Fréttablaðið - 10.05.2019, Side 20
Við skilgreinum okkur fyrst og fremst sem landsbyggðastöð og dagskráin ber þess
greinileg merki, kastljósinu er sér
staklega beint að málefnum lands
byggðanna og íbúum þeirra auk
þess sem N4 er eina sjónvarpsstöð
landsins með höfuðstöðvar sínar
fyrir utan höfuðborgarsvæðið
og sker sig þess vegna úr öðrum
sjónvarpsstöðvum. Við finnum
greinilega fyrir því að fólk um allt
land vill að landsbyggðirnar fái
pláss í fjölmiðlum. Okkar hlutverk
er því á margan hátt mikilvægt,
enda hefur mikilvægi fjölmiðl
unar vaxið samfara örum tækni
breytingum. Við reynum eftir
bestu getu að spegla samfélagið,“
segir María Björk Ingvadóttir,
framkvæmdastjóri sjónvarps
stöðvarinnar N4.
Þakklátir áhorfendur
„Við finnum greinilega fyrir þakk
læti frá áhorfendum og velvildin í
okkar garð er mikil, enda vill fólk
fá efni frá landsbyggðunum þar
sem sagt er frá fólki á öllum aldri
í leik og starfi. Ég segi hiklaust að
N4 skipti máli i íslenskri fjöl
miðlun, stöðin geri það að verkum
að landsbyggðirnar séu sýnilegri
í augum allra landsmanna. Á
síðasta ári frumsýndum við um
350 þætti af íslensku efni, sem tók
samtals um 200 klukkustundir
að sýna, þannig að framleiðslan
á þessari litlu en mikilvægu sjón
varpsstöð er ansi mikil, enda valið
fólk í hverju rúmi. Við höfum tekið
mikilvægt skref í þá átt að gefa tón
listarfólki úti á landi möguleika til
að koma tónlist sinni á framfæri í
sjónvarpi hjá okkur. Við erum með
eina sjónvarpsstúdíóið á lands
byggðunum og mikilvægt að nota
það. Eins og gefur að skilja getum
við ekki orðið við öllum beiðnum
um umfjöllun, þannig er það hjá
öllum fjölmiðlum, en við reynum
að gera okkar besta í þeim efnum.
Ekki má heldur gleyma því að við
tökum upp og framleiðum hina
stórmerkilegu Fiskidagstónleika
og sýnum á N4.
Sýnileikinn skiptir máli
„Við frumsýnum venjulega
klukkutíma af íslensku efni
á hverju virku kvöldi og „Að“
þættirnir eru þar í aðalhlutverki.
Þannig fjallar „Að norðan“ sérstak
lega um Norðurland, „Að austan“
er tileinkaður Austurlandi og
„Að vestan“ um Vesturland. Við
vonumst svo til þess að geta bætt
Vestfjörðum í hópinn og fá „Að
sunnan“ aftur á dagskrá. Helstu
kostendur þessara þátta eru flest
sveitarfélögin í viðkomandi lands
hlutum, auk þess sem fyrirtæki
koma að kostun þáttanna. Flest
sveitarfélögin gera sér grein fyrir
mikilvægi þess að vera sýnileg
og þessi samvinna hefur gengið
afskaplega vel fyrir sig. Síðan erum
við með sérhæfða þætti, þar sem
fjallað er um einstaka málaflokka,
svo sem íþróttir, atvinnulífið,
sveitarstjórnarmál, ungt fólk,
mannlíf og svo framvegis. Við á
N4 höfum farið þá leið að útvista
framleiðslunni heim í hérað sem
mest. Þannig stuðlum við að því að
byggja upp þekkingu og reynslu
í fjölmiðlum á hverjum stað. Sem
dæmi hefur heimafólk á Austur
landi framleitt fyrir okkur „Að
austan“ og sömu sögu er að segja
um Vesturlandið, „Að vestan“.
Þessi stefna hefur gefist vel og við
viljum mjög gjarnan halda áfram á
þessari braut, þegar þess er nokkur
kostur. Þess má einnig geta að N4
hefur átt í farsælu samstarfi við
KNR, Grænlenska ríkissjónvarpið,
frá árinu 2016 við framleiðslu á
þáttunum Nágrannar á norður
slóðum.“
Áhorfsmet
„Það er nú bara þannig að áhorf
á línulega dagskrá ljósvakamiðla
er á hröðu undanhaldi,“ segir
María Björk þegar hún er spurð
um áhorfið. „Fólk vill geta ráðið
því hvar og hvenær það horfir,
hlustar eða les áhugaverð viðtöl
eða þætti. Þess vegna nýtum við
okkur samfélagsmiðlana óspart
til þess að ná til sem flestra, fyrir
utan hefðbundnar útsendingar
hjá okkur sem ná til rúmlega 99%
lögbýla landsins. Það eru ekki bara
Akureyringar sem horfa á okkur,
langt í frá.
