Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 28
Nærmynd
Það kemur vinum og vandamönnum Þórdís-ar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur ekki á óvart að samstarfsmenn leiti til hennar þegar harðn-
ar á dalnum, líkt og raunin varð í
vikunni þegar Sigríður Á. Ander-
sen sagði af sér embætti og Þórdís
var skipuð dómsmálaráðherra í
hennar stað, að minnsta kosti tíma-
bundið. Gömul vinkona segir hana
eiga glæstan leiklistarferil að baki
og útilokar ekki endurkomu á stóra
sviðið, bróðir hennar segir Cheer-
ios hafa róandi áhrif á ráðherrann
og vinkona hennar úr stjórnmála-
starfinu segir að það þurfi ansi
mikið að ganga á til að ná henni úr
jafnvægi. Dagurinn sem Þórdís tók
við embætti ráðherra í fyrsta sinn,
yngst í lýðveldissögunni, beri því
glöggt vitni.
Þórdís Kolbrún og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari flokksins, ræða málin fyrir utan Valhöll á dögunum, en þeim er vel til vina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir
vinkona Þórdísar og
sjónvarpskokkur.
Ég kynntist Þórdísi þegar við vorum
að leika í leikritinu Almost Famous
sem leiklistarklúbbur Fjölbrauta
skóla Vesturlands setti upp fyrir
tíu,ellefu árum. Þar hófst okkar
leiklistarferill og sennilega dó
þar líka, og þó! Hver veit hvað við
gerum síðar?
Ég tel mig mjög heppna að hafa
kynnst henni Þórdísi minni og
hún fékk mig í ungliðastarf Sjálf
stæðisflokksins og örugglega eina
manneskjan í heiminum sem getur
og gat fengið mig til að mæta á
SUSþing á Ísafirði og rífa kjaft. Ég
hugsa að þið sjáið ekki þá Evu í mat
reiðsluþáttum en hún Þórdís hefur
nefnilega þann eiginleika að fá fólk
með sér í lið vegna þess að hún
talar hreint út, ekkert kjaftæði, hún
segir hlutina eins og þeir eru og er
aldrei að þykjast vera önnur en hún
er. Hún hlustar á aðra og í hennar
starfi tel ég það afar mikilvægt
og sömuleiðis virðir hún skoðanir
annarra og setur sig ekki á háan
hest. Svo er hún bara brjálæðislega
skemmtileg vinkona sem elskar
kökur jafn mikið og ég, ef það er
ekki ávísun á gott vinasamband
þá veit ég ekki hvað. Hún hlustar á
okkur vini sína og veitir öllu athygli,
og faðmar okkur fast. Mér þykir svo
vænt um þessa konu og dáist að
öllu sem hún tekur sér fyrir hendur
og treysti sennilega fáum eins vel
og henni. Hún er mikil fyrirmynd,
kjarnakona, ótrúlega góð mamma
og vinur vina sinna. Ég væri samt
alveg til í að hitta hana oftar þann
ig að við sem þjóð þurfum svolítið
að vera stilltari og þá næ ég henni
vonandi oftar í köku, díll?
Ásgeir H. Reykfjörð
bróðir Þórdísar og framkvæmda-
stjóri hjá Kviku banka.
„Það kemur mér ekki á óvart að
samstarfsfélagar Dísu skuli leita
til hennar þegar þörf krefur. Það
er gott að leita til hennar. Hún er
traust, einlæg og fylgin sér. Það fólk
sem fylgist með henni í stjórnmál
um er ekki að horfa á einhvern leika
hlutverkið, svona er hún. Verkefni
hennar og ríkisstjórnarinnar eru
mörg og töluverð óvissa í mála
flokkum sem hún ber ábyrgð á. Hún
hefur í kringum sig góða ráðgjafa,
Ólaf Teit [Guðnason], Hildi [Sverris
dóttur] og fleiri. Hún er einstaklega
vel gift og fjölskyldur þeirra hjóna
veita þeim mikinn stuðning svo að
ég veit að hún mun gera þetta vel.
Hún er gædd þeim hæfileika að
geta útilokað smáatriði og mjög
fátt kemur henni úr jafnvægi. Þegar
hún var smákrakki þá gat maður
leyst flest mál með því að setja
Cheerios á borðið. Það virðist enn
þá hafa róandi áhrif á hana. Daginn
sem hún tók við dómsmálaráðu
neytinu þá heyrði ég í henni sím
leiðis borðandi Cheerios á leiðinni
á Bessastaði í ráðherrabílnum. Það
kom mér heldur ekki á óvart.
Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir
vinkona úr starfi Sjálfstæðis-
flokksins og aðstoðarmaður
Kristjáns Þórs Júlíussonar.
Við Þórdís Kolbrún höfum starfað
lengi saman í Sjálfstæðisflokknum.
Hún er allt í senn eldklár, traust og
ofboðslega skemmtileg. Árangur
hennar og frami hefur alls ekki
komið mér á óvart og Sjálfstæðis
flokkurinn þarf á fólki eins og Þór
dísi að halda.
