Fréttablaðið - 10.05.2019, Síða 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Andstaðan
nú um
stundir,
drifin áfram
af fyrrver-
andi áhrifa-
mönnum
sem eiga
erfitt með
að eftirláta
sviðið nýrri
kynslóð,
vekur því
um margt
furðu.
Því legg ég
áherslu á að
mannslíf og
heilsa séu
ávallt höfð í
öndvegi og
öryggi metið
framar í
forgangs-
röðun en
ferðatími.
www.artasan.is
Fæst í næsta
apóteki og helstu
stórmörkuðum
Mundir þú eftir að
bursta og skola í
morgun?
Tannlæknar mæla með GUM tannvörum
GUM Orginal 2x10 copy.pdf 1 26/01/2018 12:51
Þótt halda mætti annað, miðað við allan æsing-inn, þá er ekki mikil ástæða til að fara mörgum orðum um innihald þriðja orkupakkans. Fátt, ef nokkuð, felur þar í sér nein nýmæli fyrir Ísland. Verið er að skerpa á því regluverki sem
nú þegar gildir – og var fyrst innleitt í íslenskan rétt fyrir
meira en fimmtán árum án mikillar mótstöðu – og snýst
í grunninn um aukið sjálfstæði eftirlitsstofnana, sem í
okkar tilfelli er Orkustofnun, og meiri neytendavernd.
Með öðrum orðum er tilgangurinn aukin og virkari sam-
keppni á orkumarkaði. Hagsmunirnir af slíku regluverki
fyrir almenning og fyrirtæki eru ótvíræðir. Innleiðing
þriðja orkupakkans á sér langan aðdraganda, sem margar
ríkisstjórnir hafa komið að á síðustu árum, og Ísland hefur
margsinnis haft tækifæri til þess að hafa áhrif á ákvörð-
unarferlið. Engin ríkisstjórn hefur hins vegar á neinu stigi
málsins talið ástæðu til að beita sér gegn orkupakkanum.
Andstaðan nú um stundir, drifin áfram af fyrrverandi
áhrifamönnum í íslensku samfélagi sem eiga erfitt með að
eftirláta sviðið nýrri kynslóð, vekur því um margt furðu.
Mörgu er haldið fram í umræðunni sem stenst enga
skoðun. Dapurlegast er að sjá þá, sem vita flestir hverjir
betur, taka þátt í að afvegaleiða almenning með röngum
upplýsingum. Um hvað fjallar orkupakkinn ekki? Hann
snýst á engan hátt um einkavæðingu eða frekari „mark-
aðsvæðingu“ raforkugeirans en nú er. Því síður er Ísland
að afsala sér forræði á því hvernig við nýtum orkuauðlind-
ir landsins og ákvörðun um mögulega lagningu sæstrengs,
sem mun krefjast samþykkis Alþingis, verður alfarið í
okkar höndum. Um allt þetta er ástæðulaust að deila.
Þeir sem tala gegn þriðja orkupakkanum hafa látið
að því liggja að málið eigi margt sameiginlegt með
baráttunni gegn Icesave. Þótt erfitt sé að átta sig á þeim
samanburði þá grundvallast sú afstaða meðal annars á því
sjónarmiði að gera eigi það tortryggilegt að nú, rétt eins og
þá, sé um það breið samstaða á meðal stjórnmálamanna
og atvinnulífsins að samþykkja orkupakkann. Höfum eitt
á hreinu. Krafan um það að Íslendingar ættu að gangast
undir löglausar kröfur Breta og Hollendinga, sem hefði
hamlað endurreisn efnahagslífsins og gert afnám hafta
erfiðara en ella, varðaði gríðarlega fjárhagslega hagsmuni
Íslands. Sem betur fer tókst að afstýra þeim áformum.
Engir slíkir hagsmunir eru undir í því máli sem varðar
þriðja orkupakkann. Hér er aðeins verið að fiska í grugg-
ugu vatni þar sem markmiðið virðist vera – í einhverjum
óskilgreindum pólitískum tilgangi – að grafa undan EES-
samstarfinu að óþörfu. Því má ekki láta ósvarað.
Ísland er í einstakri stöðu. Á síðustu árum hefur okkur
tekist, undir forystu ólíkra ríkisstjórna, að leysa úr
fjölmörgum flóknum en misstórum úrlausnarefnum á
farsælan hátt, nú síðast með því að tryggja stöðugleika
á vinnumarkaði til næstu fjögurra ára með skynsam-
legum kjarasamningum. Verkefnið sem við stöndum
núna frammi fyrir, rétt eins og Sigurður Hannesson,
framkvæmdastjóri SI, og Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri SA, sögðu í viðtali við Markaðinn í
vikunni er að byggja á þeim grunni til að sækja fram og
bæta lífskjör þjóðarinnar. Hvernig til tekst ræðst af sam-
keppnishæfni Íslands. Ríkisstjórnin á því að leiða þriðja
orkupakkann í lög og snúa sér að öðrum og mikilvægari
málum sem eiga að vera í forgrunni. Næsta mál, takk.
