Fréttablaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 32
Umdeilt er hvort stærðfræði
Yangs og loforð gangi upp. Grein-
endur og sérfræðingar eru ekki á
eitt sáttir um afleiðingar þessarar
svokölluðu iðnbyltingar og þá eru
skiptar skoðanir sömuleiðis um
ágæti hugmyndarinnar um borg-
aralaun. Gagnrýnendum þykja þau
bæði dýr og letjandi.
Tæknin
Frambjóðandinn hefur vissulega
önnur stefnumál þótt borgara-
launin séu það sem bæði hann og
stuðningsmenn einblína helst á.
Stefnumálin eru satt best að segja
alveg rosalega mörg og þeim fylgja
ítarlegar útskýringar.
Fjölmörg þeirra litast af tengslum
Yangs við tækniheiminn. Hann vill
til að mynda gera kjósendum kleift
að greiða atkvæði í snjallsímanum,
koma myndavélum fyrir í búning-
um allra lögregluþjóna og fjarlægj-
ast mengandi orkugjafa með því að
leggja frekari áherslu á kjarnorku.
Yang vill að auki að háskóla-
íþróttafólk fái greitt fyrir vinnu
sína, vill banna sjálfvirk símtöl, gera
Púertó Ríkó að ríki innan Banda-
ríkjanna, lögleiða maríjúana og svo
mætti lengi áfram halda.
Internetið
Stefnumálin ein hafa hins vegar ekki
skilað Yang þessum óvæntu vin-
sældum og sigurlíkum. Vissir kimar
veraldarvefsins hafa tekið ástfóstri
við framboðið eftir að hann birtist í
vinsælum hlaðvarpsþáttum. Á Red-
dit, Instagram, Twitter og jafnvel
4chan má greina sterkan stuðning
við Yang.
Líkt og gerðist þegar Trump bauð
sig fram hafa eldheitir stuðnings-
menn frambjóðandans óspart
beitt netgríni (e. memes) í staf-
rænni kosningabaráttu. Þeir hafa
myndað sitt eigið tungumál, upp-
fullt af slangri er tengist einna
helst borgaralaunaloforðinu, og
mæra frambjóðandann. Honum er
líkt við Leðurblökumanninn eða
Loga Geimgengil úr Stjörnustríði
á meðan Donald Trump er sagður
Svarthöfði.
Stuðningsmenn fara jafnan mik-
Vinsælust
8 hæstu hjá ElectionBettingOdds
Joe Biden 20,1%
Bernie Sanders 18,9%
Kamala Harris 18,4%
Beto O’Rourke 14,9%
Andrew Yang 5,2%
Elizabeth Warren 4,0%
Corey Booker 3,6%
Tulsi Gabbard 2,8%
8 hæstu hjá PredictWise
Joe Biden 20%
Kamala Harris 19%
Bernie Sanders 18%
Beto O’Rourke 15%
Andrew Yang 6%
Elizabeth Warren 4%
Cory Booker 4%
Tulsi Gabbard 3%
Hæst í könnunum samkvæmt
meðaltali RCP
Joe Biden 29,4%
Bernie Sanders 23,4%
Kamala Harris 10,4%
Beto O’Rourke 8%
Elizabeth Warren 6,6%
Cory Booker 4%
Amy Klobuchar 2,3%
Pete Buttigieg 1,3%
Á t æ p u m t ve i m u r vikum hefur nafn Andrews Yang skot-ist upp fyrir mun þekktari Demókrata á síðum veðbanka
sem leyfa fólki að tippa á hver hlýtur
útnefningu f lokksins til forseta-
framboðs á næsta ári.
Þessi athafnamaður og sonur taív-
anskra innflytjenda er víða talinn
líklegri en frambjóðendur á borð við
öldungadeildarþingmennina Cory
Booker, Amy Klobuchar, Kirsten
Gillibrand og Elizabeth Warren.
