Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 103
Maður getur unnið að jafnrétti
í grasrótinni endalaust en ef
það skilar sér aldrei upp þá eru
völdin alltaf á sama stað.
Bróðir okkar,
Hilmar Jónsson
frá Mýlaugsstöðum, Aðaldal,
lést 6. mars á öldrunarheimilinu
Hlíð, Akureyri. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Hermann Jónsson
Fjóla Jónsdóttir
Friðfinna Jónsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir minn og afi,
Guðjón Valdimarsson
Fjósakambi, Egilsstöðum,
lést fimmtudaginn 7. mars.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Aðstandendur þakka hlýhug og
stuðning.
María Svava
Alma Emilsdóttir
Valdimar Örn Emilsson
Elskuleg móðir mín, systir, mágkona
og frænka,
Anna Jóhannsdóttir
frá Steinum,
Kleppsvegi 58, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
miðvikudaginn 6. mars. Útförin
fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 19. mars klukkan 11.
Jóhann Elí
Guðmunda Jóhannsdóttir Sigurður Gunnsteinsson
Jóna M.R. Jóhannsdóttir Ólafur Haraldsson
og systrabörn.
Hjartans þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur samkennd, hlýhug og
vináttu við andlát og útför yndislegu
mömmu okkar, tengdamömmu,
ömmu, langömmu og
vinkonu okkar allra,
Grétu Finnbogadóttur
Sérstakar þakkir færum við starfsmönnum á
hjúkrunarheimilunum Mörk og Roðasölum fyrir frábæra
umönnun.
Þórunn Traustadóttir Stefán Már Halldórsson
Gunnar Albert Traustason Ásta Birna Stefánsdóttir
Ólafur Árni Traustason Auður Bergsteinsdóttir
Jón Grétar Traustason Erla Bryndís Ingadóttir
Sesselja Traustadóttir Kjartan Guðnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkær systir,
mágkona og frænka,
Guðrún Hilmarsdóttir
Skálatúni, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum þann 11. mars.
Jarðarför fer fram þann 20. mars
kl. 13.00 frá Lágafellskirkju.
Jón Hilmarsson Guðrún H. Theodórsdóttir
Berglind Hilmarsdóttir
Svanur P. Hilmarsson
Dagbjört B. Hilmarsdóttir Hjálmar Diego
og frændsystkini.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Kristínar Jónsdóttur
áður til heimilis á
Sléttuvegi 13, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
deildar 2N á hjúkrunarheimilinu Eir.
Jóna Helgadóttir
Eysteinn Helgason Kristín Rútsdóttir
Matthildur Helgadóttir Tómas Óli Jónsson
Guðleif Helgadóttir Haraldur Sigurðsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðný Lilja Jóhannsdóttir
Boðahlein 9,
andaðist mánudaginn 11. mars.
Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Hafnarfirði miðvikudaginn 20. mars
kl. 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim er vildu
minnast hennar er bent á Rauða krossinn.
Jóhann Hauksson Ingibjörg Lára Harðardóttir
Halldóra Hauksdóttir Ófeigur Ólafsson
Steinunn Hauksdóttir Sigurður E. Sigurðsson
Sigrún Hauksdóttir Gunnar Erling Vagnsson
og ömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sæunn Guðmundsdóttir
hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Eyri
laugardaginn 9. mars. Útför fer fram
frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
23. mars klukkan 14.00.
Kristín Vignisdóttir Þorkell Sigurlaugsson
Aðalheiður Björk Vignisdóttir Gunnar Gunnarsson
Ragnar Bjarnason Gyða Kr. Aðalsteinsdóttir
Magnús Bjarnason Hrefna R. Magnúsdóttir
Oddur Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts elskulegs
eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
Finnboga Höskuldssonar
véltæknifræðings.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
líknardeildar Landspítalans.
