Fréttablaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 56
Verkstjóri bifvélaverkstæðis óskast
Launafl ehf óskar eftir að ráða verkstjóra á Bifreiðaverkstæði
Launafls ehf á Reyðarfirði.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með góða
vinnuaðstöðu. Góð laun í boði fyrir réttan aðila.
Hæfniskröfur: Meistararéttindi eða Sveinspróf í bifvélavirkjun
Frumkvæði og sjálstæði í vinnubrögðum
Skipulögð vinnubrögð
Góð íslenskukunnátta
Gildi Launafls: ÖRYGGI – ÁREIÐANLEIKI - VIRÐING
Austurland er góður kostur og býður uppá mikla fjölbreytni,
kynntu þér það nánar á www.austurland.is
Frekari upplýsingar um starfið veitir Magnús Helgason
framkvæmdastjóri í síma 840-7211
Vinsamlega sendið umsókn á starfsmannastjóra Launafls:
adda@launafl.is eða fyllið út umsókn á www.launafl.is
Launafl ehf. – www.launafl.is – sími 414-9400
Hlutverk bankasviðs er að starfrækja áhættumiðað eftirlit með starfsemi fjármálafyrirtækja. Eftirlitið
felur m.a. í sér reglubundna vöktun á starfsemi fyrirtækjanna á grundvelli gagnaskila, mat á áhættu og
áhættustýringu þeirra.
Um er að ræða fjölbreytt starf sem snýr að mati og eftirliti með rekstraráhættu (e. operational risk)
fjármálafyrirtækja ásamt tilheyrandi undiráhættuþáttum. Leitað er að faglega sterkum einstaklingi með
góða greiningarhæfni og mikla færni í mannlegum samskiptum.
SÉRFRÆÐINGUR Í
REKSTRARÁHÆTTU
Bankasvið Fjármálaeftir-
litsins leitar að sérfræðingi í
rekstraráhættu fyrirtækja á
fjármálamarkaði.
Umsjón með ráðningunni hafa Elmar
Ásbjörnsson forstöðumaður á bankasviði
(elmara@fme.is) og Árni Ragnar
Stefánsson mannauðsstjóri (arni@fme.is).
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir
um að sækja um starfið á heimasíðu
Fjármálaeftirlitsins, www.fme.is, eða á
www.starfatorg.is.
Umsóknarfrestur er til og með 8. apríl nk.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg
ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni
viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Starfssvið
• Mat og greining rekstraráhættu eftirlitsskyldra aðila
• Þróun aðferðafræði Fjármálaeftirlitsins við mat á
rekstraráhættu
• Yfirsýn með þróun rekstraráhættu á fjármálamarkaði
• Samskipti við eftirlitsskylda aðila og aðra hagsmunaaðila
• Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi
Hæfniskröfur
• Háskólagráða sem nýtist í starfi, sérstaklega á sviði viðskipta-
eða verkfræði
• Þekking og reynsla af fjármálamarkaði
• Þekking og reynsla af mati á rekstraráhættu
• Rík greiningarhæfni, nákvæmni og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Góð færni í ritun og framsetningu texta á íslensku og ensku
• Góð hæfni í samskiptum og teymisvinnu sem og í miðlun
upplýsinga
Skólameistari
Menntaskólans í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi er opinber framhaldsskóli sem var stofnaður árið 1973.
Skólinn starfar samkvæmt áfangakerfi og býður upp á nám til stúdentsprófs á bóknámsbrautum auk
þess að vera miðstöð kennslu í hótel- og matvælagreinum og starfrækja ferðamála- og leiðsögunám
í kvöldskóla. Starfsmenn skólans eru að jafnaði tæplega 100 og fjöldi nemenda í dagskóla eru um
900.
Starfssvið
Skólameistari veitir skólanum forstöðu. Hann stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir
þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á
hverjum tíma. Hann ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt og hefur frumkvæði að
gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans. Skólameistari gegnir mikilvægu hlutverki í mótun
skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og mikilvægt að umsækjendur hafi
skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar.
Hæfni- og menntunarkröfur:
• Skólameistari skal hafa starfsheitið framhaldsskólakennari og viðbótarmenntun í stjórnun eða
kennslureynslu á framhaldsskólastigi.
• Umfangsmikil stjórnunarreynsla, leiðtoga- og samskiptahæfni.
• Reynslu af stefnumótunarvinnu, hæfileiki til nýsköpunar og að stýra breytingum.
• Þekking og reynsla af stjórnsýslu er mikilvæg.
• Þekking af fjármálum og rekstri er nauðsynleg.
Umsóknir
Umsóknir með greinargerð umsækjenda um framtíðarsýn fyrir Menntaskólann í Kópavogi út frá
faglegum og rekstrarlegum áherslum í skólastarfi með upplýsingum um núverandi starfsheiti um-
sækjenda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist mennta- og
menningarmálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík eða á netfangið mrn@mrn.is, fyrir dagslok
þriðjudaginn 30. apríl 2019.
Við ráðningar í störf hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðu-
neytisins.
Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum
umsóknarfresti og verða umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar
ekki teknar til greina. Nánari upplýsingar um starfið veitir
Anna María Urbancic rekstrarstjóri í mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins.
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2019.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti, 9. mars 2019.
Vegagerðin auglýsir eftir byggingarverkfræðingi eða
byggingartæknifræðingi á hönnunardeild. Um er að
ræða fullt starf, við hönnun umferðarmannvirkja.
Á hönnunardeild vinna um 18 manns við ýmis hönnunar-,
þróunar- og rannsóknarverkefni, sem tengjast umferðar-
mannvirkjum.
Við erum að leita eftir verk- eða tæknifræðingi sem hefur
áhuga á að takast á við krefjandi verkefni á sínu fagsviði
frá frumstigum hönnunar til framkvæmda. Fjölmörg verk-
efni eru framundan varðandi uppbyggingu vegakerfisins
á Íslandi. Um er að ræða spennandi starf við hönnun
vega í krefjandi umhverfi, um fjallvegi, firði og í þéttbýli.
Starfssvið
Vinna við hönnun vega, umsjón og þáttaka í þróun
veghönnunarkerfa Vegagerðarinnar , verkefnastjórn
hönnunar, umferðaröryggisrýni auk þátttöku í rann-
sóknarverkefnum tengdum umferðarmannvirkjum.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Byggingarverkfræðingur, M.Sc. eða byggingartækni-
fræðingur B.Sc
• Þekking og reynsla í notkun teikni- og hönnunarforrita
• Þekking og reynsla í notkun Microstation og Inroads
er kostur
• Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
• Góð hæfni í mannlegum samskiptum
• Hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í teymisvinnu
• Frumkvæði og faglegur metnaður
• Skipulögð og öguð vinnubrögð í starfi
• Góð íslenskukunnátta
• Kunnátta í ensku og einhverju norðurlandamáli
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður sem
hentar jafnt báðum kynjum.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi ríkisins og
viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 1. april 2019.
Umsóknir berist á netfangið starf@vegagerdin.is.
Í umsókninni komi fram persónulegar upplýsingar ásamt
upplýsingum um þá menntun og hæfni sem gerð eru til
starfsins, þar með talið menntunar- og starfsferilsskrá.
Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því
að umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðmundur Valur
Guðmundsson, forstöðumaður hönnunardeildar
(gudmundur.v.gudmundsson@vegagerdin.is)
í síma 522 1000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um
ráðningu hefur verið tekin.
VEGHÖNNUN
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
A
1
-6
B
C
C
2
2
A
1
-6
A
9
0
2
2
A
1
-6
9
5
4
2
2
A
1
-6
8
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K