Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 16.03.2019, Blaðsíða 20
KA/Þór - Fram 29-27 KA/Þór: Martha Hermannsdóttir 10, Sólveig Lára Kristjánsdóttir 8, Rakel Sara Elvarsdóttir 4, Ásdís Guðmundsdóttir 2, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Katrín Vilhjálms- dóttir 2, Ólöf María Hlynsdóttir 1. Fram: Steinunn Björnsdóttir 6, Þórey Rósa Stefánsdóttir 5, Hildur Þorgeirsdóttir 5, Elva Þóra Arnardóttir 3, Karen Knútsdóttir 3, Unnur Ómarsdóttir 2, Ragnheiður Júlíus- dóttir 2, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 1. Nýjast Olís-deild kvenna Efri Valur 30 Fram 29 Haukar 23 ÍBV 21 Neðri KA/Þór 19 Stjarnan 11 HK 9 Selfoss 4 AÐAL- FUNDUR BYGGIÐNAR Aðalfundur Byggiðnar – Félags Byggingamanna verður haldinn fimmtudaginn 28. MARS NK, KL. 18:00 Á STÓRHÖFÐA 31, REYKJAVÍK (gengið inn Grafarvogsmegin) og SKIPAGÖTU 14, AKUREYRI. Auk venjulegra aðalfundarstarfa verða kosnir fulltrúar félagsins á aðalfundi Birtu, lífeyrissjóðs, Stapa lífeyrissjóðs og á þing Samiðnar sem haldið verður í byrjun maí. Eftir aðalfund er boðið upp á kvöldverð. Stjórnin. Málsvari byggingamanna | byggidn.is Félagsmenn á höfuðborgarsvæðinu athugið að félagið er flutt á Stórhöfða 31. FÓTBOLTI Dregið var í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í gær þar sem Manchester United fékk enn eitt erfiða verkefnið, að reyna að slá út Lionel Messi og félaga í Barce- lona. Liðin mættust tvisvar fyrir tíu og átta árum í úrslitaleik Meistara- deildarinnar þar sem Barcelona fór með sigur af hólmi en hafa ekki mæst síðan. Blálitir Manchester-menn í Manchester City fengu kunnuglega andstæðinga því City mætir Totten- ham í átta liða úrslitunum. City hefur einu sinni komist í undan- úrslit Meistaradeildarinnar en Tot- tenham hefur aldrei komist lengra en í átta liða úrslitin. Þá mætast Liverpool og Porto í útsláttarkeppninni annað árið í röð og Ajax sem varð fyrsta liðið í fjögur ár til að senda Real Madrid úr keppninni fær Cristiano Ronaldo og liðsfélaga í ítalska stórveldinu Juventus. – kpt Man. United fer á Nývang AMERÍSKUR FÓTBOLTI Íslenska ruðn- ingsliðið Einherjar sem keppir í amerískum fótbolta mætir banda- ríska liðinu Empire State Wolfpack í Kórnum í kvöld. Er þetta ellefti leikur Einherja en jafnframt sá fyrsti sem þeir leika gegn banda- rísku liði. Empire State Wolfpack er lið frá New York sem keppir sem hálf- atvinnumannalið í Bandaríkjun- um. Þeir léku til úrslita í deildinni sinni á austurströnd Bandaríkjanna á síðasta tímabili og er um að ræða einn sterkasta mótherja sem Ein- herjar hafa mætt. Þetta er annar leikur Einherja á þessu ári eftir 41-13 sigur á þýska liðinu Hof Jokers í síðasta mánuði. Íslenska liðið hefur verið á siglingu og unnið síðustu fjóra leiki sína en af tíu leikjum liðsins frá upphafi hafa Einherjar unnið sjö. Tíma- bilinu lýkur með leik gegn Kuopio Steelers frá Finnlandi í maí. „Undirbúningurinn hefur gengið vel, það eru bara tvær vikur síðan við spiluðum síðast og við njótum góðs af undirbúningnum fyrir þann leik í dag. Í síðasta leik gekk allt upp á tíu sem gefur okkur mikið fyrir þennan leik,“ segir Bergþór Pálsson, leikstjórnandi (e. quarterback) Ein- herja. „Við sáum þá á æfingu, þessi leikur er hluti af undirbúningstíma- bili þeirra og þetta er gríðarlega sterkt lið. Maður hefur varla séð annað eins og það sem þeir sýndu á æfingunni, hver einasti leikmaður Mæta gríðarsterkum mótherja í kvöld Frá leik Einherja á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI var eins og sá besti í liðunum sem við höfum verið að mæta. Þeir eru stærri, sterkari og f ljótari en and- stæðingar okkar til þessa en það verður gaman að prófa hvar við stöndum. Okkur hefur gengið vel að undanförnu og við förum inn í þetta til að vinna leikinn.