Fréttablaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 117
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettabladid.is
24. MARS 2019
Hvað? Heimsálfar/Sögustund á lit-
háísku og rússnesku
Hvenær? 14-14.30
Hvar? Borgarbókasafnið/Menn-
ingarhús Grófinni
Julia Panova les sögur fyrir börn
og fjölskyldur þeirra á litháísku og
rússnesku. Öll börn eru velkomin og
þau mega bjóða vinum sínum, for-
eldrum, ömmum og öfum með sér.
Hvað? Syngjum saman – Söngdag-
skrá
Hvenær? 14
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg 10
Allir syngja saman undir stjórn
tónlistarfólks og textar birtast
á tjaldi. Frítt fyrir börn í fylgd
með fullorðnum sem greiða 1.000
króna aðgangseyri. Forsöngvarar
að þessu sinni er vinkonuhópur
sem kallar sig Skotfjelagið og
nokkrir makar og börn.
Hvað? Fyrir sunnan Fríkirkjuna
Hvenær? 16
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Aðalsteinn Ásberg og Svavar Knút-
ur flytja dagskrá í tónum, máli og
myndum um Reykjavíkurskáldið
Tómas Guðmundsson.
Hvað? Hvítt á svörtu – Málverka-
sýning
Hvenær? 12-14
Hvar? Gallerí Göng, Háteigskirkju
Þýska listakonan Magdalena Not-
haft opnar sína fyrstu sýningu
hérlendis. Flestar myndirnar hefur
hún málað á léreft en nokkrar
á pappa. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Söngvaskáldin Aðalsteinn Ásberg
og Svavar Knútur við styttuna af
Reykjavíkurskáldinu Tómasi.
Meistari spennusagnanna, Lars Kepler,
snýr aftur með Joona Linna og félaga í
Stokkhólmslögreglunni
Bækur Keplers hafa verið þýddar
á 40 tungumál og selst í um
13 milljónum eintaka.
„Þvílíkur spennutryllir,
þvílíkt plott!“ LITTERATURSIDEN
„Aðdáendur Lars Keplers verða ekki
fyrir vonbrigðum.“ GÖTEBORGS-POSTEN
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Yasujirō Ozu kvikmyndadagar verða haldnir í Bíó Paradís 28.-31. mars. Sýndar verða fjórar kvikmyndir
eftir þennan virta japanska kvikmynda-
gerðarmann. Kvikmyndir Ozu fjalla um
fjölskyldulíf, hjónabönd, líf fólks í háskól-
um og á skrifstofunni. Ozu var þekktur
fyrir að nýta sér „mono no aware“ við gerð
kvikmynda sinna en þetta fagurfræðilega
japanska hugtak lýsir hinum óblendnu til-
finningum gagnvart fegurð náttúrunnar,
hverfulleika lífsins sem og sorginni sem
fylgir dauðanum.
Yasujirō Ozu (1903-1963) er álitinn einn
af meisturum japanskrar kvikmynda-
gerðar og er enn afar áhrifamikill innan
geirans.
Ozu var ungur að árum þegar hann fékk
fyrst áhuga á kvikmyndagerð og gekk til
liðs við Shochiku Film Company á þriðja
áratugnum sem aðstoðarkvikmyndatöku-
maður en fyrirtækið framleiddi meðal
annars fyrstu japönsku kvikmyndina í lit.
Hann leikstýrði fyrstu kvikmynd sinni
árið 1927 en hann átti eftir að gera 53 aðrar.
Ozu gerði nokkrar stuttar grínmyndir áður
en hann sneri sér að alvarlegri málefnum á
fjórða áratugnum, en hann fjallaði mest-
megnis um hjónabönd og fjölskyldur.
Kvikmyndir Ozu voru mjög vinsælar í
Japan en þær voru nær óþekktar á Vestur-
löndum þar til á sjöunda áratugnum. Hann
er álitinn einn af bestu leikstjórum kvik-
myndasögunnar í dag og leikstjórarnir
Jim Jarmusch, Wim Wenders, Abbas Kiar-
ostami, Mike Leigh, Aki Kaurismaki, Hou
Hsiao-hsien, Pedro Costa og Clair Denis
nefna hann sem einstakan áhrifavald á
kvikmyndagerð þeirra. Meistaraverk hans,
Tokyo Story sem hann gerði árið 1953, er að
margra mati ein af bestu kvikmyndum sem
nokkurn tíma hafa verið gerðar.
Yasujirō Ozu kvikmyndadagar
Myndin SÔshun (Early Spring) er meðal þeirra
mynda Yasujirō Ozu sem sýndar verða í Bíó Paradís.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 53L A U G A R D A G U R 2 3 . M A R S 2 0 1 9
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
0
-F
A
3
C
2
2
A
0
-F
9
0
0
2
2
A
0
-F
7
C
4
2
2
A
0
-F
6
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K