Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 32

Fréttablaðið - 23.03.2019, Page 32
Umdeilt er hvort stærðfræði Yangs og loforð gangi upp. Grein- endur og sérfræðingar eru ekki á eitt sáttir um afleiðingar þessarar svokölluðu iðnbyltingar og þá eru skiptar skoðanir sömuleiðis um ágæti hugmyndarinnar um borg- aralaun. Gagnrýnendum þykja þau bæði dýr og letjandi. Tæknin Frambjóðandinn hefur vissulega önnur stefnumál þótt borgara- launin séu það sem bæði hann og stuðningsmenn einblína helst á. Stefnumálin eru satt best að segja alveg rosalega mörg og þeim fylgja ítarlegar útskýringar. Fjölmörg þeirra litast af tengslum Yangs við tækniheiminn. Hann vill til að mynda gera kjósendum kleift að greiða atkvæði í snjallsímanum, koma myndavélum fyrir í búning- um allra lögregluþjóna og fjarlægj- ast mengandi orkugjafa með því að leggja frekari áherslu á kjarnorku. Yang vill að auki að háskóla- íþróttafólk fái greitt fyrir vinnu sína, vill banna sjálfvirk símtöl, gera Púertó Ríkó að ríki innan Banda- ríkjanna, lögleiða maríjúana og svo mætti lengi áfram halda. Internetið Stefnumálin ein hafa hins vegar ekki skilað Yang þessum óvæntu vin- sældum og sigurlíkum. Vissir kimar veraldarvefsins hafa tekið ástfóstri við framboðið eftir að hann birtist í vinsælum hlaðvarpsþáttum. Á Red- dit, Instagram, Twitter og jafnvel 4chan má greina sterkan stuðning við Yang. Líkt og gerðist þegar Trump bauð sig fram hafa eldheitir stuðnings- menn frambjóðandans óspart beitt netgríni (e. memes) í staf- rænni kosningabaráttu. Þeir hafa myndað sitt eigið tungumál, upp- fullt af slangri er tengist einna helst borgaralaunaloforðinu, og mæra frambjóðandann. Honum er líkt við Leðurblökumanninn eða Loga Geimgengil úr Stjörnustríði á meðan Donald Trump er sagður Svarthöfði. Stuðningsmenn fara jafnan mik- Vinsælust 8 hæstu hjá ElectionBettingOdds Joe Biden 20,1% Bernie Sanders 18,9% Kamala Harris 18,4% Beto O’Rourke 14,9% Andrew Yang 5,2% Elizabeth Warren 4,0% Corey Booker 3,6% Tulsi Gabbard 2,8% 8 hæstu hjá PredictWise Joe Biden 20% Kamala Harris 19% Bernie Sanders 18% Beto O’Rourke 15% Andrew Yang 6% Elizabeth Warren 4% Cory Booker 4% Tulsi Gabbard 3% Hæst í könnunum samkvæmt meðaltali RCP Joe Biden 29,4% Bernie Sanders 23,4% Kamala Harris 10,4% Beto O’Rourke 8% Elizabeth Warren 6,6% Cory Booker 4% Amy Klobuchar 2,3% Pete Buttigieg 1,3% Á t æ p u m t ve i m u r vikum hefur nafn Andrews Yang skot-ist upp fyrir mun þekktari Demókrata á síðum veðbanka sem leyfa fólki að tippa á hver hlýtur útnefningu f lokksins til forseta- framboðs á næsta ári. Þessi athafnamaður og sonur taív- anskra innflytjenda er víða talinn líklegri en frambjóðendur á borð við öldungadeildarþingmennina Cory Booker, Amy Klobuchar, Kirsten Gillibrand og Elizabeth Warren. En hvernig má það vera að Yang sé talinn líklegri en fyrrnefndir frambjóðendur? Yang hefur ekki enn mælst með yfir eins prósents stuðning í skoðanakönnunum og hefur raunar oft ekki einu sinni náð því. Í nýjustu könnun Emerson, sem birtist í vikunni, mældist Yang til að mynda með eitt prósent, Warren átta og Booker þrjú. Nýgræðingur Andrew Yang hefur aldrei boðið sig fram í nokkurt opinbert embætti. Fyrir utan nýfengna frægð hans sem forsetaframbjóðanda er hann einna helst þekktur fyrir að stofna og stýra samtökunum Venture for America (VFA). Samtökin hafa undanfarin sjö ár unnið að því að þjálfa ungt fólk og kenna því að stofna eigin fyrirtæki í þeim borgum Banda- ríkjanna þar sem sár þörf er á fleiri störfum. Segja má að Yang og verkefni hans hafi vakið hrifningu Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna frá 2009 til 2017. Hann var árið 2012 útnefndur svokallaður „Champion of Change“, fékk þannig viðurkenn- ingu sem forsetaembættið í tíð Obama veitti vikulega almennum borgurum sem þóttu skara fram úr. Þremur árum síðar var hann einn þeirra sem Obama útnefndi sérstaka sendiherra forsetans í athafnalífinu. Óvæntar vinsældir Andrew Yang er orðinn einn af sigurstrang- legustu forsetaframbjóðendum Demókrata. Talinn líklegri en öldungadeildarþingmenn á borð við Elizabeth Warren. Talar fyrir borgaralaunum og nýtur vinsælda á meðal netverja. Hitt hægrið virðist taka ástfóstri við Yang, sem hafnar stuðningi öfgafólks. Frambjóðandinn Andrew Yang í kosningabaráttu í fyrsta forkosningaríkinu, Iowa. Hann er sonur taívanskra innflytjenda. NORDICPHOTOS/GETTY Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is Í ljósi reynslu sinnar af