Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 44

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 44
Náttúrufræðingurinn 44 vatn og þaðan í menn og skepnur.35,36 Nýlegar rannsóknir benda til þess að tengja megi aukna tíðni ýmissa krabba- meina í mönnum við mikla notkun á glýfosati.37 Nú er svo komið að mörg ríki í Evrópu vinna að því að banna notkun á plöntueitri með virka efninu glýfosati. Enn sem komið er hefur slíkt bann ekki tekið gildi, en mikilvægt er að fylgjast vel með þessum málum. Almennt er óæskilegt að nota eitur í vistkerfum, og slík notkun skekkir samkeppnisstöðu annarra plöntutegunda í viðkomandi vistkerfi.34 Eftir að umræðan um nei- kvæð umhverfisáhrif plöntueitursins komst í hámæli hér á landi34,36 þótti ekki ástæða til að halda átaksverkefninu í Eyjafjarðarsveit áfram af sama þunga og því fjaraði undan því fljótlega eftir árið 2014. Er hægt að eyða skógarkerfli? Meðan á átaksverkefni Eyja- fjarðarsveitar stóð (2007–2014) varði sveitarfélagið talsverðum fjármunum til verksins, enda er baráttan við skógar- kerfil bæði tímafrek og kostnaðarsöm. Lítið var um rannsóknarniðurstöður um vistfræði plöntunnar og eyðingu hennar hér á landi og því þurfti að byggja upp þekkingu um leið og unnið var að verk- inu. Þær niðurstöður erlendra rann- sókna sem teknar voru saman í inngangi voru hluti af þessari þekkingaröflun. Þar kemur fram að það er helst úðun með glýfosati sem hefur skilað árangri erlendis.27,32 Í bandarískri rannsókn kemur þó fram að bestur árangur náð- ist þegar beitt var þremur aðferðum saman, þ.e. slætti, úðun og loks sáningu í svörðinn,27 en sambærilegar rannsóknir hafa ekki farið fram hérlendis. Aðrar að- ferðir sem hafa verið reyndar erlendis eru t.d. plæging og jarðvinnsla, að slíta plöntur upp með höndum, bruni o.fl.,21 en árangur þessara aðgerða hefur oftast verið takmarkaður til lengri tíma litið. Líkt og hjá lúpínunni virðist hefð- bundin haga- og úthagabeit takmarka lífslíkur hjá fræplöntum skógarkerfils. Frekari rannsóknir skortir enn til að hægt sé að fullyrða þetta með nægilegri vissu. Markviss stýring hefðbundinnar landnýtingar er því væntanlega áhrifa- mikil aðgerð til að takmarka óvelkomið landnám tegundarinnar. Niðurstöður okkar sýna að vissulega má ná árangri við eyðingu skógarkerf- ils til skamms tíma með endurtekinni glýfosatúðun í fleiri en eitt ár. Þessi leið er þó síður en svo gallalaus út frá um- hverfissjónarmiði, líkt og fram hefur komið. Ályktunin er því sú að erfitt sé að eyða skógarkerfli varanlega af til- teknu svæði en mögulega megi hafa áhrif á útbreiðslu hans með því að beita blönduðum aðferðum, svo sem beit, slætti, sáningu og notkun viðarkurls (sjá síðar), en forðast eigi að nota plöntueitur. Skipta tímasetning, fjöldi úðana og styrkleiki eiturblöndu máli? Í rannsóknum á alaskalúpínu hefur komið fram að hægt er að eyða henni ef hún er slegin á ákveðnu stuttu tímabili snemmsumars þegar orkuforði í rótar- kerfi hennar er í lágmarki.38,39 Í nýlegri grein um lúpínu kemur fram að bæði sláttur og úðun með plöntueitri skiluðu lægri þekju í lúpínubreiðum.40 Í þeirri rannsókn var þó einungis úðað einu sinni á hverju vaxtartímabili eða þegar lúpínan var langt komin með blómgun. Í annarri tilraun þar sem lúpína var úðuð náðist bestur árangur þegar úðað var um mitt