Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 50

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 50
Náttúrufræðingurinn 50 svæðum því að margar þeirra eiga þar meiri möguleika en á beittu landi.15–17 Því er viðbúið að með tímanum breytist gróður beitarfriðaðra hólma og eyja og gefi þá ekki jafngóða mynd af gróðri sem hefur þróast á undanförnum öldum án mikilla áhrifa mannsins. Beitarfriðaðir hólmar eru hvorki margir né stórir en sérstæðir að gróð- urfari og má því ætla að þeir hafi mikið verndargildi. Því er brýnt að kanna gróður þeirra til að fá yfirlit yfir þau verðmæti sem í þeim eru fólgin. Megintilgangur rannsóknarinnar var að kanna og lýsa gróðri í tveimur beitarfriðuðum hólmum í Árnessýslu, Bláfellshólma í Hvítá og Koðralækj- arhólma í Tungufljóti, bera saman flóru þeirra og fjórtán annarra beitarfriðaðra hólma sem áður hafa verið kannaðir og athuga tengsl flórunnar við nokkra um- hverfisþætti. Auk þess voru athugaðar breytingar sem orðið hafa á gróðri í hólmunum hin síðari ár (1. mynd). 1. mynd. Hólmar sem fjallað er um í greininni. – Location of the 16 islands studied. RANNSÓKNARSVÆÐI Bláfellshólmi Bláfellshólmi er í Hvítá í Árnessýslu sunnan við Bláfell, á mörkum afrétta Biskupstungna og Hrunamanna (1. mynd). Hann er í 310 metra hæð yfir sjó, 15 hektarar að flatarmáli, 800 metra langur og mest um 300 metra breiður. Ofan við hólmann fellur Hvítá meðfram Bláfelli eftir misgengissprungu (Haukur Jóhannesson, munnl. uppl. 2012). Áin brýtur sér leið út úr sprungunni í tveimur kvíslum. Þær sameinast síðan stuttu neðar og mynda þannig hólmann. Syðri kvíslin er vatnsmeiri og fellur hún í ófæru gljúfri með austur- og suður- bakka hólmans. Mikill halli er þarna í ánni og straumur stríður. Neðarlega í nyrðri kvíslinni er snotur foss og ofan við hann flúðir. Þar er vætt út í hólmann þegar lítið er í ánni. Hólminn er úr grágrýti og setlögum frá síðari hluta ísaldar.18 Suðurhlutinn er mjög mótaður af ánni. Þar sjást greini- legir farvegir sem hún hefur grafið á fyrri tíð og þá mótað kletta og dranga úr hraun- og setlögum (2. mynd). Nyrðri hlutinn er tiltölulega flatur með all- háum klettum við báðar kvíslar árinnar. Í ánni bæði ofan og neðan Bláfells- hólma eru litlir klettahólmar, að nokkru grónir og sennilega illfært í þá alla. Gróðri í Bláfellshólma hefur ekki verið lýst áður. Samkvæmt gróðurkorti frá 1966 voru þar tvær megingerðir gróð- urs, mosaþemba með stinnastör og smá- runnum á norðurhlutanum en kræki- lyng-fjalldrapi-bláberjalyng á þeim syðri.19 Bláfellshólmi er langt frá öllum veð- urstöðvum og er nákvæmar upplýsingar um veðurfar því ekki að hafa. Miðað við líkön Veðurstofu Íslands er ársúrkoma reiknuð fyrir árin 1971–2000 um 1.500 mm.20 Ársmeðalhiti fyrir tímabilið frá 1961–1990 telst vera 1,7°C og meðalhiti í júlí, hlýjasta mánuði ársins, er 9,4°C (1. tafla).21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.