athafnalíf- inu og algjörs reynsluleysis af stjórn- málum hefur Yang verið líkt við núverandi forseta, Donald Trump. Sá er ekki sérstaklega vinsæll á meðal Demókrata og vill Yang því skiljanlega fjarlægja sig þeim sam- anburði. Sagði til dæmis í viðtali við Vox á dögunum að andstæðan við Donald Trump væri „asískur maður sem er hrifinn af stærðfræði“ og átti þar bersýnilega við sjálfan sig. Þúsund dalir Hluta af svarinu við spurningunni sem varpað var fram hér í upphafi má ef til vill finna í málflutningi og nálgun frambjóðandans. Á meðan aðrir frambjóðendur Demókrata ræða mikið um kynþáttafordóma, ójafna stöðu kynjanna og gagnrýna stefnu Trumps harðlega hefur Yang í sínum málflutningi haldið sig við eitt ákveðið loforð. Málf lutningi Yangs svipar ef til vill helst til þess þegar Fram- sóknarf lokkurinn vann mikinn kosningasigur með óvæntu loforði um svokallaða leiðréttingu. Sitt sýndist hverjum en loforðið skap- aði flokknum sérstöðu og að lokum góða kosningu. Yang lofar hins vegar ekki neinni leiðréttingu. Hann hefur heitið því að hver einasti fullorðni Bandaríkja- maður fái í vasann þúsund dali á hverjum einasta mánuði án nokk- urra skuldbindinga. Það sem við myndum kalla borgaralaun. Þetta ætlar frambjóðandinn að fjármagna með því að koma á tíu prósenta virðisaukaskatti í Banda- ríkjunum, með því að hagræða og skattleggja frekar stór tæknifyrir- tæki sem hafa hingað til skilað hagn- aði en greitt lítinn sem engan skatt. Yang fullyrðir að þetta sé eina svarið við aukinni sjálfvirknivæð- ingu starfa, eða fjórðu iðnbylting- unni svokölluðu. Sífellt f leiri störf tapast vegna tækniframfara og horfa Bandaríkjamenn, sem og fjöldi ann- arra þjóða, fram á að starfsstéttir á borð við vöruflutningabílstjóra og afgreiðslufólk hreinlega þurrkist út á komandi árum. inn á samfélagsmiðlum og boða fagnaðarerindið. Herja á stafrænar og valkvæðar [en ómarktækar] skoðanakannanir og reyna þann- ig að sannfæra sem flesta um ágæti spámannsins. Tónlistarmyndbönd og lög, myllumerki og allt þar fram eftir götunum hafa svo skotið upp kollinum. Yang hefur tjáð sig um þessa óvæntu netfrægð. „Það er mjög áhugavert að vera orðinn einhvers konar frambjóðandi veraldarvefs- ins,“ sagði hann til að mynda á fundi í San Francisco fyrr í mánuðinum. Skuggahliðar En þessari netfrægð fylgja öfgafullir stuðningsmenn sem eru ekki í náð- inni hjá Yang. Fólk sem hefur verið kennt við hitt hægrið (e. alt-right), kynþáttahatur og jafnvel of beldi. BuzzFeedNews greindi stöðuna sem svo að veraldarvefurinn væri ein- faldlega við það að „gleypa“ fram- boð Yangs. Fögur orð Fox News- liðans Tuckers Carlson, sem er afar vinsæll hjá hinu hægrinu, um Yang hafa svo trúlega ýtt enn fleiri íhalds- mönnum í átt að Demókratanum. Sumt netgrínið um Yang inni- heldur jafnvel greinilega kynþátta- fordóma, þá einkum í garð gyðinga eins og er algengt á stjórnmálaspjall- borðum vefsíðna á borð við 4chan og 8chan. Þekkt öfgafólk á borð við Richard Spencer, sem hefur sagt f lutninga fólks til Bandaríkjanna „leppstríð gegn hvítum Bandaríkjamönnum“, Infowars-liðann Paul Joseph Wat- son og Faith Goldy hafa lýst yfir stuðningi við Yang á Twitter. Frambjóðandinn hefur með skýrum hætti hafnað stuðningi allra kynþáttahatara og öfgamanna. Gagnrýnendur Yangs eru þó ekki sannfærðir um að maður sem nýtur stuðnings hins hægrisins eigi erindi í Hvíta húsið. Sigurlíkur Hvort stafrænar vinsældir Yangs og sigurlíkur hans samkvæmt veð- bönkum skili honum nokkru fylgi, jafnvel sigri, er óljóst. Staðan mun trúlega skýrast eftir fyrstu kapp- ræður frambjóðenda í sumar. Yang verður að öllum líkindum á sviðinu. Hefur uppfyllt skilyrði um fjölda stuðningsaðila. Það er hins vegar ekki nauðsyn- legt fyrir Yang að vinna til að fram- boðið beri árangur. Bernie Sanders bauð sig fram gegn Hillary Clint- on árið 2016. Hann vann ekki en stefnumál hans, meðal annars um gjaldfrjálsa heilbrigðisþjónustu fyrir alla, eru nú orðin að viðtekinni meginstraumsstefnu á meðan þau voru mörg hver jaðarhugsjónir fyrir framboðið. Sanders er sjálfur í fram- boði aftur og þykir með sigurstrang- legustu frambjóðendum. 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R32 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 1 2 8 s _ P 1 1 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 0 -D C 9 C 2 2 A 0 -D B 6 0 2 2 A 0 -D A 2 4 2 2 A 0 -D 8 E 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 2 8 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.