Þótt árið sé ekki hálfnað erum
við búin að toppa allar áhorfs
tölur fyrri ára. Fyrstu fjóra mánuði
ársins höfðu myndskeið frá
okkur verið sótt meira en millj
ón sinnum á Facebook. Allt árið
í fyrra var áhorfið 730 þúsund,
þannig að við erum núna búin að
slá út tölur síðasta árs og vel það.
Facebooksíðan okkar er mjög
stór, 22.500 fylgjendur og við
frumsýnum okkar efni samtímis í
línulegri dagskrá og á Facebook. Í
hverjum mánuði eru þættir okkar
sóttir nærri 40 þúsund sinnum á
Tímaflakki Símans, þannig að það
er greinilegt að fólk kann að meta
það sem við erum að gera og fyrir
það erum við afskaplega þakklát,“
bætir hún við.
Jafnt kynjahlutfall
„Við höfum fylgst náið með kynja
hlutfallinu í mörg ár og alltaf hefur
hlutfall viðmælenda verið nokkuð
jafnt og sömu sögu er að segja um
stjórnendur þátta. Fyrstu árin
sem við skráðum þetta allt saman
samviskulega niður, þurfti af og til
að grípa til ráðstafana í lok ársins
til þess að rétta af kynjahalla.
Sú tíð er löngu liðin enda þykir
umsjónarfólki eðlilegt og sjálfsagt
að kalla til bæði kynin. Auðvitað
hafa fjölmiðlar skyldum að gegna
í þessum efnum. Fjölmiðlar sem
taka sitt hlutverk alvarlega gæta
þess að kynjahlutföllin séu í jafn
vægi.“
Ekkert er ókeypis
„Rekstur fjölmiðla hefur verið
erfiður, nema kannski Ríkis
útvarpsins. Við bindum vonir við
að frumvarp menntamálaráð
herra um að styrkja einkarekna
fjölmiðla muni skipta okkur miklu
máli, jafnvel þótt stuðningur við
Ríkisútvarpið verði áfram mikill
og ríkulegur. Það hefur hins vegar
ekki komið fram enn þá þannig
að við vitum ekki hverju það mun
breyta. Þótt fjölmiðill sé ókeypis
er staðreyndin sú að ekkert er
ókeypis. Það er alltaf nefnilega
einhver sem borgar. Við á N4
erum svo heppin að eigendurnir
eru mjög skilningsríkir og standa
þétt við bakið á rekstrinum.
Stuðningur ríkisins mun skipta
máli, en stuðningur atvinnulífsins
og almennings mun eftir sem áður
skipta sköpum í rekstri fjölmiðla,“
segir María Björk Ingvadóttir,
framkvæmdastjóri N4.
Útgefandi: Torg ehf Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumaður auglýsinga: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Með allra vin-
sælasta efni N4 á
Facebook-síðunni
eru tónlistar-
myndböndin úr
Föstudagsþætt-
inum. MYND/RAKEL
HINRIKSDÓTTIR
Frá Fiskidags-
tónleikunum
2018. Á hverju
ári framleiðir
N4 og sýnir
Fiskidagstón-
leikana á
Dalvík. MYND/
BJARNI EIRÍKS
Karl Eskil Pálsson og María Björk Ingvadóttir við tökur á Föstudagsþætt-
inum, sem er við einstök tilefni tekinn utanhúss. Hér eru þau á LÝSU, Rokk-
hátíð samtalsins í HOFI á Akureyri. MYND/RAKEL HINRIKSDÓTTIR
Framhald af forsíðu ➛
Innslög, þættir og
tónlistaratriði hafa
verið sótt meira en
milljón sinnum frá
áramótum á Facebókar-
síðu N4 og erum við
búin að toppa allar
áhorfstölur fyrri ára.
Skúli Bragi
dagskrárgerðar-
maður við tökur á
þáttunum „Upp-
skrift að góðum
degi“ þar sem
hann ferðast um
landið með föru-
neyti og stoppar
á áhugaverðum
stöðum. MYND/
RAKEL HINRIKSDÓTTIR
2 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RLANDSBYGGÐIN
1
0
-0
5
-2
0
1
9
0
7
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
F
8
-4
0
6
C
2
2
F
8
-3
F
3
0
2
2
F
8
-3
D
F
4
2
2
F
8
-3
C
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
9
_
5
_
2
0
1
9
C
M
Y
K