En hvernig má það vera að Yang
sé talinn líklegri en fyrrnefndir
frambjóðendur? Yang hefur ekki
enn mælst með yfir eins prósents
stuðning í skoðanakönnunum og
hefur raunar oft ekki einu sinni náð
því. Í nýjustu könnun Emerson, sem
birtist í vikunni, mældist Yang til
að mynda með eitt prósent, Warren
átta og Booker þrjú.
Nýgræðingur
Andrew Yang hefur aldrei boðið sig
fram í nokkurt opinbert embætti.
Fyrir utan nýfengna frægð hans sem
forsetaframbjóðanda er hann einna
helst þekktur fyrir að stofna og stýra
samtökunum Venture for America
(VFA). Samtökin hafa undanfarin
sjö ár unnið að því að þjálfa ungt
fólk og kenna því að stofna eigin
fyrirtæki í þeim borgum Banda-
ríkjanna þar sem sár þörf er á fleiri
störfum.
Segja má að Yang og verkefni
hans hafi vakið hrifningu Baracks
Obama, forseta Bandaríkjanna frá
2009 til 2017. Hann var árið 2012
útnefndur svokallaður „Champion
of Change“, fékk þannig viðurkenn-
ingu sem forsetaembættið í tíð
Obama veitti vikulega almennum
borgurum sem þóttu skara fram
úr. Þremur árum síðar var hann
einn þeirra sem Obama útnefndi
sérstaka sendiherra forsetans í
athafnalífinu.
Óvæntar
vinsældir
Andrew Yang er orðinn einn af sigurstrang-
legustu forsetaframbjóðendum Demókrata.
Talinn líklegri en öldungadeildarþingmenn
á borð við Elizabeth Warren. Talar fyrir
borgaralaunum og nýtur vinsælda á meðal
netverja. Hitt hægrið virðist taka ástfóstri
við Yang, sem hafnar stuðningi öfgafólks.
Frambjóðandinn Andrew Yang í kosningabaráttu í fyrsta forkosningaríkinu, Iowa. Hann er sonur taívanskra innflytjenda. NORDICPHOTOS/GETTY
Þórgnýr Einar
Albertsson
thorgnyr@frettabladid.is
Í ljósi reynslu sinnar af athafnalíf-
inu og algjörs reynsluleysis af stjórn-
málum hefur Yang verið líkt við
núverandi forseta, Donald Trump.
Sá er ekki sérstaklega vinsæll á
meðal Demókrata og vill Yang því
skiljanlega fjarlægja sig þeim sam-
anburði. Sagði til dæmis í viðtali við
Vox á dögunum að andstæðan við
Donald Trump væri „asískur maður
sem er hrifinn af stærðfræði“ og átti
þar bersýnilega við sjálfan sig.
Þúsund dalir
Hluta af svarinu við spurningunni
sem varpað var fram hér í upphafi
má ef til vill finna í málflutningi og
nálgun frambjóðandans. Á meðan
aðrir frambjóðendur Demókrata
ræða mikið um kynþáttafordóma,
ójafna stöðu kynjanna og gagnrýna
stefnu Trumps harðlega hefur Yang
í sínum málflutningi haldið sig við
eitt ákveðið loforð.
Málf lutningi Yangs svipar ef
til vill helst til þess þegar Fram-
sóknarf lokkurinn vann mikinn
kosningasigur með óvæntu loforði
um svokallaða leiðréttingu. Sitt
sýndist hverjum en loforðið skap-
aði flokknum sérstöðu og að lokum
góða kosningu.
Yang lofar hins vegar ekki neinni
leiðréttingu. Hann hefur heitið því
að hver einasti fullorðni Bandaríkja-
maður fái í vasann þúsund dali á
hverjum einasta mánuði án nokk-
urra skuldbindinga. Það sem við
myndum kalla borgaralaun.
Þetta ætlar frambjóðandinn að
fjármagna með því að koma á tíu
prósenta virðisaukaskatti í Banda-
ríkjunum, með því að hagræða og
skattleggja frekar stór tæknifyrir-
tæki sem hafa hingað til skilað hagn-
aði en greitt lítinn sem engan skatt.
