Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 128
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 550 5000
Ritstjórn 550 5070 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 550 5050 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Óttars
Guðmundssonar
BAKÞANKAR
Mig dreymdi á dögunum fyrstu geðlækna landsins, þá Þórð Sveinsson og
Helga Tómasson. Þeir höfðu setið
eina dagstund á bráðamóttöku
geðdeildar og fylgst með starf-
seminni.
„Geðlækningar hafa breyst
mikið síðan við vorum við störf,“
sagði Helgi, „ég hef varla séð neina
sjúkdóma sem ég þekki. Flestir
eru að glíma við tilvistarvanda og
tilgangsleysi.“ „Já,“ sagði Þórður,
„hefur fólk ekkert annað og betra
við tímann að gera en að velta fyrir
sér eigin vanlíðan og búksorgum?“
„Getur það verið,“ sagði Helgi,
„að stærsta vandamálið sé að fólki
leiðist? Allt er svo erfitt og leiðin-
legt. Vinnan er svo óspennandi
að margir vilja komast á örorku.
Hjónabandið er tóm leiðindi þar
sem hjónin eru horfin inn í sitt-
hvorn tölvuheiminn. Börnin grúfa
sig ofan í símana og hafa engan
áhuga á umhverfi sínu. Flestir tala
saman í símskeytastíl á skila-
boðakerfum. Margir segjast vera
útbrunnir eins og gamall hlóða-
eldur. Í öllum þessum allsnægtum
og fjarskiptabyltingu er fólk að
upplifa meiri einmanakennd en
fátækur afdalabóndi í afskiptri
sveit.“
„Eru leiðindi geðgreining?“
spurði Þórður. „Óbeint,“ sagði
alvarlegur unglæknir sem sat á
spjalli við þá. „Hvað gerið þið við
öllum þessum leiðindum?“ „Við
gefum fólki örvandi lyf svo að það
geti einbeitt sér að sem flestum
samskiptamiðlum samtímis. Svo
gefum við þunglyndislyf, sefandi
og róandi svo að fólk taki ekki
eftir leiðindunum. Við leitum að
einhverjum vandamálum í æsku
sem mögulega geta skýrt hversu
mjög fólki leiðist á fullorðinsárum.“
Þeir litu hvor á annan og sögðu:
„Við erum farnir.“ Við það vaknaði
ég með andfælum og skráði niður
drauminn.
Mér leiðist
BERGPALM sængurverasett B150×200cm
2.690,-
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
2
-7
8
0
0
2
2
9
2
-7
6
C
4
2
2
9
2
-7
5
8
8
2
2
9
2
-7
4
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K