Næsta mál, takk
Það er sárt að hugsa til allra þeirra sem eiga um sárt að binda vegna alvarlegra slysa í umferðinni. Það er því það minnsta sem við getum gert að nýta þær upp-
lýsingar sem við eigum um slys til að bæta öryggi okkar í
umferðinni og koma í veg fyrir slys.
Í gær stóð ráðuneytið fyrir morgunverðarfundi um
umferðaröryggi með yfirskriftinni Víti til varnaðar. Þar
var meðal annars kynnt nýtt slysakort Samgöngustofu
þar sem hægt er að sjá yfirlit yfir þau slys sem verða á
vegum landsins. Mikilvægt er að nýta þá tölfræði sem til
er svo hægt sé að auka forvarnir og bæta vegakerfið og
stuðla þannig að jákvæðri þróun í umferðaröryggi og
fækkun slysa.
Gríðarlegar breytingar hafa orðið á notkun vega-
kerfisins á örfáum árum. Á aðeins fimm árum hefur
umferðin á þjóðvegunum aukist um ríf lega 40%. Mest
hefur hún aukist á Suðurlandsvegi austur að Jökulsár-
lóni þar sem hún hefur nánast tvöfaldast, langmest að
vetrarlagi.
Það eru miklir hagsmunir í húfi. Síðustu árin hafa að
meðaltali hátt í 200 manns slasast alvarlega eða látið lífið
árlega sem ekki er ásættanlegt. Umferðarslys og óhöpp
eru talin kosta yfir 50 milljarða á ári, og er þá ekki tal-
inn sá sársauki og sorg sem slysunum fylgja. Því legg ég
áherslu á að mannslíf og heilsa séu ávallt höfð í öndvegi
og öryggi metið framar í forgangsröðun en ferðatími.
Á umferðarþyngstu þjóðvegum þarf að halda áfram að
aðskilja akstursstefnur en sú aðgerð hefur skilað góðum
árangri og má nefna að umferðarslysum á Reykjanes-
brautinni hefur fækkað um 40% frá því að akstursstefnur
voru aðskildar. Þar vitum við nú þegar að slíkar upplýs-
ingar nýtast til að auka umferðaröryggi.
Síaukinn umferðarþungi kallar á nýframkvæmdir,
meira viðhald og auknar öryggisaðgerðir. Uppbygg-
ing samgöngumannvirkja er stór þáttur í því að bæta
umferðaröryggi í ört vaxandi umferð. Auknu fjármagni
hefur verið veitt til ýmissa framkvæmda til að f lýta
vegabótum og aukinn kraftur verður settur í yfirlagnir
á vegum, malbik, viðhald malarvega og styrkingar. Allar
slíkar framkvæmdir auka umferðaröryggi.
En betur má ef duga skal.
Umferðaröryggi í forgangi
Sigurður Ingi
Jóhannsson
samgöngu- og
sveitarstjórn-
arráðherra
Andstaðan fjarverandi
Utanríkismálanefnd Alþingis
fundaði í gær um þriðja orku-
pakkann. Fulltrúar Lands-
virkjunar og Landsnets, Frosti
Sigurjónsson og fleiri góðir gestir
komu fyrir nefndina og sögðu sína
skoðun á þessu máli sem óvænt
hefur orðið nokkuð umdeilt.
Gunnar Bragi Sveinsson, utan-
ríkisráðherra þegar umræða um
pakkann hófst og nú einn harð-
asti andstæðingur hans, mætti
ekki fyrir nefndina. Það gerði
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, varamaður Gunnars Braga í
nefndinni, ekki heldur. Þeir voru
sömuleiðis fjarverandi þegar
fyrri umræða um málið fór fram í
þingsal. Þessi fjarvera er nokkuð
merkileg í ljósi þess hversu mjög
svo andsnúnir þeir eru orkupakk-
anum. Sigmundur Davíð hefur til
að mynda lýst „því afdráttarlaust
yfir að það væri stórkostlegt glap-
ræði að samþykkja O3“.
Tómur Laugavegur
Vigdís Hauksdóttir, samflokks-
maður þeirra Gunnars Braga og
Sigmundar Davíðs og borgarfull-
trúi, deildi mynd af „galtómum“
Laugavegi og Skólavörðustíg á
samfélagsmiðlum í gær og gagn-
rýndi þannig að vegirnir skyldu
vera göngugötur. Hún sagði
myndirnar teknar klukkan 3 á
miðvikudag. Það er ekki skrítið
að göturnar séu ekki troðnar af
fólki, enda ekki beint háannatími
hjá verslunum og sjónarhornið
á myndunum skert í þokkabót.
thorgnyr@frettabladid.is
1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
8
-4
5
5
C
2
2
F
8
-4
4
2
0
2
2
F
8
-4
2
E
4
2
2
F
8
-4
1
A
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K