Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2017, Síða 12

Fréttabréf Ættfræðifélagsins - 01.04.2017, Síða 12
12http://www.ætt.is Fréttabréf Ættfræðifélagsins í apríl 2017 aett@aett.is Margir kannast við söguna um steinbogann sem sagt er að hafi verið yfir Brúará í Brekkuskógi, ána sem sprettur upp á Rótarsandi og renn- ur niður í skóginn um Brúarárskörðin og það- an niður í Grímsnesið, þar sem hún sameinast Hvítá vestan undir Vörðufellinu. Þar renna þær samhliða nokkra kílómetra, þessar ólíku syst- ur, gráa og grugguga jökuláin Hvítá og silfur- tæra bergvatnsáin Brúará, sem er önnur vatns- mesta lindá landsins. Það er ekki fyrr en undir Hestfjalli sem þær loksins sameinast og þá er reyndar ekki svo langt í Sogið, vatnsmestu lindá landsins, sem rennur í fang þeirra systranna undir Ingólfsfjalli. Það er trauðla tilviljun að Brúará skuli bera þetta nafn, enda lifir sú sögn að náttúrulegur steinbogi eða brú hafi legið yfir ána í Brekkuskógi. Brú þessi mun hafa auðveld- að fólki leið yfir ána, en hún var eins og flestar stórár landsins mikill farartálmi, straumhörð og stórgrýtt, enda hvergi væð þegar neðar dregur. Aðeins er getið um eitt nothæft vað á ánni og er það við Syðri-Reyki í Biskupstungum. Þar sem hún líður fram á landamærum Haga í Grímsnesi, rétt áður en hún mætir Hvítá, er vatnsmagnið nær 70 rúmmetrar á sekúndu. Guðmundur Kjartansson jarðfræðingur fann annan steinboga í ánni á svipuðum slóðum. Afar ein- kennileg gjá, sem ekki er vitað hvernig hefur mynd- ast, er í ánni á þessum slóðum. Að henni liggja víða sléttar klappir, beggja vegna, þar sem áin er grunn og vel væð. Meiri hluti vatnsins streymir víða um þessa gjá og yfir hana mun steinboginn hafa legið. Í Biskupasögum sínum segir Jón Halldórsson, prófastur í Hítardal, sem fæddur var 1665 og lést 1736, frá steinboga þessum, en hann mun hafa verið rétt ofan við Brúarfossinn. Jón, sem oft er kallaður „eldri“, er af mörgum talinn einn merkasti fræðimaður sautj- ándu aldarinnar. Hann var stúdent frá Skálholtsskóla 1683 og var síðan næstu þrjú árin hjá föðurbróður sín- um, Ólafi Jónssyni, sem var skólameistari í Skálholti, og mun þá hafa byrjað ritun annála undir handleiðslu hans. Jón var einnig heyrari í Skálholti 1688-1692 og síðan rektor við Skálholtsskóla 1708-1710. Hann var því öllum hnútum kunnugur þar á staðnum og í nær- liggjandi sveitum, þótt hann byggi síðar í Hítardal í Mýrasýslu og sé löngum við þann stað kenndur. Guðfinna Ragnarsdóttir: Steinboginn og hústrú Helga Í byrjun 17. aldar voru mikil harðindi á landinu, fátæktin og allsleysið var yfirþyrmandi og margir hröktust af jörðum sínum. Mannfellir var mikill. Allt samfélagið var úr skorðum og umkomulausir og upp- flosnaðir flæktust um landið. Einu staðirnir þar sem einhverja björg var að fá voru, auk einstaka stórbýla, biskupssetrin. Varð af þessum sökum mikil ásókn í þá björg sem veitt var í Skálholti. Þar var þá bisk- up Oddur Einarsson, sonur séra Einars Sigurðssonar prests og skálds í Eydölum, en kona hans var Helga Jónsdóttir. Ýmislegt bendir til þess að Oddur hafi ver- ið gjafmildur við þá sem minna máttu sín, en Helga kona hans hafi haldið fast um búrlyklana. Jón Halldórsson skrifar: Á þeim stóru harðindaár- um til lands og sjávar hér um Anno 1602, var af fátæku umferðar og uppflosnuðu fólki úr öllum áttum mik- il aðsókn að Skálholtsstað. En bryti staðarins meinti henni mundi réna, ef sú sjálfgerða brú eður steinbogi á Brúará, hvar af hún hafði að nafn, væri afbrotinn; fór því til og braut hana með mannafla með vitund ef ei með ráði biskupshústrúr, Helgu Jónsdóttur, en án vitundar herra Odds, því það tiltæki féll honum stór- illa, þá hann fékk það að vita, ávítandi brytann mjög, „og kvað hvorki sér né honum nokkurt happ þar af standa mundi.“ Skömmu síðar drukknaði þessi bryti í Brúará. Bending þótti og nokkur á hinum yngri börn- unum biskups; Eiríkur „hafði mikinn vitsmunabrest“ en „Margrét var kvenna fríðust á andlitið öðrum meg- in, önnur kinn hennar fagurrjóð og blómleg, en hin önnur hvít og visin.“ Margir hafa véfengt söguna um steinbogann og brytann, en frásögn Jóns Halldórssonar er afar trúverð- ug enda miklar líkur á að hann hafi heyrt söguna um ódæði Helgu biskupsfrúar og brytans á Skálholtsárum sínum, enda voru innan við áttatíu ár frá því stein- boginn var brotinn og þar til Jón hefur sína annálarit- un. Jón segir einnig frá því að „Laungu síðar hér um Anno 1680 tóku sig saman bændur í Biskupstungum: Jón Jónsson smiður í Miklaholti og aðrir fyrirmenn sveitarinnar, veltu stórum björgum ofan í árþreingslin til að koma upp aptur brúnni á ána og hlaða hana upp; en þá vatnavextir verða miklir á vetrum brjóta þau opt af þetta forverk og þarf aptur við umbótar hvað ept- ir annað.“ Það er því augljóst að þarna var áður brú, enda er Jón Halldórsson samtímamaður þessara fram- kvæmda. Þau biskupshjónin, Oddur og Helga, giftust árið 1591 og eignuðust fimm börn. Oddur lést 1631,

x

Fréttabréf Ættfræðifélagsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Ættfræðifélagsins
https://timarit.is/publication/885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.