Fréttablaðið - 16.03.2019, Síða 100

Fréttablaðið - 16.03.2019, Síða 100
Á MÓTI Hroðaleg tímaskekkja Björn Þorsteinsson prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands „Breytingar eru í vændum – hvort sem ykkur líkar það betur eða verr.“ Þessi orð aðgerðasinnans Gretu Thunberg, sem hún beindi til ráðamanna ríkja og alþjóða- stofnana á fundi um loftslagsvand- ann nýverið, eru í senn aðvörun og áskorun, áminning og hvatning. Sú staðreynd að Greta Thunberg er ung að árum, yngri en allir ráðamenn- irnir sem hún beindi orðum sínum að og yngri en f lestir lesendur Fréttablaðsins, ljær orðum hennar margfalt vægi. „Sérhver ný kynslóð verður að frelsa heiminn / Með því að skapa hann í sinni mynd,“ orti Jóhannes úr Kötlum – og óhætt er að fullyrða að þetta verkefni kyn- slóðanna, að frelsa heiminn og skapa nýjan heim í leiðinni, hefur aldrei verið jafn tröllaukið og nú. Heimurinn sem við blasir í sam- tímanum er úr lagi genginn – og einhver þarf að kippa honum í lið, einhver þarf að taka að sér að koma honum í lag. Það er hins vegar ekk- ert áhlaupaverk, og stjórnvöld þessa heims, bæði af hálfu ríkisvalds, alþjóðastofnana og stórfyrirtækja, hafa hingað til ekki reynst fær um annað en að framleiða handa okkur innantóman hráskinnaleik sem ýmist virkar ógnvænlegur í heimsku sinni eða grátbroslegur í yfirborðsklóri sínu. Unga fólkið, með Gretu Thun- berg í broddi fylkingar, vekur upp langþráða von um að nú sé loks að renna upp það skeið þegar raun- verulegar breytingar verða, þær breytingar sem við þurfum öll á að halda, sé það á annað borð ætl- unarverk okkar að bjarga mann- kyninu. En vandinn er sá að tíminn er naumur, og unga kynslóðin getur hreinlega ekki beðið lengur eftir því að við, hrímþursarnir, risaeðlurnar og blekkingasmiðirnir, rönkum við okkur og tökum til óspilltra mál- anna. Án okkar geta þau því miður ekki bjargað framtíð sinni. Ég er andvígur því að Háskóli Íslands leggi lóð sín á vogarskálar þess úr sér gengna og óréttláta samfélags sem nú nálgast endalok sín – samfélags þar sem fjármagn hefur meira frelsi en fólk, þar sem kynt er undir frumstæðri hræðslu við ókunnuga í þeim tilgangi að sporna gegn hvers kyns breytingum í réttlætisátt, þar sem raunverulegar orsakir þeirra hræringa sem nú eiga sér stað á hnettinum eru duldar undir stöðugum straumi lygafrétta, kattamyndbanda og frásagna af nýjustu vitleysunni í Bandaríkja- forseta, þar sem fólk á f lótta undan stríðsátökum og hungursneyðum sem rekja má til ofneyslu og ásælni Vesturlanda er hundelt og skipulega niðurlægt í stað þess að taka því fagnandi og leyfa því að blómstra. Þátttaka Háskóla Íslands í tann- greiningu ungra hælisleitenda er hroðaleg tímaskekkja sem skipar æðstu menntastofnun þjóðarinnar í hóp þeirra sem láta fara vel um sig á fyrsta farrými hraðskreiðu ferjunnar til Feigðaróss – og seilast eftir kokteilnum. ÞETTA ER AÐ MÍNU MATI ÁBYRG AFSTAÐA Í FLÓKNU SIÐFERÐISLEGU ÁLITA- MÁLI. ÉG ER ANDVÍGUR ÞVÍ AÐ HÁSKÓLI ÍSLANDS LEGGI LÓÐ SÍN Á VOGARSKÁLAR ÞESS ÚR SÉR GENGNA OG ÓRÉTTLÁTA SAMFÉLAGS SEM NÚ NÁLGAST ENDA- LOK SÍN. Á Háskóli Íslands að framkvæma aldursgreiningar á hælisleitendum? Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki, og Jón Atli Bene- diktsson, rektor Háskóla Íslands, rökræða um aldursgreining- ar og eru á öndverðum meiði. Háskólaráð staðfesti á dögunum þjónustusamning við Útlendingastofnun um að framkvæma hluta aldursgreiningar á ungum hælisleitendum á Íslandi en setti þó ýmis skilyrði. Tannlæknadeild Háskóla Íslands mun framkvæma rannsókn á hælisleitendum sem verulegur vafi þykir leika á að segi satt um aldur. Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki. MYND/KRISTINN INGVARSSON Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. MYND/KRISTINN INGVARSSON MEÐ Eina opinbera tann- læknastofa landsins Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands Það er alls ekki sjálfsagt að Háskóli Íslands hafi aðkomu að slíku. Þeir sem sækja um alþjóðlega vernd eru í afar viðkvæmri stöðu og verðskulda að málefni þeirra séu meðhöndluð af virðingu og fagmennsku. Innan Háskólans hefur undan- farin misseri einmitt átt sér stað gagnrýnin umræða um aðkomu skólans að aldursgreiningum og það er umræða sem ég hef fylgst grannt með og þótt gagnleg. Þessi umræða varð meðal ann- ars til þess að háskólaráð ákvað að skipa starfshóp til að fara yfir álita- mál varðandi aldursgreiningar. Starfshópurinn fékk meðal annars til viðtals umboðsmann barna, full- trúa frá Rauða krossinum og full- trúa frá Siðfræðistofnun. HÍ hefur það mikilvæga hlut- verk að veita íslensku þjóðfélagi þjónustu í krafti þekkingar. Tann- læknadeild er eina opinbera tann- læknastofa landsins, en í saman- burðarríkjum sem starfshópurinn horfði til eru sambærilegar grein- ingar framkvæmdar af sérfræð- ingum í réttartannlækningum sem starfa hjá opinberum stofnunum. Innan Tannlæknadeildar er bæði tækjakostur og nauðsynleg sér- þekking í réttartannlækningum og deildin tekur þátt í alþjóðlegu sam- starfi tengdu þessu málefni. Niðurstaða starfshóps háskóla- ráðs var sú að setja ætti skýrari skil- yrði og ramma utan um aðkomu HÍ að því flókna og viðkvæma ferli sem fer í gang þegar grunur leikur á að umsækjendur um alþjóðlega vernd segi ekki rétt til aldurs í von um að njóta ríkari verndar. Verksamning- ur um þetta yrði einungis til eins árs en endurskoðun hans hæfist strax að níu mánuðum liðnum. Á samn- ingstímanum yrði fylgst með þróun mála varðandi aldursgreiningar almennt, siðferðileg álitaefni og aðferðir við aldursgreiningar. Þessi skilyrði taka meðal annars mið af þeirri umræðu sem átti sér stað innan Háskólans, í samfélaginu öllu og ábendingum úr viðtölum. Skilyrðin eru meðal annars þau að lögð verði áhersla á að ákvarð- anir Útlendingastofnunar (ÚTL) byggist á heildstæðu mati á aldri einstaklings, það er, að tekið verði tillit til f leiri þátta við mat á aldri en greiningar sérfræðinga Tann- læknadeildar HÍ og að slík greining verði aldrei gerð nema fyrir liggi staðfesting frá ÚTL um að enn leiki verulegur vafi á aldri viðkomandi eftir að aðrar aðferðir til aldurs- greiningar hafi verið fullreyndar. Þetta er að mínu mati ábyrg afstaða í f lóknu siðferðislegu álita- máli. Við erum þrátt fyrir þessa niður stöðu vel meðvituð um að enn má gera betur í meðferð stjórn- valda á málefnum umsækjenda um alþjóðlega vernd og að vinnulagið kunni að taka breytingum. Ég hef af því tilefni, og í samræmi við niður- stöður starfshópsins, sent dóms- málaráðherra bréf þess efnis að bókun Barnaréttarnefndar Samein- uðu þjóðanna um aldursgreiningar frá 16. nóvember 2017 kunni að gefa tilefni til þess að endurskoða þurfi lög um útlendinga í ljósi þess að ríkjum beri almennt að haga löggjöf sinni í samræmi við mannréttinda- samninga sem þau eru aðilar að. MEÐ OG Á MÓTI 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 1 2 8 s _ P 1 0 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 9 2 -9 A 9 0 2 2 9 2 -9 9 5 4 2 2 9 2 -9 8 1 8 2 2 9 2 -9 6 D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.