Fréttablaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 20
FATAHÖNNUNARBRANS-
INN ER ROSA HRAÐUR IÐN-
AÐUR, ÞÚ ÞARFT AÐ EIGA
FULLT AF HUGMYNDUM OG
VERA TILBÚIN AÐ ÞRÓA
ÞÆR Á ÖRSTUTTUM TÍMA.
Við ætlum að skapa l i s t r æ n a n h u g -myndaheim í stað h e f ð b u n d i n n a r t ísk u sý ningar en þannig geta gestir
skoðað öll smáatriðin á fatnað-
inum og staldrað við, vegið og
metið handverkið, flíkurnar og
munstrin, líkt og um listsýningu
væri að ræða,“ segir Aníta Hirlekar
fatahönnuður um sýningu sína í
Safnahúsinu þann 30. mars. Sýn-
ingin er hluti af HönnunarMars
sem hefst í næstu viku. Hún aug-
lýsti eftir fyrirsætum á öllum aldri
fyrir sýningu sína og tekur á móti
áhugasömum í prufur í Safna-
húsinu klukkan 14.00 í dag. „Það
er bara í takt við tímann. Að hafa
fjölbreyttar konur að sýna nútíma
fatnað. Við erum sérstaklega að leita
að konum af erlendum uppruna til
þess að vera með. Það má segja að
við séum líka að leita eftir persónu-
leikum sem tengjast línunni fyrst
og fremst, vilja vera í flíkunum og
eiga skemmtilegan dag með okkur,“
segir hún frá.
Fléttar saman tækni
Aníta hefur vakið verðskuldaða
athygli. Henni voru í ár úthlut-
uð starfslaun í 12 mánuði sem er
lengsti tími sem hönnuður hefur
fengið úr Listamannalaunasjóði. Þá
tók hún við verðlaunum Reykjavík
Grapevine fyrir bestu fatahönnun
ársins í Ásmundarsal í gær.
Sérstaða Anítu liggur í textíl,
áferð og litasamsetningu sem
mynda andstæðu við klassískar,
kvenlegar og tímalausar f líkur.
„Líkt og með fyrri fatalínur verður
þessi blanda af handgerðum
textíl og munstrum sem ég hef
þróað síðastliðna mánuði. Í fyrri
línum hef ég notast mikið við
útsauminn og komið fram með
nýjar hugmyndir í sambandi við
hann. Í þessari línu langaði mig að
flétta saman alls konar tækni, til
dæmis handþæfingu sem er mjög
umhverfisvæn textílaðferð. Við
búum til flest okkar efni sjálf frá
grunni og lítið sem ekkert fer til
spillis. Ég flétta saman mismunandi
tækni við ullina, en kem aftur með
viscose-efnin sem eru dásamlega
mjúk,“ segir Aníta.
Hvaðanæva úr heiminum
Hún er frá Akureyri og þar er aðal-
vinnuaðstaða hennar. „Textíl-
vinnustofan mín er á Akureyri en
ég fer þangað og tek vinnutarnir, til
dæmis þegar sérstakt verkefni ligg-
ur fyrir eða við undirbúning fyrir
næstu fatalínu. Þar eiginlega gerast
hlutirnir, við gerum efnaprufur
og litaprufur, bæði með því að lita
efnin sjálf og þróa nýjar textíl-
aðferðir. Það hentar mínu vinnu-
ferli að vera á ferðinni, ég nýti tím-
ann bæði mikið betur og er mikið
fljótari að taka ákvarðanir sem geta
verið krefjandi,“ segir Aníta.
Viðskiptavinir Anítu eru hvaðan-
æva úr heiminum. „Kúnnarnir
mínir eru konur á öllum aldri, póli-
tíkusar, listafólk, óperusöngkonur.
Og koma jafnt héðan og frá útlönd-
um en þeir sem sækjast eftir hand-
unnum einstökum vörum koma
aðallega að utan.
Það gerist stundum að ég fæ
símtal frá erlendum konum sem
eru að sækjast eftir einhverju ein-
stöku og hafa fengið ábendingu frá
öðrum viðskiptavinum. Þetta eru
konur sem hafa engan tíma til að
fara í búðir og skoða,“ segir Aníta
og segir sköpunarferlið í kjölfarið
sérstakt. Þá hafi eftirspurn eftir
hönnun hennar aukist mikið í Asíu
og hún stefni á að opna vefverslun
Fær innblástur úr
listum og pólitík
Aníta Hirlekar fatahönnuður hefur vakið verðskuldaða athygli
síðustu misseri. Aníta er einn fatahönnuða sem kynna verk sín
á HönnunarMars í ár. Vanalega ganga fyrirsætur tískupallana en
Aníta ætlar að velja konur á öllum aldri með fjölbreyttan bak-
grunn til þess að sýna flíkur hennar í innsetningu í Safnahúsinu.
Aníta ætlar að fara óhefðbundna leið til þess að kynna nýju vetrarlínu sína á HönnunarMars sem hefst í næstu viku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 3 . M A R S 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R20 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
1
0
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
0
-F
5
4
C
2
2
A
0
-F
4
1
0
2
2
A
0
-F
2
D
4
2
2
A
0
-F
1
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K