Fréttablaðið - 16.03.2019, Side 28

Fréttablaðið - 16.03.2019, Side 28
Nærmynd Það kemur vinum og vandamönnum Þórdís-ar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur ekki á óvart að samstarfsmenn leiti til hennar þegar harðn- ar á dalnum, líkt og raunin varð í vikunni þegar Sigríður Á. Ander- sen sagði af sér embætti og Þórdís var skipuð dómsmálaráðherra í hennar stað, að minnsta kosti tíma- bundið. Gömul vinkona segir hana eiga glæstan leiklistarferil að baki og útilokar ekki endurkomu á stóra sviðið, bróðir hennar segir Cheer- ios hafa róandi áhrif á ráðherrann og vinkona hennar úr stjórnmála- starfinu segir að það þurfi ansi mikið að ganga á til að ná henni úr jafnvægi. Dagurinn sem Þórdís tók við embætti ráðherra í fyrsta sinn, yngst í lýðveldissögunni, beri því glöggt vitni. Þórdís Kolbrún og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ritari flokksins, ræða málin fyrir utan Valhöll á dögunum, en þeim er vel til vina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir vinkona Þórdísar og sjónvarpskokkur. Ég kynntist Þórdísi þegar við vorum að leika í leikritinu Almost Famous sem leiklistarklúbbur Fjölbrauta­ skóla Vesturlands setti upp fyrir tíu,ellefu árum. Þar hófst okkar leiklistarferill og sennilega dó þar líka, og þó! Hver veit hvað við gerum síðar? Ég tel mig mjög heppna að hafa kynnst henni Þórdísi minni og hún fékk mig í ungliðastarf Sjálf­ stæðisflokksins og örugglega eina manneskjan í heiminum sem getur og gat fengið mig til að mæta á SUS­þing á Ísafirði og rífa kjaft. Ég hugsa að þið sjáið ekki þá Evu í mat­ reiðsluþáttum en hún Þórdís hefur nefnilega þann eiginleika að fá fólk með sér í lið vegna þess að hún talar hreint út, ekkert kjaftæði, hún segir hlutina eins og þeir eru og er aldrei að þykjast vera önnur en hún er. Hún hlustar á aðra og í hennar starfi tel ég það afar mikilvægt og sömuleiðis virðir hún skoðanir annarra og setur sig ekki á háan hest. Svo er hún bara brjálæðislega skemmtileg vinkona sem elskar kökur jafn mikið og ég, ef það er ekki ávísun á gott vinasamband þá veit ég ekki hvað. Hún hlustar á okkur vini sína og veitir öllu athygli, og faðmar okkur fast. Mér þykir svo vænt um þessa konu og dáist að öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og treysti sennilega fáum eins vel og henni. Hún er mikil fyrirmynd, kjarnakona, ótrúlega góð mamma og vinur vina sinna. Ég væri samt alveg til í að hitta hana oftar þann­ ig að við sem þjóð þurfum svolítið að vera stilltari og þá næ ég henni vonandi oftar í köku, díll? Ásgeir H. Reykfjörð bróðir Þórdísar og framkvæmda- stjóri hjá Kviku banka. „Það kemur mér ekki á óvart að samstarfsfélagar Dísu skuli leita til hennar þegar þörf krefur. Það er gott að leita til hennar. Hún er traust, einlæg og fylgin sér. Það fólk sem fylgist með henni í stjórnmál­ um er ekki að horfa á einhvern leika hlutverkið, svona er hún. Verkefni hennar og ríkisstjórnarinnar eru mörg og töluverð óvissa í mála­ flokkum sem hún ber ábyrgð á. Hún hefur í kringum sig góða ráðgjafa, Ólaf Teit [Guðnason], Hildi [Sverris­ dóttur] og fleiri. Hún er einstaklega vel gift og fjölskyldur þeirra hjóna veita þeim mikinn stuðning svo að ég veit að hún mun gera þetta vel. Hún er gædd þeim hæfileika að geta útilokað smáatriði og mjög fátt kemur henni úr jafnvægi. Þegar hún var smákrakki þá gat maður leyst flest mál með því að setja Cheerios á borðið. Það virðist enn þá hafa róandi áhrif á hana. Daginn sem hún tók við dómsmálaráðu­ neytinu þá heyrði ég í henni sím­ leiðis borðandi Cheerios á leiðinni á Bessastaði í ráðherrabílnum. Það kom mér heldur ekki á óvart. Inga Hrefna Sveinbjarnardóttir vinkona úr starfi Sjálfstæðis- flokksins og aðstoðarmaður Kristjáns Þórs Júlíussonar. Við Þórdís Kolbrún höfum starfað lengi saman í Sjálfstæðisflokknum. Hún er allt í senn eldklár, traust og ofboðslega skemmtileg. Árangur hennar og frami hefur alls ekki komið mér á óvart og Sjálfstæðis­ flokkurinn þarf á fólki eins og Þór­ dísi að halda. Þórdís er ein