Náttúrufræðingurinn - 2018, Page 77
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
77
Horft til lands af kolli Eldfells 2012. Jarðfræði Vestmannaeyja, forn og ný, var Sveini jafnan hugstæð – hann rann-
sakaði bergfræði Eldfellshrauns meðan á gosinu stóð og útfellingar 20 árum síðar á hálf-kólnuðu hrauninu.
Ljósm. Lovísa Ásbjörnsdóttir.
vísindasöfn á Norðurlöndum.42 Skömmu áður var Sveini
boðið til Sovétríkjanna ásamt Karli Grönvold og undirrituðum
– til Moskvu, Leníngrad og Jerevan í Armeníu – og hvarvetna
vildi Sveinn skoða náttúruminjasöfnin og var stundum jafnvel
„boðið bak við“ að skoða vinnustofur starfsmanna.
Sveinn sat í stjórn Surtseyjarfélagsins 1972–2009 og í stjórn
Norrænu eldfjallastöðvarinnar 1973–1987, varaforseti í stjórn
Ferðafélags Íslands var hann 1980–1987 og formaður Íslands-
nefndar Alþjóðajarðfræðisambandsins (IUGS) 1983–2005,
sat í ýmsum nefndum um umhverfismál og náttúrugripasöfn,
í samstarfshópi um byggingu Náttúruhúss í Reykjavík 1990–
1991 og var formaður fagráðs fyrir náttúruvísindi og um-
hverfisvísindi hjá Rannsóknasjóði RANNÍS 2003–2005.
Sveinn var kjörinn félagi í Vísindafélagi Íslendinga 1977,
hann var félagi í Jarðfræðafélagi Íslands, Dansk Geologisk
Forening, Det Kongelige Danske Videnskabernes Selskab og
American Geophysical Union.
Sveinn Jakobsson var eftirminnilegur maður þeim sem
þekktu hann. Sem vísindamaður helgaði hann líf sitt jarð-
vísindunum sem hann stundaði af mikilli staðfestu, vand-
virkni og virðingu, metnaðarfullur fyrir sína hönd, stofnunar
sinnar og jarðfræðinnar sjálfrar. Kortlagningar- og sýnasöfn-
unarferðir hans hljóta að hafa skipt hundruðum. Árum saman
réð hann aðstoðarmann úr hópi stúdenta yfir sumarið og fóru
sögur af dæmalausu harðfylgi hans og þrautseigju í slíkum
ferðum. En jafnframt var hann fagurkeri fram í fingurgóma,
lífsnautnamaður í hófi, unnandi fagurra lista og músíkalskur
vel. Arnar Árnason, tengdasonur Sveins, lýsti heimili hans svo
í minningargrein:
Sveinn bjó hús sitt fallegum og fágætum munum. Á
veggjum voru myndir eftir suma af helstu málurum landsins
og gömul landakort sem hann hafði safnað víða að. Hillur
voru fullar af mörgum merkustu bókum sem skrifaðar hafa
verið bæði á íslensku og erlendum málum. Skápar geymdu
tónlist af ýmsu tagi, íslensk þjóðlög, evrópska klassík og
amerískan jass. Af kvikmyndum valdi hann helst þær sígildu,
ekki síst verk Charlie Chaplin, Nútímann og Einvaldinn.
Sveinn var tvíkvæntur. Árið 1967 gekk hann að eiga Guð-
ríði Hannibalsdóttur bankaritara (f. 1937). Þau skildu 1969.
Dóttir þeirra er Hulda Þóra, yfirmaður áætlunargerðar við
Aberdeen-háskóla í Skotlandi (f. 1966). Maki hennar er Arnar
Árnason mannfræðingur (f. 1966) og börn þeirra Hrafnkatla,
Hörn og Grímnir. Árið 1972 kvæntist Sveinn Gunnu Hof-
dahl lögfræðingi (f. 1951), þau skildu 1978. Dætur þeirra eru
Thordis Hofdahl (f. 1974) grunnskólakennari í Kaupmanna-
höfn, gift Hjelm Kaplan verkfræðingi, sonur þeirra Johan,
og Elisabeth Hofdahl (f. 1975) menntaskólakennari í Kaup-
mannahöfn sem á soninn Niels Jakob.
Sigurður Steinþórsson