Yang fullyrðir að þetta sé eina
svarið við aukinni sjálfvirknivæð-
ingu starfa, eða fjórðu iðnbylting-
unni svokölluðu. Sífellt f leiri störf
tapast vegna tækniframfara og horfa
Bandaríkjamenn, sem og fjöldi ann-
arra þjóða, fram á að starfsstéttir á
borð við vöruflutningabílstjóra og
afgreiðslufólk hreinlega þurrkist út
á komandi árum.
inn á samfélagsmiðlum og boða
fagnaðarerindið. Herja á stafrænar
og valkvæðar [en ómarktækar]
skoðanakannanir og reyna þann-
ig að sannfæra sem flesta um ágæti
spámannsins. Tónlistarmyndbönd
og lög, myllumerki og allt þar fram
eftir götunum hafa svo skotið upp
kollinum.
Yang hefur tjáð sig um þessa
óvæntu netfrægð. „Það er mjög
áhugavert að vera orðinn einhvers
konar frambjóðandi veraldarvefs-
ins,“ sagði hann til að mynda á fundi
í San Francisco fyrr í mánuðinum.
Skuggahliðar
En þessari netfrægð fylgja öfgafullir
stuðningsmenn sem eru ekki í náð-
inni hjá Yang. Fólk sem hefur verið
kennt við hitt hægrið (e. alt-right),
kynþáttahatur og jafnvel of beldi.
BuzzFeedNews greindi stöðuna sem
svo að veraldarvefurinn væri ein-
faldlega við það að „gleypa“ fram-
boð Yangs. Fögur orð Fox News-
liðans Tuckers Carlson, sem er afar
vinsæll hjá hinu hægrinu, um Yang
hafa svo trúlega ýtt enn fleiri íhalds-
mönnum í átt að Demókratanum.
Sumt netgrínið um Yang inni-
heldur jafnvel greinilega kynþátta-
fordóma, þá einkum í garð gyðinga
eins og er algengt á stjórnmálaspjall-
borðum vefsíðna á borð við 4chan
og 8chan.
Þekkt öfgafólk á borð við Richard
Spencer, sem hefur sagt f lutninga
fólks til Bandaríkjanna „leppstríð
gegn hvítum Bandaríkjamönnum“,
Infowars-liðann Paul Joseph Wat-
son og Faith Goldy hafa lýst yfir
stuðningi við Yang á Twitter.
Frambjóðandinn hefur með
skýrum hætti hafnað stuðningi
allra kynþáttahatara og öfgamanna.
Gagnrýnendur Yangs eru þó ekki
sannfærðir um að maður sem nýtur
stuðnings hins hægrisins eigi erindi
í Hvíta húsið.
Sigurlíkur
Hvort stafrænar vinsældir Yangs
og sigurlíkur hans samkvæmt veð-
bönkum skili honum nokkru fylgi,
jafnvel sigri, er óljóst. Staðan mun
trúlega skýrast eftir fyrstu kapp-
ræður frambjóðenda í sumar. Yang
verður að öllum líkindum á sviðinu.
Hefur uppfyllt skilyrði um fjölda
stuðningsaðila.
Það er hins vegar ekki nauðsyn-
legt fyrir Yang að vinna til að fram-
boðið beri árangur. Bernie Sanders
bauð sig fram gegn Hillary Clint-
on árið 2016. Hann vann ekki en
stefnumál hans, meðal annars um
gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu
fyrir alla, eru nú orðin að viðtekinni
meginstraumsstefnu á meðan þau
voru mörg hver jaðarhugsjónir fyrir
framboðið. Sanders er sjálfur í fram-
boði aftur og þykir með sigurstrang-
legustu frambjóðendum.
2 3 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
0
-D
C
9
C
2
2
A
0
-D
B
6
0
2
2
A
0
-D
A
2
4
2
2
A
0
-D
8
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K