Fréttablaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 70
Tækifæri í Kringlunni
Verslun í Kringlunni til sölu sem sérhæfir sig í fatnaði og
fylgihlutum. Sterk merki, sérstaklega í fylgihlutum.
Mikil tækifæri til söluaukningar fyrir frískt fólk.
Sanngjarnt verð í boði
Áhugasamir geta haft samband með tpósti:
kringlan2019@gmail.com
Nýleg Faresin steypumót til sölu ásamt öllum fylgihlutum.
Lítið notuð. 40 mtr. í tvöföldun.
Upplýsingar í síma 660 6470
baldur@verkefni.is
Einnig til sölu 20 feta gámaeining /
vinnuskúr og Potain IGO 21 (2017”)
sjálfreisandi byggingarkrani.
STEYPUMÓT TIL SÖLU
GRÆNLANDSSJÓÐUR
Grænlandssjóður auglýsir eftir styrkumsóknum
í sjóðinn. Nánari upplýsingar er að finna á vef
stjórnarráðsins, www.mrn.is/gronlandsfonden
Umsóknarfrestur er til og með15. apríl 2019.
22. mars 2019 Stjórn Grænlandssjóðs
l>verholti 2 • 270 Mosfellsbeer
Simi 525 6700 • mos@mos.is • www.mos.is
VIRDING • JAKVAcDNI • FRAMSA=KNI • UMHYGGJA
Fjórar tillögur að breytingum á deiliskipulagi
Mosfellsbær auglýsir hér með skv. 1. mgr. 43. gr. skipu-
lagslaga nr. 123/2010 eftirfarandi tillögur að breytingum
á deiliskipulagi:
23. mars 2019
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
olafurm@mos.is
Fossatunga 9 – 15
Breytingin varðar lóðirnar Fossatungu 9 - 15, í stað raðhúss með
fjórum íbúðum, verði heimilt að byggja fimm íbúða raðhús.
Raðhúsagerðin R-IID breytist úr því að vera með 11 m breidd
á hverri raðhúsaeiningu í að verða 9 m breidd á hverja einingu.
Reykjamelur 20 – 22
Breytingin varðar að í stað þess að byggja megi 200 m²
einbýlishús (1 hæð og ris) á lóðunum verði heimilt að byggja
einnar hæðar parhús á hvorri lóð fyrir sig, þar sem hver íbúðahluti
getur verið allt að 160 m², samtals 640 m². Byggingareitur á lóð
nr. 20 stækkar til vesturs um 0.5 m og byggingareitur á lóð 22
verður dreginn inn vestanmegin um 0,5 m. Nýtingarhlutfall
Reykjamels 20 fer úr 0,22 í 0,34 og úr 0.19 í 0,30 fyrir Reykjamel
22. Aðkoma að lóðunum verður frá Asparlundi og lagt er til að
götuheiti breytist frá því að vera Reykjamelur í að verða
Asparlundur.
Asparlundur 11
Breytingin varðar að í stað 200 m² íbúðarhúss (1 hæð og ris) verði
heimilt að reisa allt að 330 m² parhús á einni hæð. Byggingareitur
verði dreginn inn vestanmegin um 2,0 m og stækkaður til norðurs
um 2,0 m. Nýtingarhlutfall fer úr 0,19 í 0,32.
Athafnasvæði Tungumelar, Mosfellsbær
Helstu breytingar samkvæmt tillögunni er stækkun deili-
skipulagsins, Mosfellsbær Tungumelar, um 1.3 ha inn á svæði
sem í aðalskipulagi er skilgreint sem athafnasvæði fleki 202-A.
Tillagan gerir ráð fyrir að vegtenging verði um Fossaveg sem verði
framlengdur til austurs og frá honum verði tenging inn á lóð.
Hámarkshæð byggingar verður allt að 13 m, grunnflatarmál húss
verði allt að 4.245 m² og nýtingarhlutfall 0,33. Kvaðir eru um
skermun lóðar og um afmörkun geymslusvæðis fyrir gáma,
varning og tæki.
Ofangreindar tillögur verða til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar
Þverholti 2, frá 23. mars 2019 til og með 6. maí 2019, svo að þeir
sem þess óska geti kynnt sér þær og gert við þær athugasemdir.
Tillögurnar eru einnig birtar á heimasíðu Mosfellsbæjar
á slóðinni:
www.mosfellsbaer.is/skipulagsauglysingar
Athugasemdir skulu vera skriflegar og skal senda þær til
skipulagsnefndar Mosfellsbæjar, Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ, eða
í tölvupósti til undirritaðs eigi síðar en 6. maí 2019.
____________________________________________________
kopavogur.is
Endurskoðun Aðalskipulags Kópavogs 2012-2024. Skipulagslýsing.
Vakin er athygli á því að nú stendur yfir í samræmi við 1. mgr. 30. gr skipulagslaga nr. 123/2010
kynning á skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar endurskoðunar á gildandi Aðalskipulagi Kópavog
2012-2024. Í lýsingunni koma m.a. fram helstu áherslur bæjaryfirvalda við fyrirhugaða breytingu á
aðalskipulagi bæjarins, upplýsingar um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli svo
og um kynningu og samráð.
Skipulagslýsingin er aðgengileg á heimasíðu bæjarins, www.kopavogur.is og í þjónustuveri Kópavogs-
bæjar að Digranesvegi 1 frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til
15:00. Skipulagslýsingin verður jafnframt kynnt í samkomusal Hörðuvallaskóla við Baugakór 38
þriðjudaginn 2. apríl nk. kl. 17:00 til 18:30. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir
til að kynna sér lýsinguna. Athugasemdir eða ábendingar við lýsinguna skulu hafa borist skriflega
skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á tölvupóstfangið
skipulag@kopavogur.is eigi síðar en þriðjudaginn 23. apríl 2019 kl. 15:00
Skipulagsstjóri Kópavogs.
Aðalskipulag Kópavogs
kopavogur.is
Á fundum skipulagsráðs 4. mars og bæjarstjórnar Kópavogs 12. mars 2019 var samþykkt
að kynna tillögu að hverfisáætlun Fífuhvamms (Linda- og Salahverfi).
Í hverfisáætlun er fyrst og fremst fjallað um byggð, þjónustu, umhverfi, umferð, íbúa, mögulega
framtíðaruppbyggingu og þróun hverfis næstu árin. Eitt af markmiðum hverfisáætlana er að gefa íbúum og
öðrum hagsmunaaðilum frekari kost á að fylgjast með og taka þátt í að móta sitt nánast umhverfi.
Hverfisáætlunina má finna á heimasíðu Kópavogs www.kopavogur.is ásamt nánari upplýsingum um
verkefnið.
Athugasemdir og ábendingar skulu berast skriflega til skipulags- og byggingardeildar Umhverfissvið,
Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða á skipulag@kopavogur.is eigi síðar en 30. apríl 2019.
Hverfisáætlun Fífuhvamms
Kynntu þér tillöguna og láttu okkur vita hvað þér finnst
24 ATVINNUAUGLÝSINGAR 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
1
-5
8
0
C
2
2
A
1
-5
6
D
0
2
2
A
1
-5
5
9
4
2
2
A
1
-5
4
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K