Fréttablaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 30
Ætlunin var að ég yrði hjá Hljóð-rita í aðeins þrjá mánuði en mér líkaði svo vel að á endanum var ég í nokkur ár,“ segir Tony Cook sem kom til Íslands liðlega tutt- ugu ára gamall. Hann flutti héðan í kring um 1980 en heldur sterkum tengslum við landið. „Mér finnst ég mjög lánsamur að hafa haldið sambandi við svo marga vini á Íslandi og þeir við mig. Ég hef alltaf fylgst með því sem er að gerast á Íslandi. Landið hefur ávallt verið og verður áfram stór hluti af mínu lífi,“ segir Tony. Varð að koma og sjá Eikina Síðast var Tony á Íslandi fyrr í þessum mánuði, fyrst og fremst til að sjá hljómsveitina Eik sem hélt sjaldgæfa tónleika í Hafnarfirði. „Um leið og ég heyrði að þeir væru að fara að koma saman aftur vissi ég að ég yrði að vera þar,“ segir Tony sem varð ekki fyrir vonbrigðum. „Tónleikarnir voru af bragð. Nýju meðlimirnir pössuðu eitt hundrað prósent inn. Hljómurinn í Bæjarbíói var gríðarlega góður. Þetta er frábær tónleikastaður og andrúmsloftið snilld. Ungir og gamlir áhorfendur voru mjög áhugasamir og það var indælt. Ef þeir halda aðra tónleika ætti enginn að missa af þeim,“ undir strikar Tony. Úr Atómstöðinni til Skotlands „Á árinu 1983 vann ég við bíó- myndina Atómstöðina og aðstoðaði þar skoska hljóðmanninn Louis Kramer. Honum líkaði vel hvernig ég starfaði og fékk mig til Skotlands til að vinna að bíómynd þar. Síðan vann ég um tíma í hljóðverum í London og á tökustöðum mynda í Skotlandi. Loks gaf ég tónlistar- bransann upp á bátinn árið 1985 til að einbeita mér að kvikmynda- gerðariðnaðinum,“ útskýrir Tony hvernig starfsferill hans þróaðist. „Dæmi um myndir sem ég hef unnið við eru The Crying Game og Trainspotting,“ svarar Tony aðspurður en listinn er langur. Reynir að fylgjast með Tony kveðst því miður ekki hafa unnið með íslensku tónlistarfólki lengi. „Ég myndi elska að gera það aftur en upptökutækni hefur breyst svo mikið tæknilega síðan ég var á tónlistarhliðinni að ég myndi ekki vita hvar ætti að byrja,“ játar hann en segir þó að gaman væri að hjálpa til við framleiðslu á einhverju hér. „Ég reyni að fylgjast með því sem er að gerast eins og ég get, aðallega með aðstoð Sigtryggs Baldurssonar, Ása hjá Smekkleysu og Egils Ólafs- sonar. En það er mikið að gerast sem ég veit ekkert um,“ segir Tony. Einn af þeim sem Tony hitti í nýafstaðinni heimsókn er vinur hans Gunnar Árnason í Upptekið. „Gunnar er nýbúinn að klára nýja hljóðverið sitt og það er mjög flott. Mér finnst aðdáunarvert hversu mörg hljóðver hafa sprottið upp á Íslandi. Þau hafa ekki öll lifað held ég en tónlistarframleiðslugeirinn á Íslandi er mjög heilbrigður. Strák- arnir í Hljóðrita hafa líka unnið f lott starf í að halda stúdíóinu gangandi og gefa því nýtt líf,“ segir Tony og þá berst talið að árunum í Hljóðrita. „Ég gafst upp á að telja plöturnar sem ég tók upp í Hljóðrita, þær voru svo margar,“ svarar Tony loks eftir að hafa verið beðinn að rifja upp verkefnin í aðalhljóðveri Íslands. Fingraförin út um allt En Tony sat ekki auðum höndum hér. Hann tók til dæmis upp mikið af tónlist Spilverks þjóðanna; fyrstu plötuna, Götuskó og Sturlu auk þess að hafa tekið upp hluta af bláu plöt- unni svokölluðu eða CD Nærlífi. Þá tók Tony upp plöturnar Speglun og Hrísluna og strauminn með Eik. „Ég vann líka mikið með Magnúsi Kjartanssyni, mest á Júdasarplöt- unni og á Hana nú með Villa Vill. Við tveir urðum miklir vinir á stuttum tíma og svo var hann því miður farinn.