Fréttablaðið - 14.03.2019, Page 38
12 KYNNINGARBLAÐ 1 4 . M A R S 2 0 1 9 F I M MT U DAG U RVERKIÐN
Ég hef alltaf sagt við mín börn að velja fyrst og fremst nám eftir áhuga – að það sé skyn-
samlegasta valið,“ segir Jóhanna
Vigdís Arnardóttir, verkefnastjóri
í menntamálum hjá Samtökum
iðnaðarins.
„Við sjáum hins vegar að það eru
ýmsir kostir við iðnnám umfram
bóknám, til dæmis sjálfstæði
og sveigjanleiki, mikil umfram-
eftirspurn eftir vinnuafli og svo
eru það tekjumöguleikarnir en
fær iðnaðarmaður hefur oft mun
meiri tekjumöguleika með tilliti
til ævitekna en margir af þeim
bóklærðu,“ segir Jóhanna Vigdís.
Mikil þörf á iðnaðarfólki
Í könnunum meðal félagsmanna
Samtaka iðnaðarins kemur fram
að þrír af hverjum fjórum finna
fyrir skorti á iðnmenntuðu starfs-
fólki. Í samanburði telja aðeins
tólf prósent vera skort á háskóla-
menntuðu starfsfólki.
„Niðurstöðurnar gefa vís-
bendingar um að víða sé mikil
þörf á iðnmenntuðu starfsfólki.
Það sætir svo sem ekki furðu því
Ísland sker sig úr á alþjóðavett-
vangi þar sem rétt um þriðjungur
nema á framhaldsskólastigi leggur
stund á starfsnám. Í samanburði
er hlutfallið á hinum Norðurlönd-
unum rúmlega helmingur og nær
70 prósent í Finnlandi. Íslenskir
nemendur eru því ekki að velja
starfsnám í nægum mæli, jafnvel
þótt áhugi margra liggi mun meira
í verklegum fögum en bóklegum,“
upplýsir Jóhanna Vigdís.
Hún segir ástandið misjafnt eftir
iðngreinum.
„Það er til dæmis áhyggjuefni að
orðið hefur þó nokkur fækkun í
ýmsum greinum, eins og bygg-
inga- og mannvirkjageiranum. Ef
okkur tekst ekki að snúa þeirri
þróun við verður erfitt að takast á
við ýmsar framtíðaráskoranir og
sem dæmi má nefna þann mikla
húsnæðisskort sem nú blasir við og
þarf að leysa.“
Skaðlegar staðalímyndir
Innan Samtaka iðnaðarins verður
greinilega vart við aukinn áhuga
á iðn- og verknámi hjá íslenskum
ungmennum.
„Við leggjum ríka áherslu á að
iðn- og verkgreinum sé gert jafn
hátt undir höfði og bóknáms-
greinum í námsskrá skólanna og
þjóðfélagsumræðu almennt. Það
er mín skoðun að við ættum að
sleppa þessum hólfum og hætta að
tala um aðgreininguna bóknám
og verknám. Nám er nám og öll
færni krefst bæði verklegrar og
fræðilegrar þekkingar. Við þurfum
að leggja meiri áherslu á kennslu
verkgreina strax á fyrstu stigum
grunnskóla og vinna með þá færni
frá fyrstu stigum,“ segir Jóhanna
Vigdís og kallar eftir þjóðarátaki
í kynningarmálum fyrir iðn- og
verkgreinar.
„Með slíku átaki gæti ungt
fólk áttað sig á þeirri staðreynd
að námið er bæði áhugavert og
skemmtilegt og að þær skaðlegu
staðalímyndir sem oft eru dregnar
fram eru beinlínis rangar. Ég tel
þannig mikilvægt að draga fram
sterkar fyrirmyndir til að höfða til
ungs fólks og nýta þær til að kynna
hinar ýmsu iðngreinar því það er
svo sannarlega mikið af f lottu fólki
í iðnaði.“
Krakkar prófa verkfærin
Sé horft til sveinsprófa á árabilinu
2011 til 2018 er vinsælasta iðn-
námið rafvirkjun, en málmsuða,
rafveituvirkjun og húsgagnasmíði
eru nú í mikilli sókn.
„Því miður hefur ekki orðið nein
stórkostleg fjölgun kvenna í iðn-
aði, en það mjakast og nú hefur til
dæmis konum fjölgað í bílamálun í
Borgarholtsskóla. Ýmsar herferðir
hafa reynt að sýna fram á að þetta
séu svo sannarlega kvennastörf
líka og ég hef unnið mikið með
Félagi fagkvenna sem eru konur
með sveinspróf eða meistararétt-
indi í karllægum iðngreinum. Þær
fara í heimsóknir í yngstu bekki
grunnskóla og segja frá sinni iðn-
grein, sýna krökkunum verkfærin
sín og leyfa þeim að prófa. Það er
svo mikilvægt að leyfa krökkum
að prófa og kynna þessar fag-
greinar snemma í grunnskólanum
og ekki spillir fyrir að hafa flottar
kvenfyrirmyndir,“ segir Jóhanna
Vigdís.
Hún segir sjálfvirknivæðinguna
hafna í iðnaði sem öðrum greinum
„Vélar munu þó aldrei taka
að fullu yfir störf sem krefjast
sköpunar og aðlögunarhæfni eins
og mörg störf iðnaðarmanna gera.
Auðvitað munu sum störf hverfa
eins og í fyrri iðnbyltingum en
fjölmörg ný munu koma í staðinn.
Eðli menntunar og starfa er að
breytast hratt og með aukinni
nýsköpun verða til ný störf. Við
sjáum til dæmis núna að fær raf-
virki er orðinn hátæknimenntaður
einstaklingur.“
Mikið af flottu fólki í iðnaði
Jóhanna Vigdís Arnardóttir kallar eftir þjóðarátaki með sterkum fyrirmyndum sem höfða til
ungs fólks og sýni fram á að skaðlegar staðalímyndir um iðn- og verknám séu beinlínis rangar.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir hjá Samtökum iðnaðarins. MYND/SIGTRYGGUR ARI
GRAFÍA
Stéttarfélag í prent-
og miðlunargreinum
130 ÁRA
STABILA
Afmælispakki frá Stabila
- 4 hallamál
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
Regalofagmenn
www.regalo.is
Fríða Rut Heimisdóttir
Hárgreiðslumeistari
Veldu með hjartanu 100% vegan
hárvörur frá Maria Nila.
Head & Hair Heal verndar lit hársins,
örvar hárvöxt og vinnur á móti hárlosi,
þurrum hársverði og flösu ásamt því
að vera bólgueyðandi. Sjampóið og
hárnæringin eru hönnuð
til daglegra nota fyrir alla.
Maskan má nota 1-2 í viku.
Allar vörurnar í línunni innihalda
vegan innihaldsefni, en hvorki súlföt,
paraben né aðra ofnæmisvalda.
Regalo ehf Iceland
1
4
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:5
8
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
8
E
-8
B
3
8
2
2
8
E
-8
9
F
C
2
2
8
E
-8
8
C
0
2
2
8
E
-8
7
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
3
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K