Náttúrufræðingurinn - 2018, Síða 71
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
71
Á kjörtímabilinu verður sérstaklega hugað að því að
styrkja starfsemi höfuðsafnanna þriggja. Þar á meðal verður
Náttúruminjasafn Íslands styrkt til að opna eigin sýningu og
gert ráð fyrir framtíðarhönnun fyrir nýtt safn í fjármálaáætlun
til fimm ára.
Þessu var svo fylgt eftir með stóraukinni fjárveitingu á
fjárlögum, 290 milljónum króna til að setja upp Perlu-
sýninguna. Að auki varð 70% hækkun á fjárheimildum til
grunnreksturs safnsins.
G-REITURINN
Með hliðsjón af þingsályktuninni góðu frá 2016 nr. 70/145
og greinarinnar um Náttúruminjasafn í núverandi stjórn-
arsáttmála telja margir æskilegt að kannaðir verði sam-
starfsmöguleikar milli Náttúruminjasafnsins og Háskóla
Íslands og endurvaktar hugmyndir um samvinnu stofnan-
anna, m.a. í hús næðis málum. Um þetta var samþykkt sérstök
ályktun á aðalfundi félagsins 2017.
Á 100 ára afmæli HÍN árið 1989 kynnti þáverandi
menntamálaráð herra áætlanir um að reist yrði hús yfir Nátt-
úrugripasafn Íslands. Í framhaldi af því var úthlutað lóð í
Vatnsmýri austan við Norræna húsið og Öskju fyrir byggingu
Náttúruhúss sem var hugsað sem safnbygging og aðsetur
Náttúrugripasafns. Á aðalskipulagi Reykjavíkur er enn gert
ráð fyrir Náttúruhúsi á þessum stað og að þar rísi aðalstöðvar
NMSÍ (G-reitur í deili skipulagi Háskólasvæðisins). HÍN
telur að hagsmunir þessara tveggja stofnana, NMSÍ og HÍ,
fari prýðilega saman með samstarfi og samnýtingu í nýrri
byggingu á þessum reit. Starfsemi safnsins á sviði gagnasöfn-
unar og upplýsingamiðlunar eflir rannsóknir og kennslu í
Háskólanum á sviði náttúru Íslands sem og í safnafræðum.
Akademískar rannsóknir Háskólans í náttúru-, safna- og
kennslufræðum eru nauðsynlegar fyrir starfsemi Náttúru-
minjasafnsins. Með þessari tilhögun gætu yfirvöld slegið tvær
flugur í einu höggi – leyst ríflega aldargamlan vanda safnsins
og bætt um leið aðstöðu Háskólans til kennslu og rannsókna
í náttúrufræðum.
Hinn 7. mars var síðan fundur með Jóni Atla háskólarektor,
Guðbjörgu aðstoðarrektor og Guð mundi R. Guðmundssyni,
forstöðumanni NMSÍ, formanni HÍN og Skúla Skúlasyni.
Rætt var um G-reitinn og um hugsanlegt samstarf NMSÍ
og HÍ þar og fleira. Þótt skiptar skoðanir hafi komið fram
um ráðstöfun þessa svæðis var fundurinn á mjög jákvæðum
nótum og vel tekið undir hugmyndir um samvinnu stofnan-
anna á reitnum. Jafnframt var ljóst að Háskólinn myndi ekki
leita eftir því lengur að komast með starfsemi inn í Loftskeyta-
stöðina en þar hefði hún þrengt að starfseminni sem fyrir er,
meðal annars að aðstöðu HÍN og Náttúrufræðingsins.
STYRKIR
HÍN fékk Umhverfisstyrk Landsbankans, 400.000 kr., til
að koma upp upptökubúnaði svo hægt sé að streyma mánað-
arlegum fræðsluerindum félagsins á samfélagsmiðla, og
koma jafnframt upptöku af erindunum fyrir til lengri tíma á
vefsetrið Youtube þar sem hægt er að hlusta á þau og skoða
hvenær sem er. Tækjabúnaðurinn sem þarf er: Vefmyndavél,
þrífótur, upptökutölva, hljóðnemar og tölvuforrit (camtasia).
Einnig fékk félagið rekstrarstyrk frá umhverfis- og auð-
lindaráðuneyti, 1.000.000 kr.
LOKAORÐ
Síðustu tvö ár hafa verið umbrotaár í íslenskri pólitík og
virðast auk þess ætla að verða tímamótaár í hinni löngu bar-
áttu HÍN um að komið verði á fót Náttúruminjasafni sem
standi undir nafni.
HÍN var stofnað árið 1889 og verður því 130 ára á næsta
ári. Eitt meginstefnumið félagsins var frá upphafi að koma á
fót sem fullkomnustu náttúrugripasafni á Íslandi. Segja má að
Náttúrufræðistofnun Íslands með rannsóknarsöfnum sínum
og grunnrannsóknum myndi burðarstoð undir slíku safni
en höfuðsafnið sjálft með sýningarhaldi og fræðslu er enn
ekki risið. En nú sést hilla undir það og vonandi getur félagið
fagnað stórafmæli sínu á næsta ári í fullvissu þess að þetta
markmið sé í seilingarfjarlægð.
Reykjavík 26. 2. 2018
Árni Hjartarson, formaður HÍN
Á fundi á skrifstofu háskólarektors 7. mars 2017.
Skúli Skúlason, Hilmar J. Malmquist, Jón Atli
Benediktsson, Guðmundur R. Guðmundsson,
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir og Árni Hjartarson.