“ Þá nefnir Tony plötu með Olgu Guðrúnu Árna- dóttur og Ljós- unum í bænum með Stefán Stef- ánsson í farar- broddi. „Ég vann með svo mörgum tón- listarmönnum, þar á meðal Bo Halldórssyni og Gunnari Þórðar- syni að ýmsum verkefnum. Ég nefni líka Sigga Karls og Pálma Gunnarsson fyrir hljómsveitina Celcius og sem hljóðfæraleikara hjá öðrum – þar með talin Björk þegar hún gerði sína fyrstu plötu ellefu ára gömul,“ heldur Tony áfram að nefna dæmi frá áttunda áratugnum. Síðar vann Tony einnig með hljómsveitinni Tappa tíkarrassi að tveimur plötum. Hann starfaði líka með Þeysurunum, meðal annars ÉG HELD ÉG VERÐI AÐ NEFNA GÖTUSKÓ MEÐ SPILVERKINU, HRÍSLUNA OG STRAUMINN MEÐ EIK OG PLÖTUNA MJÖTVIÐUR MÆR MEÐ ÞEY. ÞETTA ERU ALLT MISMUNANDI PLÖTUR SEM ÉG HLUSTA Á ENN Í DAG. Gafst upp á að telja Tony Cook brá sér til Íslands 1975 til að vinna í þrjá mánuði í Hljóðrita. Dvölin varði hins vegar í um hálfan áratug. Tony býr nú í Manchester en minnist Íslandsáranna með hlýju og heimsækir landið reglulega. Tony Cook bjó hér lengi og unir sér vel á strætum Reykjavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Tony Cook við stjórnvölinn á átta rása tækinu í Hljóðrita við upptökur á fyrstu plötu Spilverks þjóðanna árið 1975. Sigurður Bjóla og Valgeir Guð- jónsson úr Spilverkinu eru hægra megin, Ólafur heitinn Þórðarson aftan við Tony, útgef- andinn Steinar Berg yst til vinstri og Björgvin Pálsson ljósmyndari af Vísi þar fyrir aftan. Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is að breiðsk íf unni Mjöt v iðu r Mær. „Það eru margar, margar aðrar plöt- ur; of margar til að nefna. Og ef ég á að vera heiðarlegur þá er minnið hjá mér ekki það gott,“ játar hann. Reyndi á mörkin með Þey Það verður að spyrja Tony um uppáhalds- verkefnin. „Ég held ég verði að nefna Götuskó með Spilverkinu, Hrísluna og Straum- inn með Eik og plötuna Mjötviður mær með Þey. Þetta eru allt mis- munandi plötur sem ég hlusta á enn í dag. Þær fólu allar í sér tæknilegar áskoranir en Þeysaraplatan gaf mér mest persónulega, við vorum að vinna út fyrir mörkin að svo mörgu leyti og við vorum að reyna að vera skapandi á mjög ólíkan hátt,“ rifjar gamli upptökumeistarinn upp. „Hana nú hefur mikla þýðingu fyrir mig af augljósum ástæðum og ég er líka hrifinn af Sturlu,“ heldur Tony áfram. „Ég bið afsökunar þá tónlistarmenn sem ég nefni ekki hér en þetta eru plöturnar sem ég held upp á frá þessum tíma.“ Stórafmælin á Íslandi Tony bjó í Glasgow í mörg ár en á nú heima í Manchester. Sem fyrr segir vitjar hann reglulega vina á Íslandi. „Ég hélt upp á fertugsafmælið á Íslandi og síðan sextugsafmælið mitt fyrir nokkrum árum. Undan- farið hef ég komið í heimsókn á um það bil þriggja ára fresti. Ég vildi að það gæti verið oftar,“ segir Tony. Á Íslandi kvæntist Tony Eyrúnu Hafsteinsdóttur en þau skildu. „Hún býr í London og við erum enn góðir vinir,“ segir Tony. Núverandi eigin- kona hans, Sophie, hefur einu sinni komið með honum til Íslands. „Sophie hefur mikinn áhuga á að kynnast landinu og vinunum mínum góðu miklu betur. Ég er alltaf að skipuleggja að fara með hana hringinn í kring um landið en hingað til höfum við ekki haft tækifæri til þess á sama tíma. En einn daginn …“ 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 3 -0 3 -2 0 1 9 0 4 :4 6 F B 1 2 8 s _ P 1 1 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 9 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 A 0 -F 0 5 C 2 2 A 0 -E F 2 0 2 2 A 0 -E D E 4 2 2 A 0 -E C A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 1 2 8 s _ 2 2 _ 3 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.