Fréttablaðið - 23.03.2019, Blaðsíða 84
Smáréttir eru vin -
sælir á fermingar-
borðið og henta jafnt
með súpu eða sem hluti
af hlaðborði. Hér eru
nokkrar góðar hug-
myndir frá Jamie Oliver
meistarakokki.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Fáir komast með tærnar þar sem Jamie Oliver hefur hæl-ana þegar kemur að góðum
uppskriftum. Þessar uppskriftir
að smáréttum eru allar frá honum
komnar og eru sannarlega vel þess
virði að prófa. Dásamlegir litlir
bitar sem gera veisluborðið svo
miklu skemmtilegra.
Fylltar ólífur
500 g passata
(tilbúin sósa úr tómötum)
1 krukka svartar ólífur með
steinum
65 g fetaostur
1 msk. kapers
40 g hveiti
2 egg
200 g brauðrasp
1 lítri grænmetisolía
Smávegis ferskt óreganó
Smávegis chilli-flögur
Jómfrúarolía
Setjið passata-sósuna í skál. Þerrið
ólífurnar, takið steinana úr þeim
og setjið í sósuna. Athugið að þær
séu allar þaktar í sósunni. Látið
standa í eina klukkustund.
Dásamlegir smábitar
Smáréttaveislur eru alltaf vinsælar. Fjölbreytnin fer síðan eftir gestgjöfum. Þessir réttir passa vel
á smáréttaborð í fermingum eða öðrum veislum. Einfaldar uppskriftir sem auðvelt er að gera.
Fylltar ólífur eru mikið hnossgæti.
Ostastangir sóma sér vel á veisluborðinu, til dæmis með ídýfu.
Af hverju ekki að dýfa
sykurpúðum í súkkulaði?
Setjið fetaost og kapers í litla
matvinnsluvél og maukið. Takið
ólífurnar úr sósunni en geymið
hana. Takið smávegis af feta og
kapersblöndunni og fyllið ólíf-
urnar hverja af annarri. Setjið upp
þrjár skálar, eina með hveiti, aðra
með hrærðum eggjum og þá þriðju
með brauðraspi.
Látið grænmetisolíu í djúpa pönnu
og hitið upp. Nú þarf að vinna
hratt og vel. Fylltu ólífurnar eru
settar í hveiti, síðan egg og loks eru
þær þaktar með raspi. Setjið þær
síðan varlega út í olíuna og lækkið
hitann ef hún er of heit. Steikið
þar til ólífan fær fallegan lit. Þetta
tekur stutta stund.
Afgangurinn af sósunni er settur í
pott ásamt óreganó og chilli. Hitið
upp og látið malla í 4-5 mínútur.
Bætið í lokin smávegis jómfrúar-
olíu saman við og berið fram með
ólífunum.
Sveskjur í beikoni
Þennan rétt kallar Jamie Oliver
„Devils on horseback“. Einfaldur
en mjög góður réttur.
24 steinlausar góðar sveskjur
24 heilar möndlur
Jómfrúarolía
Salt
12 lengjur beikon
Setjið möndlurnar í skál með smá-
vegis olíu og salti. Setjið þær inn í
sveskjurnar. Skiptið beikonsneið-
unum til helminga og vefjið sveskj-
unum í það. Raðið á bökunarplötu,
breiðið yfir og geymið í ísskáp í
smástund. Hitið ofninn í 190°C.
Bakið sveskjurnar í 15-20 mínútur
eða þangað til beikonið er orðið
stökkt. Berið strax fram.
Einfaldar ostastangir
Þessar eru mjög góðar til að stinga í
ídýfu eða borða með áleggi.
150 g smjör
225 g hveiti
75 g parmesan ostur
½ tsk. sinnepsduft
½ tsk. paprikuduft, plús auka til
að dreifa yfir
Hitið ofninn í 200°C.
Klæðið tvær bökunarplötur með
bökunarpappír. Skerið smjörið í
litla bita og setjið í skál. Bætið því
næst hveiti við og hrærið vel saman
þangað til þetta lítur úr eins og
rasp. Þá er rifnum parm esan osti
(60 g) bætt saman við ásamt sinn-
eps- og paprikudufti. Bætið einni
1-2 msk. af köldu vatni til að halda
deiginu saman.
Fletjið deigið út þannig að það verði
um 1 cm á þykkt. Skerið niður í 1
cm breiðar lengjur og raðið á bök-
unarplötuna. Dreifið afganginum
af ostinum yfir ásamt smávegis
papriku. Bakið í 15-20 mínútur eða
þar til stangirnar fá fallegan lit.
Sveskjur í beikoni. Fólk er
kannski vanara að borða
beikonvafðar döðlur en
sveskjur eru ekki síðri.
Súkkulaðihúðaðir
sykurpúðar
Þetta er skemmtilegur réttur á
fermingarborðið. Ef um eftirrétta
borð er að ræða er upplagt að
raða súkkulaðihjúpuðum sykurp
úðum ásamt jarðarberjum sem
einnig hafa verið hjúpuð súkku
laði. Hægt að skreyta jarðarberin
með hvítu súkkulaði.
Marshmallows
400 g dökkt súkkulaði
8 karamellur
sjávarsalt
Bræðið súkkulaði varlega yfir
vatnsbaði, gætið að því að ekki sé
um of mikinn hita að ræða. Takið
skálina af hitanum. Setjið bök-
unar pappír á plötu. Setjið sykur-
púða ofan í súkkulaði og hjúpið þá.
Notið tannstöngla til að dýfa þeim
ofan í. Merjið karamellurnar smátt
og látið örlítið sjávarsalt saman
við. Skreytið sykurpúðana með
karamellukornunum.
12 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . M A R S 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RFERMINGARGJAFIR
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Fermingargjöf
bGem
Þráðlaus
heyrnatól
Verð 15.995 kr.
aGroove
Þráðlaus
hátalari
Verð 9.995 kr.
Gæða raftæki, dönsk hönnun
sem gaman er að nota
YRSA
Reykjavík
Sjálfvinda/
automatic
herraúr
Fermingarúrin
fást í ERNU
ERNA Skipholti
GULL- OG SILFURSMIÐJAN ERNA
Skipholti 3 | Sími 552 0775 | erna.is
ÖSP
UNISEX
Vandað armbandsúr
fyrir konur og karla
á öll um aldri
ÖSP UV400
sólgleraugu
fylgja frítt með
14.900
37.500
22.900
Watch
of the
year
2
3
-0
3
-2
0
1
9
0
4
:4
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
A
1
-3
A
6
C
2
2
A
1
-3
9
3
0
2
2
A
1
-3
7
F
4
2
2
A
1
-3
6
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
2
2
_
3
_
2
0
1
9
C
M
Y
K