yfirvegaðasta manneskja sem ég þekki. Gott dæmi um það er þegar hún varð ráðherra í fyrsta sinn. Þegar ég kom við hjá þeim Hjalta í Furugrundinni í Kópavogi, 45 mínútum fyrir ríkis­ ráðsfundinn sat Þórdís við eldhús­ borðið, pollróleg, með hárið út um allt og brjóstapumpuna á fullu til að passa að nóg yrði til fyrir litlu Krist­ ínu Fjólu meðan mamman tæki við embætti, yngst allra ráðherra í lýð­ veldissögunni. Í ofanálag var hún ekki búin að ákveða í hverju hún ætlaði að vera og lítill tími til stefnu. Eftir svona fjóra hringi á hringtorgi í Kópavogi ákváðum við að taka stefnuna í Hafnarfjörð. Hringdum í eina góða fatabúð og báðum um að að tekinn yrði frá samfestingur og geymdur í mátunarklefanum. Þórdís hljóp inn, mátaði og keypti. Fattaði svo reyndar á leiðinni út að hún var ekki í spariskóm, svo við fengum þá lánaða á staðnum. Næst áttaði hún sig á því að hún væri skartgripalaus og mamma hennar myndi ekki taka því létt. Þetta reddaðist þannig að Svanhildur Hólm [aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar] laumaði sér inn í bílinn á Bessastöðum svo lítið bar á, tók af sér allt skart og smellti á Þórdísi. Ýmislegt annað gekk á þennan dag, en mikilvægast var að Þórdís mætti á réttum tíma, salla­ fín, eins og ekkert hefði í skorist. Þetta er Þórdís í hnotskurn, gengur í þau verk sem þarf að klára, hvað sem gengur á. Þórdís er frekar gömul sál og þess vegna kemur tónlistarsmekkur hennar mér alltaf jafn mikið á óvart. Í honum kristallast okkar helsta ágreiningsefni. Okkar kona vill allra helst hlusta á íslenskt rapp og finnst fátt skemmtilegra en góð vinastund á dansgólfinu á Helgu­ braut með Jóa Pé og Króla, Herra Hnetusmjör, Hugin eða Emmsjé Gauta í botni, nágrönnum örugg­ lega stundum til hóflegrar gleði. Unnur Lilja Hermannsdóttir vinkona úr HR og lögmaður á Landslögum. Við Þórdís kynntumst fljótlega eftir að við hófum nám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík árið 2007. Þar var hún í hópi vina og kunningja ofan af Skaga og við ásamt góðum hópi laganema hópuðumst fljót­ lega saman. Skemmst er frá því að segja að það hefur verið ótrúlega gaman að fylgjast með Þórdísi og hennar starfsferli frá útskrift. Mér varð fljótt ljóst hversu auðvelt hún átti með samtöl um hinn pólitíska vettvang við vini og samnemendur og skipti þar engu máli hvar staðið var á hinu pólitíska litrófi. Þórdís kann nefnilega að hlusta á mismun­ andi skoðanir annarra og svara þeim með rökum og virðingu. Ég hef ávallt dáðst að þessum eiginleika hennar. Þórdís er ekki þessi týpa sem miklar fyrir sér hlutina eins og fólkið í landinu hefur líklegast tekið eftir á undanförnum dögum en að sama skapi nálgast hún öll verkefni af mikilli virðingu. Fyrir utan þessa augljósu kosti er nauðsynlegt að minnast á að hún er ekki síður sterk(ust)! á félagslegu hliðinni. Þær eru ófáar gleðistundirnar sem við höfum átt saman og það er alltaf jafn gaman og notalegt að koma á heimili hennar og Hjalta en Þórdís er mikil fjölskyldumanneskja – góð mamma og gefur sér tíma fyrir sitt fólk. Þetta hljómar náttúrulega allt eins og gott ævintýri en svona er einfaldlega mín kona! Rappelskandi ráðherra með ráð undir rifi hverju Vinir og vandamenn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur lýsa henni sem yfirveg- aðri, sannfærandi og traustri. Henni er lýst sem úrræðagóðum og glaðværum stuðbolta sem elskar að dansa við íslenskt rapp heima í stofu, nágrönnum hennar til hóflegrar gleði. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Fædd: 4. nóvember 1987 Maki: Hjalti Mogensen Börn: Marvin Gylfi og Kristín Fjóla Embætti: Ráðherra dómsmála, ferðamála, nýsköpunar og iðnaðar 1 6 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 1 6 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 1 2 8 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 9 2 -A 9 6 0 2 2 9 2 -A 8 2 4 2 2 9 2 -A 6 E 8 2 2 9 2 -A 5 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 1 2 8 s _ 1 5 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.