Þórdís er ein yfirvegaðasta
manneskja sem ég þekki. Gott
dæmi um það er þegar hún varð
ráðherra í fyrsta sinn. Þegar ég kom
við hjá þeim Hjalta í Furugrundinni
í Kópavogi, 45 mínútum fyrir ríkis
ráðsfundinn sat Þórdís við eldhús
borðið, pollróleg, með hárið út um
allt og brjóstapumpuna á fullu til að
passa að nóg yrði til fyrir litlu Krist
ínu Fjólu meðan mamman tæki við
embætti, yngst allra ráðherra í lýð
veldissögunni.
Í ofanálag var hún ekki búin að
ákveða í hverju hún ætlaði að vera
og lítill tími til stefnu. Eftir svona
fjóra hringi á hringtorgi í Kópavogi
ákváðum við að taka stefnuna í
Hafnarfjörð. Hringdum í eina góða
fatabúð og báðum um að að tekinn
yrði frá samfestingur og geymdur
í mátunarklefanum. Þórdís hljóp
inn, mátaði og keypti. Fattaði svo
reyndar á leiðinni út að hún var
ekki í spariskóm, svo við fengum þá
lánaða á staðnum. Næst áttaði hún
sig á því að hún væri skartgripalaus
og mamma hennar myndi ekki taka
því létt. Þetta reddaðist þannig að
Svanhildur Hólm [aðstoðarmaður
Bjarna Benediktssonar] laumaði sér
inn í bílinn á Bessastöðum svo lítið
bar á, tók af sér allt skart og smellti
á Þórdísi. Ýmislegt annað gekk á
þennan dag, en mikilvægast var að
Þórdís mætti á réttum tíma, salla
fín, eins og ekkert hefði í skorist.
Þetta er Þórdís í hnotskurn, gengur
í þau verk sem þarf að klára, hvað
sem gengur á.
Þórdís er frekar gömul sál og þess
vegna kemur tónlistarsmekkur
hennar mér alltaf jafn mikið á
óvart. Í honum kristallast okkar
helsta ágreiningsefni. Okkar kona
vill allra helst hlusta á íslenskt rapp
og finnst fátt skemmtilegra en góð
vinastund á dansgólfinu á Helgu
braut með Jóa Pé og Króla, Herra
Hnetusmjör, Hugin eða Emmsjé
Gauta í botni, nágrönnum örugg
lega stundum til hóflegrar gleði.
Unnur Lilja
Hermannsdóttir
vinkona úr HR og lögmaður
á Landslögum.
Við Þórdís kynntumst fljótlega
eftir að við hófum nám í lögfræði
við Háskólann í Reykjavík árið 2007.
Þar var hún í hópi vina og kunningja
ofan af Skaga og við ásamt góðum
hópi laganema hópuðumst fljót
lega saman. Skemmst er frá því að
segja að það hefur verið ótrúlega
gaman að fylgjast með Þórdísi og
hennar starfsferli frá útskrift. Mér
varð fljótt ljóst hversu auðvelt hún
átti með samtöl um hinn pólitíska
vettvang við vini og samnemendur
og skipti þar engu máli hvar staðið
var á hinu pólitíska litrófi. Þórdís
kann nefnilega að hlusta á mismun
andi skoðanir annarra og svara þeim
með rökum og virðingu. Ég hef
ávallt dáðst að þessum eiginleika
hennar. Þórdís er ekki þessi týpa
sem miklar fyrir sér hlutina eins og
fólkið í landinu hefur líklegast tekið
eftir á undanförnum dögum en að
sama skapi nálgast hún öll verkefni
af mikilli virðingu. Fyrir utan þessa
augljósu kosti er nauðsynlegt að
minnast á að hún er ekki síður
sterk(ust)! á félagslegu hliðinni. Þær
eru ófáar gleðistundirnar sem við
höfum átt saman og það er alltaf
jafn gaman og notalegt að koma á
heimili hennar og Hjalta en Þórdís
er mikil fjölskyldumanneskja – góð
mamma og gefur sér tíma fyrir sitt
fólk. Þetta hljómar náttúrulega allt
eins og gott ævintýri en svona er
einfaldlega mín kona!
Rappelskandi ráðherra
með ráð undir rifi hverju
Vinir og vandamenn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur lýsa henni sem yfirveg-
aðri, sannfærandi og traustri. Henni er lýst sem úrræðagóðum og glaðværum stuðbolta
sem elskar að dansa við íslenskt rapp heima í stofu, nágrönnum hennar til hóflegrar gleði.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
Fædd: 4. nóvember 1987
Maki: Hjalti Mogensen
Börn: Marvin Gylfi og Kristín Fjóla
Embætti: Ráðherra dómsmála,
ferðamála, nýsköpunar og iðnaðar
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
9
2
-A
9
6
0
2
2
9
2
-A
8
2
4
2
2
9
2
-A
6
E
8
2
2
9
2
-A
5
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K