Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 57

Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 57
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 57 vaxa með lúpínunni gulvíðir, viðja, birki og loðvíðir, allt tegundir sem eru há- vaxnari en hún. Allvíða var gras komið í lúpínuna og bar einna mest á snarrótar- punti en einnig var þar hálíngresi, blá- sveifgras, vallarsveifgras og túnvingull. Hálíngresið var líklega þekjumest gras- tegunda. Nokkuð var einnig af túnfífli. Allvíða fannst akurarfi og á stöku stað fjalldalafífill og maríustakkur. Á lúpínusvæðinu fundust 12 birkitré og var hæð þeirra á bilinu 1,4–3,1 m, en meðalhæð 2,5 m. Öll trén voru í góðum vexti og með rekla nema eitt. Hæstu gulvíðiplöntur voru yfir 3 m og hæstu viðjur enn hærri. Á norðurhluta lúpínusvæðisins var yfirborð víðast hvar slétt og jarðvegur um 40 cm þykkur, lagskiptur, blanda af sandi, vikri og mold ofan á ármöl- inni. Þegar kemur suður fyrir miðjan hólmann verður á þessu breyting. Þar mátti greina gróna sand- og áfokshóla og var melgresi í sumum þeirra. Þykkt jarðvegs ofan á möl var þar sums staðar yfir 1 m. Eyrarblettir Lítt grónar áreyrar eru aðeins um 30 m2. Af þeim ellefu tegundum sem þar fundust voru sex ekki skráðar annars staðar í hólmanum, þ.e. fjallapuntur, klappadúnurt, lindadúnurt, hundasúra, skammkrækill og lækjagrýta. Samanburður hólma Í hólmunum sextán eru samtals skráðar 194 tegundir æðplantna (sjá viðauka). Mikill munur er á fjölda eftir hólmum. Ekki er þó greinilegt sam- band á milli stærðar hólma og tegunda- fjölda (1. tafla). Flestar tegundir voru í Bláfellshólma (106) en fæstar í hólm- anum í Mjóavatni (41). Miðað við stærð er tegundaauðgi sérstaklega mikil í hólmunum í Laxá í Aðaldal, Helleyjar- hólma og Helley, sem eru aðeins 0,06 og 0,3 ha að stærð. Þar fundust 68 og 85 tegundir æðplantna. Hnitunargreining Umtalsverður munur var á flóru hólmanna, og kemur hann skýrt fram í hnituninni (9. mynd). Fyrstu fjórir ásar greiningarinnar útskýra samtals 34,5% af þeim breytileika sem er að finna í öllu gagnasafninu og af þeim útskýra fyrstu ásarnir tveir 21,4 og 7,1% (eigingildi ása var 0,28; 0,09; 0,05 og 0,03). Greiningin sýnir einnig að munur á flóru hólmanna er einkum tengdur hæð yfir sjó, þar sem mjög sterkt samband er á milli staðsetn- ingar á 1. ási hnitunar og hæðar yfir sjó (r2 = 0,91, p<0,0001, n=15). Því lægra sem hólmarnir liggja, þeim mun hærri gildi fá þeir að jafnaði á ásnum (9. mynd). Samband staðsetningar á 1. ási og með- alhita í júlí er einnig sterkt, þar hækkar meðalhiti að jafnaði með hærri gildum á 1. ási (r2 = 0,84, p<0,0001, n=15). Annar ás hnitunarinnar aðgreinir hólmana að hluta til eftir því hversu raklendir þeir eru. Þurrlendari hólm- arnir, svo sem hólminn í Bugavatni, Bláfellshólmi, hólminn í Lómatjörnum og Viðey, eru allir á neðri helmingi grafsins. Raklendari hólmarnir, svo sem hólminn í Eyjavatni, í Vestara Frið- mundarvatni, í Mjóavatni og Foxufells- hólmi eru á efri helmingi þess (9. mynd). Aðrar breytur sem kannaðar voru, þ.e. úrkoma, fjöldi tegunda og stærð hólma, sýna mun minni samsvörun við fyrstu tvo ásana og þar með við gróður- breytileika í hólmunum (9. mynd). Nokkur munur kemur fram á gróðri hólma eftir því hvort þeir eru í straumvatni eða stöðuvatni, og rað- ast hólmar í straumvatni neðarlega til hægri á myndinni. Ástæðan er einkum sú að friggjargras, mýrasóley, birki, hrútaberjalyng og gulmaðra vaxa fremur í straumvatnshólmum en í stöðuvatnshólmum. TWINSPAN-flokkun TWINSPAN-flokkunin gaf mjög svipaða niðurstöðu og hnitunargrein- ingin þar sem flokkunin hefur sterka tengingu við hæð yfir sjó (2. tafla, 9. mynd). Við fyrstu skiptingu greindust hólmarnir fjórir sem lægst liggja (<120 m), Koðralækjarhólmi, Viðey og hólm- arnir tveir í Laxá í Aðaldal, frá öðrum hólmum. Hólmarnir sem þá voru til skiptanna greindust síðan í tvo misstóra hópa þar sem Bláfellshólmi, Foxufells- hólmi og hólminn í Mjóavatni, sem eru í 140–310 m hæð, skildu sig frá og mynd- uðu sérstaka einingu. Frekari skipting greindi síðan hólmann í Lómatjörnum (427 m) frá öðrum hólmum og að lokum mynduðu hólmarnir í Vestara Frið- mundarvatni, Eyjavatni og Úlfsvatni einn flokk (438–433 m) og hólmarnir í Arnarvatni og Bugavatni annan (538– 560 m). Flóra láglendishólmanna fjögurra (flokkur I) skilur sig einkum frá flóru annarra hólma með því að þar vaxa rúm- lega 40 tegundir sem finnast ekki eða í mjög litlum mæli í hólmum sem hærra liggja (viðauki). Í þessum hópi eru birki, mýrasóley, friggjargras, lokasjóður og gleym-mér-ei sem finnast í öllum fjórum hólmunum. Einnig kjarrhveiti, aronsvöndur, mjaðjurt, alaskalúpína, hvítsmári, umfeðmingur, melgresi og 8. mynd. Í Bláfellshólma hafði beitilyng aukist talsvert frá 1992 til 2012. – Observations indicated that Calluna vulgaris had increased noticeably on the island Bláfellshólmi during the 20 years that passed between observations. Ljósm./Photo: Sigurður H. Magnússon 9.8. 2012.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.