“ Shaun Spencer, eigandi Empire State Wolfpacks, á von á erfiðum leik eftir að hafa skoðað lið Ein- herja. „Við erum búnir að skoða leiki og fengum að fylgjast með æfingu hjá Einherja. Þeir eru með sterkt lið. Við þurfum að passa vel upp á leik- stjórnandann þeirra, hann getur hlaupið og kastað og það eru öflugir varnarmenn innan hópsins,“ sagði Shaun sem tók því fagnandi að spila á Íslandi. „Það hafa nokkrir spilað utan Bandaríkjanna en þetta er öðruvísi og spennandi tækifæri.“ – kpt Þeir eru flestir stærri, sterkari og fljótari en andstæðingar okkar til þessa. Bergþór Pálsson, leikstjórnandi Einherja 6 bardaga í röð hefur and- stæðingur Gunnars unnið. 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MMA Bardagakappinn Gunnar Nel- son mætir Bretanum Leon Edwards inni í búrinu í London um helgina. Þetta er annar bardagi Gunnars á síðustu fjórum mánuðum eftir sautj- án mánaða fjarveru vegna meiðsla og fær hann verðugan andstæðing í Edwards og það í heimalandi hans. Leon er í tíunda sæti styrkleikalist- ans í veltivigt, þremur sætum fyrir ofan Gunnar og kemur inn í þennan bardaga fullur sjálfstrausts eftir sex sigra í röð undanfarin þrjú ár. Bardagi Gunnars er einn af aðal- bardögum kvöldsins (e. co-main event) ásamt bardaga Darrens Till og Jorge Masvidal og fer fram í O2-höll- inni í London. Bardagakvöldið hefst klukkan 17.00 að íslenskum tíma og má áætla að Gunnar stígi inn í búrið fyrir bardagann um tíuleytið. Edwards, sem er 27 ára, er fæddur á Jamaíku en fluttist ungur að árum til Birmingham á Englandi. Hann byrjaði snemma að æfa bardaga- listir og barðist í fyrsta sinn innan UFC 23 ára gamall og tapaði tveimur af fyrstu fjórum bardögum ferilsins. Annar bardagi hans innan UFC vakti athygli enda stöðvaði dómar- inn bardagann eftir átta sekúndur þegar Edwards var búinn að slá Seth Baczynski í gólfið og láta höggin dynja þar til hann var stöðvaður. Hefur aðeins einn bardagi innan veltivigtarinnar tekið skemmri tíma en þessar átta sekúndur sem það tók Edwards að leggja hinn pólska Baczynski á heimavelli hans í Pól- landi. Í tíu bardögum Edwards innan UFC hafa sjö ráðist af dómaraúr- skurði sem gefur til kynna að hann sé ekki fljótur að þreytast og af síð- ustu sex sigrum hans unnust fjórir þeirra á dómaraúrskurði eftir að ekki tókst að útkljá sigurvegara í til- ætluðum lotum. Gunnar færðist upp um tvö sæti á styrkleikalista UFC þegar hann vann öruggan sigur á Alex Oliveira í Toronto. Sviðsljósið var á Íslend- ingnum fyrir bardagann gegn Oli- veira eftir langa fjarveru vegna meiðsla og stóðst hann prófið með hæstu einkunn þegar hann sigraði Oliveira með hengingartaki. Það skilaði honum í tólfta sætið á sínum tíma en með sigri í kvöld gæti Gunn- ar blandað sér í hóp þeirra tíu efstu á styrkleikalista UFC. Með því ættu að opnast möguleikarnir á stærri bar- dögum í framtíðinni fyrir íslenska bardagakappann. kristinnpall@frettabladid.is SPORT Gunnar mætir Leon í kvöld Bardagakappinn Gunnar Nelson mætir Bretanum Leon Edwards inni í búrinu í London um helgina. Edwards er á heimavelli og mætir fullur sjálfstrausts enda hefur hann unnið síðustu sex bardaga sína. Það fór vel á með Leon Edwards og Gunnari á fjölmiðlaviðburðum í aðdraganda bardagans . NORDICPHOTOS/GETTY 1 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 1 2 8 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 2 -9 A 9 0 2 2 9 2 -9 9 5 4 2 2 9 2 -9 8 1 8 2 2 9 2 -9 6 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.