Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 52

Náttúrufræðingurinn - 2018, Side 52
Náttúrufræðingurinn 52 Koðralækjarhólmi Koðralækjarhólmi er í Tungufljóti í Biskupstungum skammt ofan við Tungnaréttir í um 70 metra hæð yfir sjó (1. mynd). Hann er rúmur hektari að flatarmáli, mest um 90 metra breiður og rétt tæpir 200 metrar að lengd. Vestan við hólmann er fljótið alldjúpt en aust- urkvíslin er vel væð (3. mynd). Austan við fljótið eru melar, gamalt vatnaset, en berggrunnur vestan fljóts er hluti af eldri grágrýtismynduninni.22 Upplýsingar um veðurfar í Koðra- lækjarhólma eru góðar. Frá árinu 1990 hefur verið veðurstöð á Hjarðarlandi um 1,6 kílómetrum norðan við hólmann. Árin 1991–2011 var ársmeðalhiti 4,0°C og meðalhiti í júlí, hlýjasta mánuði ársins, 11,9°C. Að meðaltali var ársúr- koma þetta tímabil 1.347 mm.23 Gróðri í Koðralækjarhólma hefur ekki áður verið lýst. Hlíf Einarsdóttir (fædd 1930) frá Hjarðarlandi hefur á hinn bóginn fylgst með breytingum í hólmanum frá unglingsárum og skráð þar nokkrar tegundir plantna. Aðrir hólmar Til samanburðar við Bláfellshólma og Koðralækjarhólma voru valdir fjórtán hólmar þar sem gróður hefur verið kannaður á undanförnum ára- tugum (1. mynd). Sextán hólmar eru því undir í þessari rannsókn. Fjórir eru á Suðurlandi, þ.e. Viðey í Þjórsá, Bláfellshólmi í Hvítá, Koðralækj- arhólmi í Tungufljóti í Biskupstungum og hólmi í Mjóavatni á Mosfellsheiði. Sex eru á Vesturlandi, þ.e. Foxufells- hólmi í Hítarvatni á Mýrum og fimm á Arnarvatnsheiði; einn hólmi í Úlfsvatni og fjórir í Arnarvatni hinu stóra. Fjórir hólmar eru á Norðurlandi vestra, þ.e. í Eyjavatni, Vestara Friðmundarvatni og Lómatjörnum á Auðkúluheiði og í Bugavatni á Eyvindarstaðaheiði. Loks eru tveir hólmar á Norðurlandi eystra, þ.e. Helley og Helleyjarhólmi í Laxá í Aðaldal. Aðstæður í hólmunum sextán eru nokkuð ólíkar. Þeir eru misstórir (1. tafla). Sá minnsti, Helleyjarhólmi, er 0,06 ha en Bláfellshólmi er langstærstur, rúmir 15 ha. Fimm hólmar eru undir 150 m hæð yfir sjó, tveir í 200–350 m hæð en átta eru á hálendinu í yfir 400 m hæð. Samkvæmt úrkomulíkani Veð- urstofu Íslands er úrkoma í hólmunum ólík (1. tafla).20 Í hólmunum sex á Norð- urlandi er ársúrkoma um 700 mm. Úr- koma er allmiklu meiri, 1.100–1.200 mm, í hólmunum á Arnarvatnsheiði og talsvert meiri í hólmunum á Suður- landi, eða 1.500–1.650 mm. Langmest er úrkoman í Foxufellshólma í Hítarvatni á Mýrum eða tæplega 2.300 mm. Sam- kvæmt líkani Veðurstofunnar er meðal- hiti einnig misjafn, og endurspeglar sá munur að verulegu leyti hæð yfir sjó (1. tafla).21 Meðalhiti í júlí, hlýjasta mánuði ársins, er hæstur í Viðey og Koðra- lækjarhólma, um 11°C, en lægstur í hólmunum á Arnarvatnsheiði, um 7,5°C. Fimm hólmar eru í straumvatni en tíu í stöðuvötnum. Breytileiki í landi er misjafn eftir hólmum (1. tafla). Fjölbreyttast er land í Bláfellshólma og í Helley sem er úr hrauni með misdjúpum sprungum. Land í hólmanum í Lómatjörnum er nokkuð fjölbreytt en hólminn er all- 3. mynd. Koðralækjarhólmi í Tungufljóti. Til vinstri í hólmanum er birkiskógur á þykkum áfoksjarðvegi. Til hægri er eyrin sem vaxin er gróskumikl- um gróðri; lúpínu, ætihvönn, viðju, gulvíði, birki o.fl. tegundum. – A view over the island Koðralækjarhólmi in the river Tungufljót. On the left is the original Betula-woodland on thick aeolian soil. On the right is a gravel bank colonized by Lupinus nootkatensis, Angelica archangelica, Salix myrsinifolia, Salix phylicifolia, Betula pubescens and more. Ljósm./Photo: Sigurður H. Magnússon 29.8. 2015.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.