Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 46
Náttúrufræðingurinn
46
Hvað tekur svo við þegar skógar-
kerfill hefur verið ríkjandi í landinu um
skeið? Litlar upplýsingar er að finna
um framvindu í skógarkerfilsbreiðum
til lengri tíma litið. Í náttúrulegum
heimkynnum virðist mega rekja aukna
útbreiðslu kerfilsins til aukins köfn-
unarefnis í jarðvegi, sem oftast tengist
breyttri landnýtingu.7 Skógarkerfill á
sér stutta sögu á Íslandi og því er í raun
lítið vitað um framvindu hans hérlendis
til lengri tíma litið. Til dæmis er ekki
ljóst hvernig honum vegnar í gömlum
lúpínubreiðum sem hann hefur tekið
yfir. Gisnar kerfillinn þegar hægir á hr-
ingrás köfnunarefnis á svæðinu eftir
að lúpínan hopar? Eða helst köfnun-
arefnishringrásin nægilega hröð til að
viðhalda kerflinum á svæðinu?
Erfitt getur verið að draga með
beinum aðgerðum úr því magni köfn-
unarefnis sem plöntum er aðgengilegt
í jarðvegi á hverjum tímapunkti. Þó er
þekkt að þegar C/N-hlutfall í jarðvegi
eða yfirborðslagi hækkar snögglega, þá
dregur tímabundið úr hraða hringrásar-
innar. Þetta gerist fyrir tilstilli niður-
brotsörvera sem binda mikinn hluta
aðgengilegra næringarefna til að brjóta
niður lífræna efnið (C) og getur slík
binding leitt til þess að tímabundið dragi
úr frjósemi jarðvegsins.46 Þannig mætti
nota viðarkurl til að hækka C/N-hlutfall
í skógarkerfilsbreiðum og athuga hvaða
áhrif það hefur á gróðurframvindu.
Á að reyna að stýra út-
breiðslu skógarkerfils?
Rannsóknir hafa sýnt að landnám
ágengrar plöntu hefur í för með sér
ýmsar breytingar í vistkerfi landnáms-
svæðisins.45 Ágenga plantan verður yf-
irleitt einráð og dregur úr líffræðilegri
fjölbreytni á viðkomandi svæði til fram-
búðar. Hún ryður úr vegi náttúrulegum
tegundum og getur ógnað bæði fuglalífi
og berjalöndum. Í íslenskri rannsókn
þar sem borinn var saman þéttleiki fugla
og smádýra í ógrónu landi, endurheimtu
mólendi og lúpínubreiðum, kom þó
fram að þéttleikinn var mestur í lúpínu-
breiðunum.47 Ekki er til sambærileg
rannsókn um skógarkerfilsbreiður. Í
fræðum um stýringu ágengra tegunda
er ítrekað fjallað um mikilvægi þess
að koma í veg fyrir landnám ágengra
plantna. Þetta skal gera með því að af-
marka það svæði sem halda skal ágengu
tegundinni frá og eyða stökum plöntum
sem þangað berast. Mikilvægt er að
hindra frædreifingu frá upprunastað
og fjarlægja plöntur við ár og læki til
að koma í veg fyrir dreifingu fræja með
vatni. Einnig ætti að uppræta plöntur
í vegköntum til að koma í veg fyrir
dreifingu meðfram vegum.48
Einungis lítill hluti innfluttra plöntu-
tegunda verður ágengur,2 þ.e. breiðist
hratt út af eigin rammleik inn á svæði
þar sem þeirra er ekki óskað og þar sem
líklegt er að þær valdi umhverfislegu,
efnahagslegu og/eða heilsufarslegu
tjóni. Það er skoðun greinarhöfunda
að jafn-sjálfsagt sé að finna leiðir til að
halda aftur af útbreiðslu slíkra tegunda
og að verja fjármunum og tíma til rækt-
unar annarra innfluttra tegunda sem
hafa í för með sér umhverfislegt, efna-
hagslegt og/eða heilsufarslegt gagn í
garðrækt, landbúnaði, landgræðslu og
skógrækt.
Við aðgerðir til að útrýma ágengum
framandi plöntutegundum þarf að
taka mið af kostnaði við verkið, af því
tjóni sem ágengu tegundirnar valda
og af hugsanlegum áhrifum af sjálfri
eyðingunni. Það er vandséð að aukin
útbreiðsla skógarkerfils hafi mikil nei-
kvæð efnahagsleg eða heilsufarsleg áhrif
hérlendis. Neikvæð áhrif frá skógar-
kerfli eru því einkum umhverfisleg. Í
Eyjafjarðarsveit fjaraði hægt og rólega
undan átaksverkefninu þegar farið var
að meta hvort hugsanleg neikvæð um-
hverfisáhrif mikillar og endurtekinnar
notkunar plöntueiturs yrðu meiri en þau
neikvæðu áhrif sem kerfillinn sjálfur
hefur á umhverfið, ekki síst í ljósi þeirrar
óvissu sem enn ríkir um framvindu hans
til lengri tíma litið. Enn er því mikil þörf
á frekari rannsóknum, þar sem leitað er
að öðrum og umhverfisvænni leiðum en
úðun með plöntueitri, til að ná árangri
við stýringu á útbreiðslu skógarkerfils.
Hugsanlega má skapa slíkar leiðir með
einhvers konar blöndu af stýrðri beit,
slætti og sáningu að vori og sumri. Forð-
ast ætti að nota plöntueitur.
ENGLISH SUMMARY
The effect of herbicide use
on the cover of Cow parsley
Cow parsley (Anthriscus sylvaticus)
is defined as an invasive alien species
in Iceland. It was first introduced in
Iceland at the beginning of last century
and has, since then, spread widely and
is currently found in all parts of Ice-
land. Cow parsley is especially prone
to invade disturbed, nutrient rich hab-
itats that have limited grazing pressure,
such as roadsides, abandoned hayfields
and Nootka lupin (Lupinus nootkaten-
sis) fields. Warmer climate and lower
grazing pressure possibly explain its in-
creasing distribution in Iceland the past
few decades. Cow parsley is a tall herb
and reproduces both from seeds and
from root buds. In 2007 the municipal-
ity Eyjafjarðarsveit in N-Iceland started
a research project on how to control the
distribution of cow parsley using her-
bicide. Specific aims of the study were
to a) map the distribution of cow pars-
ley on roadsides within the Eyjafjörður
district, b) find out if repeated use of
herbicide (3–4x) would permanently
decrease the cover of cow parsley,
c) find out which dates of applying the
herbicide would give the best results,
and d) find out if stronger mixtures of
the herbicide gave better results. Our
results showed that during a 6-year
period, the distribution of cow pars-
ley patches at roadsides had increased
on average by 62% in the Eyjafjörður
district in general, but least within the
municipality Eyjafjarðarsveit (19%),
where active measures had been taken
to eradicate it. Repeated application of
herbicide (glyphosate) did only tem-
porarily decrease the cover of cow
parsley and this method is therefore
not suitable for permanently eradi-
cating the species from a certain area.
The spraying gave the best results, al-
though only with short-term effect, if
applied at the end of May or beginning
of June. A stronger mixture of the her-
bicide gave better results, but also those
effects were only short-term. When
controlling invasive alien species, it is
very important to consider the harm
from the invasive species relative to the
potential harm that can possibly arise
from using a herbicide. The authors
recommend using mixed methods, like
grazing and cutting, and perhaps seed-
ing of other plant species, when trying to
decrease the cover of cow parsley. The
use of herbicide is not recommended.