Fréttablaðið - 16.03.2019, Qupperneq 100
Á MÓTI
Hroðaleg tímaskekkja
Björn Þorsteinsson
prófessor í heimspeki
við Háskóla Íslands
„Breytingar eru í vændum – hvort
sem ykkur líkar það betur eða
verr.“ Þessi orð aðgerðasinnans
Gretu Thunberg, sem hún beindi
til ráðamanna ríkja og alþjóða-
stofnana á fundi um loftslagsvand-
ann nýverið, eru í senn aðvörun og
áskorun, áminning og hvatning. Sú
staðreynd að Greta Thunberg er ung
að árum, yngri en allir ráðamenn-
irnir sem hún beindi orðum sínum
að og yngri en f lestir lesendur
Fréttablaðsins, ljær orðum hennar
margfalt vægi. „Sérhver ný kynslóð
verður að frelsa heiminn / Með því
að skapa hann í sinni mynd,“ orti
Jóhannes úr Kötlum – og óhætt er
að fullyrða að þetta verkefni kyn-
slóðanna, að frelsa heiminn og
skapa nýjan heim í leiðinni, hefur
aldrei verið jafn tröllaukið og nú.
Heimurinn sem við blasir í sam-
tímanum er úr lagi genginn – og
einhver þarf að kippa honum í lið,
einhver þarf að taka að sér að koma
honum í lag. Það er hins vegar ekk-
ert áhlaupaverk, og stjórnvöld þessa
heims, bæði af hálfu ríkisvalds,
alþjóðastofnana og stórfyrirtækja,
hafa hingað til ekki reynst fær
um annað en að framleiða handa
okkur innantóman hráskinnaleik
sem ýmist virkar ógnvænlegur í
heimsku sinni eða grátbroslegur í
yfirborðsklóri sínu.
Unga fólkið, með Gretu Thun-
berg í broddi fylkingar, vekur upp
langþráða von um að nú sé loks að
renna upp það skeið þegar raun-
verulegar breytingar verða, þær
breytingar sem við þurfum öll á
að halda, sé það á annað borð ætl-
unarverk okkar að bjarga mann-
kyninu. En vandinn er sá að tíminn
er naumur, og unga kynslóðin getur
hreinlega ekki beðið lengur eftir því
að við, hrímþursarnir, risaeðlurnar
og blekkingasmiðirnir, rönkum við
okkur og tökum til óspilltra mál-
anna. Án okkar geta þau því miður
ekki bjargað framtíð sinni.
Ég er andvígur því að Háskóli
Íslands leggi lóð sín á vogarskálar
þess úr sér gengna og óréttláta
samfélags sem nú nálgast endalok
sín – samfélags þar sem fjármagn
hefur meira frelsi en fólk, þar sem
kynt er undir frumstæðri hræðslu
við ókunnuga í þeim tilgangi að
sporna gegn hvers kyns breytingum
í réttlætisátt, þar sem raunverulegar
orsakir þeirra hræringa sem nú eiga
sér stað á hnettinum eru duldar
undir stöðugum straumi lygafrétta,
kattamyndbanda og frásagna af
nýjustu vitleysunni í Bandaríkja-
forseta, þar sem fólk á f lótta undan
stríðsátökum og hungursneyðum
sem rekja má til ofneyslu og ásælni
Vesturlanda er hundelt og skipulega
niðurlægt í stað þess að taka því
fagnandi og leyfa því að blómstra.
Þátttaka Háskóla Íslands í tann-
greiningu ungra hælisleitenda er
hroðaleg tímaskekkja sem skipar
æðstu menntastofnun þjóðarinnar
í hóp þeirra sem láta fara vel um
sig á fyrsta farrými hraðskreiðu
ferjunnar til Feigðaróss – og seilast
eftir kokteilnum.
ÞETTA ER AÐ MÍNU MATI
ÁBYRG AFSTAÐA Í FLÓKNU
SIÐFERÐISLEGU ÁLITA-
MÁLI.
ÉG ER ANDVÍGUR ÞVÍ AÐ
HÁSKÓLI ÍSLANDS LEGGI
LÓÐ SÍN Á VOGARSKÁLAR
ÞESS ÚR SÉR GENGNA OG
ÓRÉTTLÁTA SAMFÉLAGS
SEM NÚ NÁLGAST ENDA-
LOK SÍN.
Á Háskóli Íslands
að framkvæma
aldursgreiningar
á hælisleitendum?
Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki, og Jón Atli Bene-
diktsson, rektor Háskóla Íslands, rökræða um aldursgreining-
ar og eru á öndverðum meiði. Háskólaráð staðfesti á dögunum
þjónustusamning við Útlendingastofnun um að framkvæma
hluta aldursgreiningar á ungum hælisleitendum á Íslandi en
setti þó ýmis skilyrði. Tannlæknadeild Háskóla Íslands mun
framkvæma rannsókn á hælisleitendum sem verulegur vafi
þykir leika á að segi satt um aldur.
Björn Þorsteinsson, prófessor í heimspeki. MYND/KRISTINN INGVARSSON
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands. MYND/KRISTINN INGVARSSON
MEÐ
Eina opinbera tann-
læknastofa landsins
Jón Atli Benediktsson
rektor Háskóla Íslands
Það er alls ekki sjálfsagt að Háskóli
Íslands hafi aðkomu að slíku. Þeir
sem sækja um alþjóðlega vernd eru í
afar viðkvæmri stöðu og verðskulda
að málefni þeirra séu meðhöndluð
af virðingu og fagmennsku.
Innan Háskólans hefur undan-
farin misseri einmitt átt sér stað
gagnrýnin umræða um aðkomu
skólans að aldursgreiningum og það
er umræða sem ég hef fylgst grannt
með og þótt gagnleg.
Þessi umræða varð meðal ann-
ars til þess að háskólaráð ákvað að
skipa starfshóp til að fara yfir álita-
mál varðandi aldursgreiningar.
Starfshópurinn fékk meðal annars
til viðtals umboðsmann barna, full-
trúa frá Rauða krossinum og full-
trúa frá Siðfræðistofnun.
HÍ hefur það mikilvæga hlut-
verk að veita íslensku þjóðfélagi
þjónustu í krafti þekkingar. Tann-
læknadeild er eina opinbera tann-
læknastofa landsins, en í saman-
burðarríkjum sem starfshópurinn
horfði til eru sambærilegar grein-
ingar framkvæmdar af sérfræð-
ingum í réttartannlækningum sem
starfa hjá opinberum stofnunum.
Innan Tannlæknadeildar er bæði
tækjakostur og nauðsynleg sér-
þekking í réttartannlækningum og
deildin tekur þátt í alþjóðlegu sam-
starfi tengdu þessu málefni.
Niðurstaða starfshóps háskóla-
ráðs var sú að setja ætti skýrari skil-
yrði og ramma utan um aðkomu HÍ
að því flókna og viðkvæma ferli sem
fer í gang þegar grunur leikur á að
umsækjendur um alþjóðlega vernd
segi ekki rétt til aldurs í von um að
njóta ríkari verndar. Verksamning-
ur um þetta yrði einungis til eins árs
en endurskoðun hans hæfist strax
að níu mánuðum liðnum. Á samn-
ingstímanum yrði fylgst með þróun
mála varðandi aldursgreiningar
almennt, siðferðileg álitaefni og
aðferðir við aldursgreiningar.
Þessi skilyrði taka meðal annars
mið af þeirri umræðu sem átti sér
stað innan Háskólans, í samfélaginu
öllu og ábendingum úr viðtölum.
Skilyrðin eru meðal annars þau
að lögð verði áhersla á að ákvarð-
anir Útlendingastofnunar (ÚTL)
byggist á heildstæðu mati á aldri
einstaklings, það er, að tekið verði
tillit til f leiri þátta við mat á aldri
en greiningar sérfræðinga Tann-
læknadeildar HÍ og að slík greining
verði aldrei gerð nema fyrir liggi
staðfesting frá ÚTL um að enn leiki
verulegur vafi á aldri viðkomandi
eftir að aðrar aðferðir til aldurs-
greiningar hafi verið fullreyndar.
Þetta er að mínu mati ábyrg
afstaða í f lóknu siðferðislegu álita-
máli. Við erum þrátt fyrir þessa
niður stöðu vel meðvituð um að
enn má gera betur í meðferð stjórn-
valda á málefnum umsækjenda um
alþjóðlega vernd og að vinnulagið
kunni að taka breytingum. Ég hef af
því tilefni, og í samræmi við niður-
stöður starfshópsins, sent dóms-
málaráðherra bréf þess efnis að
bókun Barnaréttarnefndar Samein-
uðu þjóðanna um aldursgreiningar
frá 16. nóvember 2017 kunni að gefa
tilefni til þess að endurskoða þurfi
lög um útlendinga í ljósi þess að
ríkjum beri almennt að haga löggjöf
sinni í samræmi við mannréttinda-
samninga sem þau eru aðilar að.
MEÐ OG Á MÓTI
1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
9
2
-9
A
9
0
2
2
9
2
-9
9
5
4
2
2
9
2
-9
8
1
8
2
2
9
2
-9
6
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
1
5
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K