Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 74

Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 74
Náttúrufræðingurinn 74 Sveinn Peter Jakobsson fæddist í Reykjavík 20. júlí 1939 og lést þar 12. júlí 2016. Foreldrar hans voru Jakob Sveinsson frá Hvítsstöðum í Álftaneshreppi á Mýrum (1905–83), yfir- kennari við Austurbæjarskóla, og Ingeborg Vaaben Morten- sen (1905–94), hjúkrunarkona frá Vester-Aaby á Fjóni. Eldri bróðir Sveins er Steinar Bendt (f. 1935), verkfræðingur. Sveinn varð stúdent frá máladeild Menntaskólans í Reykja- vík vorið 1960. Þá um haustið hóf hann nám í jarðfræði við Kaupmannahafnarháskóla og lauk því með mag.scient.-gráðu 1969. Meðal kennara hans þar var Arne Noe-Nygaard sem tekið hafði þátt í jökla- og jarðfræðirannsóknum á Íslandi á fjórða áratugnum, m.a. á móbergsmynduninni, og fylgst með Heklugosinu 1947–48. Noe-Nygaard var jafnframt for- stöðumaður steindasafns háskólans, Mineralogisk Museum, frá 1942 til 1978, og vann mikið starf við að opna safnið – og raunar jarðvísindin sjálf – fyrir almenningi. Þegar leið á námið var Sveinn heima á Íslandi á sumrin, meðal annars við undirbúning prófritgerðar sinnar um jarðfræði Vestmanna- eyja, en á vetrum vann hann með náminu á Mineralogisk Museum. Þar fann hann, falið í skúffuskáp sem sneri fram- hliðinni þétt upp að vegg í kjallara safnhússins, steinasafnið sem Jónas Hallgrímsson hafði sent Forchhammer, kennara sínum, frá Íslandi, og lá síðan gleymt og grafið í kjallaranum í 125 ár.1 Einnig skrifaði Sveinn um önnur steinasöfn, Magnúsar Grímssonar2 og fleiri íslensk steinasöfn í Kaupmannahöfn;3 árið 2000 birtu Sveinn og Kristján Jónasson gagnagrunn steinasafns Náttúrufræðistofnunar.4 Vafalítið er að Arne Noe- Nygaard hafði talsvert mótandi áhrif á Svein, bæði sem jarð- fræðing og safnmann. Fyrsta grein Sveins um jarðfræði birtist árið 1966 í Acta Naturalia Islandica, ritröð Náttúrufræðistofnunar, um Gríms- neshraunin,5 en í Grímsnesi áttu foreldrar hans sumarbústað. Rúmum áratug síðar hafði hann látið aldursgreina hraunin.6 Surtseyjargosið hófst haustið 1963 og Sveinn skrifaði lýsingu á myndun Surtseyjar í Varv (1966), tímarit jarðfræðinema í Kaupmannahöfn.7 Tveimur árum síðar (1968) kom út fyrsta grein hans um jarð- og bergfræði Vestmannaeyja í Surtsey Research Progress Report, riti Surtseyjarfélagsins.8 Þar átti hann eftir að birta margar greinar næstu áratugina, því með þessari grein hófst rannsóknarverkefni sem varð gildur þáttur í ævistarfi Sveins: Myndun og jarðfræðileg þróun Vestmanna- eyja. Prófritgerð Sveins (1969) við Kaupmannahafnarháskóla fjallar um berg- og steindafræði eyjanna.9 Að námi loknu hóf Sveinn störf á Náttúrufræðistofnun Íslands, áður Náttúrugripasafni Íslands. Þar var fyrir Guð- mundur Kjartansson jarðfræðingur (1909–72), en Sigurður Þórarinsson (1912–83), sem verið hafði deildarstjóri þar frá 1947, tók við prófessorsstöðu við Háskólann árið 1968. Næstu 40 árin var Sveinn aðaljarðfræðingur Náttúrufræðistofnunar, þar til hann lét formlega af störfum vegna aldurs 2009. For- stöðumaður stofnunarinnar var hann 1972–74, 1981–83 og 1990–94 og deildarstjóri jarðfræðideildar 1969–1994. Sér- greinar Sveins voru berg- og steindafræði, greinar sem nú til dags krefjast viðamikils tækjabúnaðar til rannsókna og verið SVEINN P. JAKOBSSON jarðfræðingur — Minning — Náttúrufræðingurinn 88 (1–2), bls. 74–78, 2018

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.