Hildigunnur Þórðardóttir
Rakel Þóra F. Larsen Keld Larsen
Ásdís M. Finnbogadóttir Magnús Magnússon
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halldóra S. Jónsdóttir
lést á Landspítalanum þ. 12. mars sl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigurður Skúlason Guðrún Kristjánsdóttir
Gústaf Adolf Skúlason Ólöf Ingibjörg Baldursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Sigyn Jónsdóttir, sem er for-maður félagsins, segir mark-mið þess að stuðla að jafnvægi og jafnrétti í atvinnulífinu. „Við gerum það með alls kyns fræðslu, tengslamyndun og
hvatningu. Við erum með einn til tvo
viðburði í mánuði fyrir félagskonur sem
geta verið námskeið, málstofur, tengsla-
kvöld og ýmislegt skemmtilegt.“
Fyrsta stóra ráðstefna félagsins var
haldin í fyrra en þar var fjallað um störf
framtíðarinnar. „Þetta gekk rosalega vel
í fyrra og við fengum frábærar viðtökur
þannig að við ákváðum að hafa þetta
árlegan viðburð. Núna munum við fjalla
um skakkt kynjahlutfall meðal æðstu
stjórnenda í viðskiptalífinu og bylt-
ingar sem hafa orðið í jafnréttismálum
á Íslandi,“ segir Sigyn.
Viðtökurnar hafa verið mjög góðar.
„Það seldist upp á ráðstefnuna á mið-
vikudaginn sem er frábært. Við erum
himinlifandi með að fylla Norðurljósa-
sal Hörpu og þurfum ábyggilega að
íhuga að hafa stærri sal á næsta ári.“
Sigyn bendir á að þótt staða jafnréttis-
mála sé almennt góð á Íslandi í alþjóð-
legum samanburði hafi viðskiptalífið
setið eftir. „Þegar ég tala við erlenda vini
mína þá hugsa þau bara um Ísland sem
jafnréttisparadís og spyrja mig hvað ég
sé að gera í þessu félagi. Þá segi ég frá því
hvernig staðan er þegar kemur að því
hverjir stýra peningunum og hverjir eru
æðstu stjórnendur.“
Þannig séu konur aðeins ellefu pró-
sent forstjóra hundrað stærstu fyrir-
tækja landsins og aðeins um 20 prósent
af framkvæmdastjórum. Þá er engin
kona forstjóri í skráðu félagi í Kaup-
höllinni.
„Þetta er svolítið sláandi tölfræði.
Það er hægt að fjalla um jafnrétti frá
mörgum sjónarhornum en við ákváðum
í þetta skipti að ráðast á toppinn. Maður
getur unnið að jafnrétti í grasrótinni
endalaust en ef það skilar sér aldrei upp
þá eru völdin alltaf á sama stað.“
Hún segist ekki hafa töfralausnina til
að laga þetta. „Það er samt þannig að það
þarf að gera hlutina. Ekki segja bara að
þetta sé slæm staða heldur einmitt taka
af skarið. Ef þú situr til dæmis í stjórn
einhvers skráðs félags í Kauphöllinni að
taka þetta fyrir á næsta stjórnarfundi.
Spyrja hvort við ættum kannski að vera
hugrakka félagið sem byrjar að stuðla að
fjölbreytni.“
Tvær málstofur verða á ráðstefnunni
auk fyrirlestra. Á fyrri málstofunni
verður fjallað um byltingar samtímans
og þau bakslög sem verða oft í kjölfarið.
„Við munum ræða hvort það sé hægt að
gera eitthvað til að koma í veg fyrir að
bakslög fylgi byltingum og hvernig megi
tryggja aðgerðir. Hlutirnir gerast oft svo
hratt á Íslandi. Þú býrð til myllumerki á
Twitter og allir eru tilbúnir að deila því
og gera eitthvað. En svo er kannski eftir-
fylgnin ekki alveg til staðar.“
Síðari málstofan mun svo fjalla um
bága stöðu hvað varðar kynjahlutfall
æðstu stjórnenda og glerþakið.
sighvatur@frettabladid.is
Ungar athafnakonur ætla
að fjölmenna í Hörpu
Sigyn Jónsdóttir er formaður Ungra athafnakvenna en félagið var stofnað 2014. Í dag verður
haldin önnur ráðstefna félagsins þar sem fjallað verður um glerþakið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Félagið Ungar athafna-
konur stendur í dag fyrir
ráðstefnu í Hörpu undir
yfirskriftinni „Brotið gler-
þak til frambúðar“. Meðal
fyrirlesara eru Ragnhildur
Ágústsdóttir, Bergur Ebbi,
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, María Rut Kristins-
dóttir og Guðbjörg Heiða
Guðmundsdóttir. Frú Vig-
dís Finnbogadóttir mun
opna ráðstefnuna.
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 35L A U G A R D A G U R 1 6 . M A R S 2 0 1 9
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-B
D
2
0
2
2
9
2
-B
B
E
4
2
2
9
2
-B
A
A
8
2
2
9
2
-B
9
6
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K