Fréttablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 14.03.2019, Blaðsíða 38
 12 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RVERKIÐN Ég hef alltaf sagt við mín börn að velja fyrst og fremst nám eftir áhuga – að það sé skyn- samlegasta valið,“ segir Jóhanna Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri í menntamálum hjá Samtökum iðnaðarins. „Við sjáum hins vegar að það eru ýmsir kostir við iðnnám umfram bóknám, til dæmis sjálfstæði og sveigjanleiki, mikil umfram- eftirspurn eftir vinnuafli og svo eru það tekjumöguleikarnir en fær iðnaðarmaður hefur oft mun meiri tekjumöguleika með tilliti til ævitekna en margir af þeim bóklærðu,“ segir Jóhanna Vigdís. Mikil þörf á iðnaðarfólki Í könnunum meðal félagsmanna Samtaka iðnaðarins kemur fram að þrír af hverjum fjórum finna fyrir skorti á iðnmenntuðu starfs- fólki. Í samanburði telja aðeins tólf prósent vera skort á háskóla- menntuðu starfsfólki. „Niðurstöðurnar gefa vís- bendingar um að víða sé mikil þörf á iðnmenntuðu starfsfólki. Það sætir svo sem ekki furðu því Ísland sker sig úr á alþjóðavett- vangi þar sem rétt um þriðjungur nema á framhaldsskólastigi leggur stund á starfsnám. Í samanburði er hlutfallið á hinum Norðurlönd- unum rúmlega helmingur og nær 70 prósent í Finnlandi. Íslenskir nemendur eru því ekki að velja starfsnám í nægum mæli, jafnvel þótt áhugi margra liggi mun meira í verklegum fögum en bóklegum,“ upplýsir Jóhanna Vigdís. Hún segir ástandið misjafnt eftir iðngreinum. „Það er til dæmis áhyggjuefni að orðið hefur þó nokkur fækkun í ýmsum greinum, eins og bygg- inga- og mannvirkjageiranum. Ef okkur tekst ekki að snúa þeirri þróun við verður erfitt að takast á við ýmsar framtíðaráskoranir og sem dæmi má nefna þann mikla húsnæðisskort sem nú blasir við og þarf að leysa.“ Skaðlegar staðalímyndir Innan Samtaka iðnaðarins verður greinilega vart við aukinn áhuga á iðn- og verknámi hjá íslenskum ungmennum. „Við leggjum ríka áherslu á að iðn- og verkgreinum sé gert jafn hátt undir höfði og bóknáms- greinum í námsskrá skólanna og þjóðfélagsumræðu almennt. Það er mín skoðun að við ættum að sleppa þessum hólfum og hætta að tala um aðgreininguna bóknám og verknám. Nám er nám og öll færni krefst bæði verklegrar og fræðilegrar þekkingar. Við þurfum að leggja meiri áherslu á kennslu verkgreina strax á fyrstu stigum grunnskóla og vinna með þá færni frá fyrstu stigum,“ segir Jóhanna Vigdís og kallar eftir þjóðarátaki í kynningarmálum fyrir iðn- og verkgreinar. „Með slíku átaki gæti ungt fólk áttað sig á þeirri staðreynd að námið er bæði áhugavert og skemmtilegt og að þær skaðlegu staðalímyndir sem oft eru dregnar fram eru beinlínis rangar. Ég tel þannig mikilvægt að draga fram sterkar fyrirmyndir til að höfða til ungs fólks og nýta þær til að kynna hinar ýmsu iðngreinar því það er svo sannarlega mikið af f lottu fólki í iðnaði.“ Krakkar prófa verkfærin Sé horft til sveinsprófa á árabilinu 2011 til 2018 er vinsælasta iðn- námið rafvirkjun, en málmsuða, rafveituvirkjun og húsgagnasmíði eru nú í mikilli sókn. „Því miður hefur ekki orðið nein stórkostleg fjölgun kvenna í iðn- aði, en það mjakast og nú hefur til dæmis konum fjölgað í bílamálun í Borgarholtsskóla. Ýmsar herferðir hafa reynt að sýna fram á að þetta séu svo sannarlega kvennastörf líka og ég hef unnið mikið með Félagi fagkvenna sem eru konur með sveinspróf eða meistararétt- indi í karllægum iðngreinum. Þær fara í heimsóknir í yngstu bekki grunnskóla og segja frá sinni iðn- grein, sýna krökkunum verkfærin sín og leyfa þeim að prófa. Það er svo mikilvægt að leyfa krökkum að prófa og kynna þessar fag- greinar snemma í grunnskólanum og ekki spillir fyrir að hafa flottar kvenfyrirmyndir,“ segir Jóhanna Vigdís. Hún segir sjálfvirknivæðinguna hafna í iðnaði sem öðrum greinum „Vélar munu þó aldrei taka að fullu yfir störf sem krefjast sköpunar og aðlögunarhæfni eins og mörg störf iðnaðarmanna gera. Auðvitað munu sum störf hverfa eins og í fyrri iðnbyltingum en fjölmörg ný munu koma í staðinn. Eðli menntunar og starfa er að breytast hratt og með aukinni nýsköpun verða til ný störf. Við sjáum til dæmis núna að fær raf- virki er orðinn hátæknimenntaður einstaklingur.“ Mikið af flottu fólki í iðnaði Jóhanna Vigdís Arnardóttir kallar eftir þjóðarátaki með sterkum fyrirmyndum sem höfða til ungs fólks og sýni fram á að skaðlegar staðalímyndir um iðn- og verknám séu beinlínis rangar. Jóhanna Vigdís Arnardóttir hjá Samtökum iðnaðarins. MYND/SIGTRYGGUR ARI GRAFÍA Stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum 130 ÁRA STABILA Afmælispakki frá Stabila - 4 hallamál SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS Regalofagmenn www.regalo.is Fríða Rut Heimisdóttir Hárgreiðslumeistari Veldu með hjartanu 100% vegan hárvörur frá Maria Nila. Head & Hair Heal verndar lit hársins, örvar hárvöxt og vinnur á móti hárlosi, þurrum hársverði og flösu ásamt því að vera bólgueyðandi. Sjampóið og hárnæringin eru hönnuð til daglegra nota fyrir alla. Maskan má nota 1-2 í viku. Allar vörurnar í línunni innihalda vegan innihaldsefni, en hvorki súlföt, paraben né aðra ofnæmisvalda. Regalo ehf Iceland 1 4 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :5 8 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 8 E -8 B 3 8 2 2 8 E -8 9 F C 2 2 8 E -8 8 C 0 2 2 8 E -8 7 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 7 2 s _ 1 3 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.