sumar og allra bestur þar sem notuð var meðalsterk lausn af plöntu- eitrinu.41 Allt eins mátti búast við því að tímasetning eitrunar gæti haft áhrif á lifun skógarkerfils og því var mikil áhersla lögð á þennan rannsóknarþátt í skógarkerfilsverkefninu. Niðurstöð- urnar sýndu hins vegar að tímasetning úðunar var almennt ekki afgerandi fyrir árangurinn og þegar einungis var úðað einu sinni var munurinn ekki mark- tækur. Þó gáfu niðurstöður eftir tvö- falda úðun til kynna að í þeim reitum þar sem skógarkerfillinn var úðaður mjög snemma eða mjög seint voru áhrifin marktækt minni. Ekki var athugað hvort um var að ræða nýjar fræplöntur eða eldri plöntur sem höfðu vaxið aftur upp. Í heild má þó álykta að úðun á bilinu 30. maí til 10. júní skili bestum árangri. Erlendar rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að endurtaka úðun við eyðingu skógarkerfils.21,27 Það passar vel við vísbendingar úr úttektinni á gróð- urþekju svæða í Eyjafirði sem höfðu fengið endurtekna úðun með glýfosati. Þar þurfti þó tíðari úðun en tvöfalda til þess að veruleg áhrif sæjust á þekju skógarkerfils og landnám annarra plöntutegunda. Í tilrauninni í Kaupangi voru áhrifin af endurtekinni eitrun um- talsverð á fyrri úttektinni (ágúst, 2013), en tæpu ári síðar síðar ( júní, 2014) kom fram í lokaúttekt á öllum reitum að þekja skógarkerfils var ekki marktækt frábrugðin ómeðhöndluðu reitunum. Ályktunin er því sú að áhrifa tvöfaldrar úðunar sama ár, gætir ekki nema í um eitt ár. Tveimur árum síðar sjást engin merki um úðun þannig að áhrifin urðu mjög skammvinn. Til þess að ná lang- tímaárangri með úðun hefði væntanlega þurft að halda henni áfram í nokkur ár og úða stærra samfellt svæði til að koma í veg fyrir fræframleiðslu annars staðar á svæðinu. Ólík styrkleikastig eiturblöndu gáfu mjög svipaðar niðurstöður í tilrauninni í Kaupangi. Það er í samræmi við niður- stöður úr lúpínutilraun þar sem fram kom að ekki reyndist marktækur munur á milli áhrifa meðalsterkar og sterkar lausnar.41 Ályktunin er því sú að fylgja skuli leiðbeiningum framleiðenda um blöndun eitursins og nota meðalsterkar lausnir. Hver verður fram- vinda skógarkerfils? Niðurstöðurnar úr endurtekinni talningu skógarkerfilsbrúska í veg- köntum árið 2011 bentu sterklega til þess að skógarkerfill væri almennt að breiða úr sér í Eyjafirði. Áhugavert hefði verið að endurtaka úttektina árið 2017 og sjá hver þróunin hefur verið síðustu sex árin. Einnig væri það verð- ugt verkefni að nota fjarkönnunar- gögn til að áætla heildarútbreiðslu tegundarinnar á landsvísu, svipað og gert var nýlega fyrir alaskalúpínu.42 Þær upplýsingar sem liggja fyrir um núverandi útbreiðslu skógarkerfils eru brotakenndar.19 Almennt virðist skógarkerfill gera talsverðar kröfur til frjósemi jarðvegs. Þær kröfur setja honum þrengri útbreiðslumörk en til dæmis alaskalúpínu.43,44 Hæð skógarkerfilsins og talsvert skuggþol gera honum kleift að taka yfir algróið land þar sem ljóselsk- ari tegundir vaxa. Kröfur um mikla frjósemi vekja hins vegar upp þá spurn- ingu hvort það séu ekki einmitt gamlar lúpínubreiður sem geta orðið stærstu mögulegu útbreiðslusvæðin hérlendis. Slíkt samspil, þ.e. að ein ágeng tegund ýtir undir útbreiðslu annarrar, er vel þekkt úr fræðunum.45

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.