Náttúrufræðingurinn - 2018, Blaðsíða 69
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
69
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Frá síðasta aðalfundi hafa komið út tvö tvöföld hefti af
Náttúrufræðingnum – þ.e. 87. árgangur, 1.–2. hefti og 3.–4.
hefti. Álfheiður Ingadóttir er ritstjóri en við seinna heftið var
Sigmundur Einarsson ráðinn sem ritstjóri henni við hlið. Sig-
mundur vinnur einnig að þemahefti um Þingvallavatn og Mý-
vatn sem áætlað er að komi út á því starfsári sem nú fer í hönd.
Ritstjórnin er óbreytt frá fyrra ári:
Droplaug Ólafsdóttir, dýrafræðingur, formaður
Esther Ruth Guðmundsdóttir, jarðfræðingur
Hafdís Hanna Ægisdóttir, plöntuvistfræðingur,
fulltrúi stjórnar HÍN
Hlynur Óskarsson, vistfræðingur
Ó. Sindri Gíslason, sjávarlíffræðingur
Tómas Grétar Gunnarsson, dýravistfræðingur
Þóroddur F. Þóroddsson, jarðfræðingur
Mörður Árnason er prófarkalesari og
málfarsráðunautur tímaritsins.
NEFNDIR
Samstarfshópur frjálsra félagasamtaka á sviði umhverfis-
mála á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytis er hópur fé-
laga og samtaka sem hafa með sér samráð um ýmis mál sem
ráðuneytið beinir til þeirra. Árni Hjartarson er fulltrúi HÍN
en Hólmfríður Sigurðardóttir hjá Fuglavernd er talsmaður
og tengiliður hópsins við ráðuneytið. Hópurinn hefur verið
beðinn um tilnefningar í nefndir og ráð og fleira smálegt.
Hópurinn á fulltrúa í nokkrum nefndum á vegum um-
hverfis- og auðlindaráðuneytisins. Þetta eru Ráðgjafarnefnd
hagsmunaaðila um stjórn vatnamála, Stjórn og svæðisráð
Vatnajökuls þjóðgarðs, Ráðgjafarnefnd um stefnumarkandi
landsáætlun til 12 ára um uppbyggingu innviða til verndar
náttúru og menningarsögulegum minjum, Nefnd um um-
hverfisviðurkenningu umhverfis- og auðlindaráðuneytis –
Kuðunginn, og Samráðsnefnd um sjálfbærar veiðar, svo eitt-
hvað sé upp talið.
Í ársbyrjun var Björt Ólafsdóttir umhverfis- og auðlinda-
ráðherra og í ráðherratíð sinni kallaði hún hópinn tvívegis
saman til skrafs og ráðagerða í ráðuneytinu. Ágætur sam-
hljómur var í málflutningi ráðherrans og fólks í samstarfs-
hópnum á þessum fundum. Ráðherradómurinn varð þó
stuttur, innan við ár, því stjórnin sprakk á haustmánuðum.
Ný ríkisstjórn tók við stjórnartaumunum í árslok og Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson varð umhverfis- og auðlinda-
ráðherra, en hann var raunar áður fulltrúi Landverndar í
Samstarfshópnum. Guðmundur Ingi kallaði hópinn saman
strax í byrjun febrúar og bætti við allmörgum félögum sem
hann taldi að ættu þar heima, þannig að nú eru þau milli 20
og 30. Þar kom því saman allfjölmennur og fjölbreytilegur
mannsöfnuður frá umhverfis samtökunum og úr ráðuneytinu.
Ráðherra fór yfir stefnumið sín, viðhorf og áherslur. Fulltrúar
samtakanna sögðu frá sínum baráttumálum og komu ýmsum
erindum á framfæri. Almenn ánægja ríkti með þennan fund
og það virtist samdóma álit manna að hann væri til vitnis um
góða byrjun á ráðherraferli Guðmundar Inga.
Á fundi með menntamálaráðherra 8. mars 2017. Kristján Þór Júlíusson, Ester Rut Unnsteinsdóttir,
Árni Hjartarson, Margrét Hugadóttir og Eiríkur Þorláksson.