sem þar vex í aflögðum kart-
öflugörðum. Við upphaf rannsóknanna
var ekki að finna neinn annan gróður
en skógarkerfil innan rannsóknarreit-
anna (2. og 4. mynd). Þetta er eitt fyrsta
svæðið í sveitarfélaginu þar sem skógar-
kerfill náði að mynda stórar samfelldar
breiður.
Í tilrauninni var upphaflega unnið
með tvo meðferðarliði, annars vegar
styrkleika við blöndun plöntueiturs
og hins vegar tímasetningu úðunar.
Einungis var notað plöntueitur með
virka efninu glýfosati. Við blöndun
voru höfð þrjú styrkleikastig, 1:120 (veik
lausn), 1:100 (miðlungssterk lausn) og
1:80 (sterk lausn). Samanburðarreitir
fengu ekkert eitur. Úðun fór fram á sex
ólíkum tímasetningum. Fyrsta úðunin
fór fram 10. maí 2012 og síðan var úðað
fimm sinnum í viðbót á 10 daga fresti,
allt til 1. júlí 2012. Þriðji meðferðarliður-
inn bættist svo við síðar, en í honum var
horft á áhrif af endurtekinni úðun innan
sama árs.
Tilraunin var sett upp í reitaformi
og var hver reitur 20 fermetrar (2×10
m) að stærð. Samtals voru reitirnir 48
sem merkir að einungis var um að ræða
tvær sannar endurtekningar af öllum
meðferðarliðum (n=2). Tilviljun réð
röð meðferða innan hverrar endur-
tekningar. Líkt og fyrr greinir var úðað
tiltekna daga á tímabilinu frá vori fram
á sumar. Til að leggja mat á árangur
tvöfaldrar úðunar sama ár var öllum
reitunum skipt í tvennt (2×5 m) þann
20. ágúst 2012 og helmingur hvers
reits (óháð því hvenær fyrri úðun hafði
farið fram) úðaður aftur með miðlung-
ssterkri lausn af glýfosati. Tilviljun var
látin ráða því hvor helmingurinn var
úðaður aftur.
Úðað var með hefðbundinni hand-
knúinni úðunardælu. Úðunin sjálf, sem
og meðhöndlun plöntueitursins fylgdi
leiðbeiningum seljanda. Úttekt fór fram
þrisvar sumrin 2012 og 2013 og loka-
mat var framkvæmt í júní árið 2014. Við
úttektina var lagt sjónrænt mat á yfir-
borðsþekju skógarkerfils í viðkomandi
reit á skalanum 0–100%, námundað að
næsta tug.
Líkt og fyrr greinir var einungis um
að ræða tvær sannar endurtekningar
af hverjum meðferðarlið (n=2) og því
var einungis hægt að skoða meðaláhrif
af einum tilraunalið þvert á hinn til-
raunaliðinn (t.d. hafði munur á styrk-
leika eiturs samtals 12 endurtekningar
fyrir 6 mismunandi tímasetningar).
Framsetning niðurstaðna endurspeglar
þessa úrvinnslu. Við tölfræðilegt upp-
gjör var notast við tölfræðiforritið SAS
9.4. Eftir að hafa gengið úr skugga um
að gögnin uppfylltu skilyrði fervika-
greininga, var tvíþátta fervikagreining
notuð við úrvinnslu á áhrifum tíma-
setningar eitrunar og styrkleika. Þegar
fram komu marktæk áhrif eða samspil