Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 54
Náttúrufræðingurinn
54
Sumarið 2012 voru farnar tvær ferðir
í hólmann, 9. og 28. ágúst, til að kanna
gróður, skrá tegundir og meta hugsan-
legar gróðurbreytingar sem orðið hefðu
frá 1992 (4. mynd). Í ferðinni árið 1992
var tími til skoðunar mjög takmarkaður
og því hreinlega yfirsást að skoða gamla
farvegi í syðsta hluta hólmans (svæði
III). Þetta svæði var því kannað sérstak-
lega sumarið 2012.
Sumarið 2012 var stærð birkiskógar-
ins mæld með því að gengið var um-
hverfis hann með GPS-tæki. Miðað var
við svæði þar sem birkiplöntur mynd-
uðu nokkurn veginn samfellu, og voru
stakar plöntur fjarri meginbreiðunni
því ekki teknar með. Ummál og lengd
sverustu stofna var mælt líkt og gert
var árið 1992. Auk þess voru teknar all-
margar ljósmyndir, sumar frá svipuðu
sjónarhorni og 20 árum fyrr. Gróður-
kort af hólmanum var teiknað á grunni
upplýsinga sem safnað var í ferðunum
(4. mynd).24
Koðralækjarhólmi
Sumarið 2012 voru farnar þrjár ferðir
í Koðralækjarhólma til að kanna gróður
og flóru, fyrst 29. og 30. ágúst og síðan 3.
september. Í hólmanum eru fjögur gróð-
ursvæði og var hvert þeirra skoðað sér-
staklega (5. mynd). Á vesturhlutanum
er gamalgróinn birkiskógur á þykkum
áfoksjarðvegi. Á austurhlutanum,
sem liggur um 1,5–2 metrum neðar en
skóglendið, er að mestu uppgróin eyri
sem skiptist í þrennt, deiglendi með
tveimur litlum tjörnum í gömlum far-
vegi næst skóginum, lúpínusvæði sem
þekur mest af eyrinni og lítt grónir
eyrarblettir á tveimur stöðum. Byggt var
á þessum upplýsingum er gróðurkort af
hólmanum var teiknað (5. mynd).24
Æðplöntutegundir voru skráðar
á öllum fjórum gróðursvæðunum (5.
mynd). Útlínur birkiskógarins voru
skráðar með GPS-tæki og hæð hæstu
trjáa áætluð með sjónmati. Á lúpínu-
svæðinu voru öll birkitré sem fundust
staðsett með GPS-tæki og hæð þeirra
mæld. Jarðvegur var skoðaður og jarð-
vegsþykkt mæld á nokkrum stöðum
á öllum svæðunum. Teknar voru ljós-
myndir af því sem markvert þótti.
Aðrir hólmar
Á árunum 1976–1979 var kannaður
gróður í alls ellefu hólmum (1. tafla).
Í Arnarvatni hinu stóra á Arnarvatns-
heiði var gróður rannsakaður í fjórum
hólmum en í vatninu eru alls sex
hólmar. Gróður var kannaður í Land-
eyju og þremur öðrum hólmum sem
hér eru númeraðir 3, 4 og 5 (1. tafla).
Tekið skal fram að gróður var skráður
sameiginlega í hólmum 3 og 5. Í Úlfs-
vatni á Arnarvatnsheiði var skráður
gróður í Þúfuhólma, sem er stærstur
fimm hólma í vatninu. Á Auðkúluheiði
var rannsakaður gróður í stærsta hólm-
anum í Eyjavatni, í hólmanum í Vest-
ara Friðmundarvatni og hólmanum í
Lómatjörnum. Á Eyvindarstaðaheiði
var rannsakaður gróður í eina hólm-
anum sem finnst í Bugavatni. Á þessum
árum var gróður einnig kannaður í
Foxufellhólma í Hítarvatni og í hólm-
anum í Mjóavatni á Mosfellsheiði.
Árið 2003 var kannaður gróður í
tveimur af hólmunum í Laxá í Aðaldal,
Helley og Helleyjarhólma,25 en ekki í
öðrum grónum hólmum í ánni. Árið
2009 var rannsakaður gróður í Viðey í
Þjórsá.3 Í öllum tilvikum var farið um
hólmana, æðplöntutegundir skráðar
og gróðri lýst. Í Viðey og í hólmunum
í Lómatjörnum og Vestara Frið-
mundarvatni hefur gróður auk þess
verið rannsakaður nánar.2,3,13
5. mynd. Gróðurkort af Koðralækjarhólma
teiknað á mynd frá 2008 frá Loftmyndum ehf.
Skipting í gróðurfélög og landgerðir miðast
við gróðurlykil Steindórs Steindórssonar.24
C5 ilmbjörk, L3 alaskalúpína, T4 gulvíðir-star-
ir-grös, ey eyrar, av vatn. – Vegetation map
of the island Koðralækjarhólmi based on an
aerial photograph from Loftmyndir ehf, taken
2008. Vegetation and land types classes
are from Steindór Steindórsson.24 C5 Betula
pubescens, L3 Lupinus nootkatensis, T4 Salix
phylicifolia-sedges-grasses, ey well drained
riverwash, av water, Ógreint unspecified.