Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 42

Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 42
Náttúrufræðingurinn 42 6. mynd. Meðaláhrif af einni vor- eða sumarúðun með mismunandi styrkleikum eiturs á þekju skógarkerfils að hausti sama árs (20. ágúst 2012) og vorið eftir (6. júní 2013). Mismunandi bókstafir innan hvorrar úttektar tákna marktækan mun á milli styrkleikaliða (p<0,05). – The average effect of herbicide in spring or summer, on the vegetation cover of cow parsley at two timepoints. The different letters above columns indicate a significant differnece between treatments (p<0,05). inn komu plöntutegundir sem einkenna frjósöm röskuð svæði, svo sem njóli, túnfífill, arfi og ýmis grös (5. mynd). Á svæðum þar sem einungis hafði verið úðað einu sinni eða tvisvar var skógar- kerfilinn hins vegar nánast einráður yfir vaxtartímabilið þó að stundum yxu með honum fáeinar aðrar tegundir í upphafi og við lok tímabilsins, svo sem hvönn og elfting. Áhrif af mismunandi styrkleika eiturs og tímasetningu úðunar á þekju skógar- kerfils: Niðurstöður af meðaláhrifum einfaldrar úðunar með mismunandi styrkleika eiturs, óháð úðunartíma, eru sýndar á 6. mynd. Þar má sjá að úðunin sjálf hafði alltaf mikil og marktæk áhrif til lækkunar á þekju skógarkerfils, bæði í ágúst sama ár sem og í upphafi vaxt- artímabilsins árið eftir (6. mynd; aðal- meðferð „styrkleiki“ p<0,001; munur milli samanburðarreita og reita sem fengu eitur). Veik eða meðalsterk lausn hafði hins vegar ekki marktækt ólík áhrif þegar munurinn var greindur með LSD-prófum (6. mynd, p=0,51 og p=0,24). Í úttekt á fyrsta hausti mátti sjá nokkuð meiri áhrif af sterkustu lausn- inni (p=0,07), nær marktæk, en þau áhrif reyndust horfin vorið eftir (2013; p=0,79). Því næst voru skoðaðar niðurstöður af meðaláhrifum einfaldrar úðunar á mismunandi tímasetningum, frá 10. maí til 1. júlí, óháð styrkleika eiturs, á þekju skógarkerfils síðsumars og vorið eftir. Ekki var marktækur munur milli reitanna, hvorki í ágúst né næsta vor (7. mynd; p=0,11 og p=0,18), og samspil við styrkleika var ekki heldur mark- tækt (p=0,22 og 0,59). Því var ekki gerð frekari tölfræðileg greining á því hvort munur væri eftir úðunartíma. Áhrifin af einfaldri úðun, óháð styrkleika og tímasetningu, voru því þau að þekja skógarkerfils minnkaði að jafnaði um 55% þegar hún var metin í lok ágúst sama haust og um 58% í upphafi vaxtar- tímabilsins næsta vor. Vorið eftir tvöfalda úðun í Kaupangi hafði þekja skógarkerfils minnkað um 78% miðað við viðmiðunarreiti (aðal- meðferð „styrkleiki“ p<0,001; munur á viðmiði við aðra reiti) og aftur var ekki að sjá að styrkleiki lausnarinnar í fyrri úðuninni hefði haft nein mark- tæk áhrif á þekjuna (8. mynd; p>0,45). Svo brá við að áhrif tímasetningar fyrri úðunar reyndist marktæk þegar henni hafði verið fylgt eftir með haustúðun (9. mynd; aðalmeðferð „tímasetning“ p<0,027). Þessi marktæku áhrif komu þannig fram að lægri þekja fékkst að jafnaði þegar fyrri úðun hafði farið fram á tímabilinu 20. maí til 10. júní, eða 88% samdráttur á þekju í stað 78%. Þessar niðurstöður féllu nokkuð vel að tilhneigingunni í gögnunum eftir fyrri úðun. Tímasetning úðunar virðist því geta skipt máli fyrir árangurinn, þó að áhrifin séu ekki mikil (9. mynd). Niðurstöðurnar úr úttektinni 14. ágúst 2013, um ári eftir seinni úðun, voru hins vegar talsvert frábrugðnar (8. og 9. mynd). Þá voru úðunaráhrifin að stórum hluta gengin til baka og sam- dráttur í þekju skógarkerfils var einungis um 21% miðað við ómeðhöndlaða sam- anburðarreiti. Þá brá svo við að þar sem veikasta lausnin var notuð í upphafi reyndist kerfillinn hafa marktækt lægri þekju en þegar notuð var meðalsterk eða sterk lausn. Munurinn var þó lítill og því óvarlegt að draga af þessu miklar ályktanir. Í seinni úttektinni komu aftur fram marktæk áhrif milli tímasetningar fyrri úðunar og þekju skógarkerfils eftir eitt ár (9. mynd; aðalmeðferð „tímasetn- ing“ p<0,005). Þar sem fyrst hafði verið úðað eftir 20. júní var þekja skógarkerf- ils orðin 93% að meðaltali ári eftir seinni úðun (9. mynd), og var ekki marktækt frábrugðin samanburðarreitum. Allir reitir sem höfðu verið úðaðir fyrr höfðu hins vegar marktækt lægri skógarkerf- 7. mynd. Meðaláhrif af einni úðun á tímabilinu 10. maí til 1. júlí 2012 á þekju skógarkerfils að hausti sama árs (20. ágúst 2012) og vorið eftir (6. júní 2013), óháð styrkleika eiturs. – The average effect of her- bicide used from 10th of May until 1st of July 2012, on the vegetation cover of cow parsley at two timepoints.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.