Náttúrufræðingurinn - 2018, Qupperneq 68
Náttúrufræðingurinn
68
SKÝRSLA STJÓRNAR
HÍN Á AÐALFUNDI
26. FEBRÚAR 2018
FUNDIR STJÓRNAR
Ár er liðið síðan síðasti aðalfundur Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags var haldinn hér í stofu 132 í Öskju. Það var
nánar til tekið hinn 27. febrúar 2017 að afloknu fræðsluer-
indi Guðrúnar Larsen um jökulhlaup frá Kötlu. Kjörtímabili
þriggja stjórnarmanna var þá lokið. Þetta voru Bryndís Mart-
einsdóttir, Hilmar J. Malmquist og Ester Ýr Jónsdóttir. Ester
Ýr, ritari félagsins, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Í hennar
stað var kosinn nýr stjórnarmaður, Margrét Hugadóttir.
Á fyrsta stjórnarfundi starfsársins skipti stjórnin með sér
verkum, öðrum en formannsstarfinu lögum samkvæmt. Mar-
grét tók við ritarastarfinu en hlutverkaskipan breyttist ekki að
öðru leyti ekki frá síðasta ári.
Stjórn HÍN 2017–2018 var því þannig skipuð: Árni Hjartar-
son formaður, Hafdís Hanna Ægisdóttir vara formaður, Mar-
grét Hugadóttir ritari, Ester Rut Unnsteinsdóttir gjaldkeri,
Bryndís Mart eins dóttir fræðslustjóri, Jóhann Þórsson félags-
vörður og Hilmar J. Malmquist meðstjórn andi.
Á þessu tímabili hefur stjórn haldið 9 venjubundna stjórn-
arfundi. Fundað var í húsnæði Náttúru minja safns Íslands í
Loftskeytastöðinni gömlu á Melunum.
FÉLAGSMENN
Félagsmönnum heldur áfram að fækka þótt ekki sé það
stórfellt. Þeir voru 1165 í árslok 2017 og er það fækkun um 15
frá fyrra ári. 27 nýir bættust í hópinn en 42 hættu – þar af lét-
ust 14. Meðal þeirra var Margrét Guðnadóttir, einn af heiðurs-
félögum samtakanna. Félagatalið hefur verið að sveiflast í
kringum 1200 allt frá aldamótum. Ljóst er að fara þarf í kröft-
ugt átak til að laða fólk að félaginu og fá það til inngöngu.
FRÆÐSLUERINDIN
Fræðslufundir félagsins voru haldnir í stofu 132 í Öskju.
Frá síðasta aðalfundi hafa verið haldnir sex fundir en erindi
sem stefnt var að í september féll niður. Aðsókn á þessa fundi
hefur farið dvínandi með árunum en þó var aðsóknin í ár betri
en í fyrra. Í ár voru 247 fundargestir (237 í fyrra og 270 í hitti-
fyrra). Eftirfarandi erindi voru haldin:
27. febrúar. Guðrún Larsen, jarðfræðingur: Af framferði
jökulhlaupa í Kötlugosum.
27. mars. Bryndís Marteinsdóttir, plöntuvistfræðingur:
Áhrif sauðfjárbeitar á íslensk vistkerfi – hvað vitum við í
raun mikið?
24. apríl. Anna Heiða Ólafsdóttir, fiskifræðingur: Fjöl-
þjóðarannsóknir á uppsjávarvistkerfi Norðaustur-Atlants-
hafs: Tæki, tól og tilgangur.
Septemberfyrirlesturinn féll niður.
30. október. Bjarni K. Kristjánsson, líffræðingur, og
Camille Leblanc, líffræðingur: Lífið í hrauninu – lífríki í
vatnsfylltum hraunhellum í Mývatnssveit.
27. nóvember. Freydís Vigfúsdóttir, vistfræðingur: Milli
borgarsvæða Írlands og heimskautasvæða Norður-Kanada:
Rannsóknir á lífi margæsa.
29. janúar 2017. Hilmar J. Malmquist, líffræðingur: Hlýnun
Þingvallavatns og hitaferlar í vatninu.
Náttúrufræðingurinn 88 (1–2), bls. 68–71, 2018