Fréttablaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 29
Akranesviti er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á Akranesi og gegnir um leið mikilvægum þætti í menningar- og listalífi bæjarins. Raunar er um tvo vita að ræða, sá eldri og minni var byggður árið 1918 en endurbyggður árin 2012-2013 en sá nýrri og hærri, Akranesviti, var byggður árin 1943- 1944. Útsýnið frá toppi Akranesvita er stórfenglegt allan hringinn, frá Reykjanesskaga, yfir höfuðborgina, Faxaflóann og út að Snæfellsjökli og um leið er hann einstakur staður til tónleikahalds og fyrir myndlistar- sýningar segir Hilmar Sigvaldason, vitavörður og umsjónarmaður Upplýsingamiðstöðvar ferða- manna á Akranesi. „Upphafið að breyttu hlutverki vitans má rekja til haustsins 2011 þegar ég tók myndir af gamla Akranesvitanum, sem þá var í afar slæmu ástandi. Ég sendi myndirnar á Morgunblaðið og bað um umfjöllun um ástand vitans sem leiddi til þess að hann var endurbyggður. Gamli vitinn var svo valinn á einni erlendri vefsíðu þriðji fallegasti viti í heimi. Hvað varðar nýrri vitann, þá var ég formaður ljósmyndafélags á Akranesi og einn félagsmanna fékk lánaðan lykil að vitanum til að taka myndir af toppi hans. Í millitíðinni fæ ég þessa hug- mynd að kanna hvort möguleiki væri að gera vitann aðgengilegan fyrir almenning. Það tókst það vel að nú er hann vinsæll ferðamanna- staður. Þeir sem komu að þessu starfi með mér voru félagar mínir í Ljósmyndafélaginu Vitinn á Akra- nesi auk Akraneskaupstaðar.“ Spennandi dagskrá Hilmar segir svo margt heillandi við vitann. „Staðsetning hans er t.d. frábær og af toppi hans er magnað útsýni. Hljómburður Akranesvita heillar marga tónlistarmenn og hefur honum verið líkt við hljóm- burðinn í Péturskirkju í Róm. Þá er vitinn nýttur undir myndlistar- sýningar. Í dag er vitinn, ásamt Guðlaugu við Langasand, helsta aðdráttarafl ferðamanna á Akra- nesi.“ Dagskrá sumarsins í vitanum verður spennandi en endanleg dagskrá er ekki tilbúin. „Í sumar eru þó tvær myndlistarsýningar. Þá munu nemendur Tónlistarskólans á Akranesi sjá um tónlistarflutning á virkum dögum í allt sumar. Hvað tónleikahald varðar þá er það svona tilfallandi. Ég er að reyna að tengja vitann við nokkrar tón- listarhátíðir, bæði yfir sumar og vetur. Klárlega verða þó tónleikar í vitanum í kringum Írska daga sem eru í byrjun júlí en sú bæjarhátíð verður haldin í tuttugasta skiptið í sumar.“ Vonandi betra aðgengi Akranesviti er ekki eini viti lands- ins sem hefur fengið breytt hlutverk og þar ræður ferðaþjónustan miklu segir Hilmar. „Meðal annars var vit- anum í Dyrhólaey breytt um tíma í gistirými. Það er verið að kanna möguleika á að opna vita í nágrenni nokkurra bæjarfélaga. Væntingar mínar eru þær að sem flestir vitar á Íslandi verði aðgengilegir almenn- ingi, líkt og gert er með Akranes- vitann. Að sjálfsögðu verður að takmarka opnunartímann því að ekki gengur upp að vera með vitana opna allan sólarhringinn án eftirlits. En vitar eru afar heillandi byggingar og staðsetning þeirra líka. Ég myndi til dæmis vilja hafa menningarviðburði við alla vita landsins á Jónsmessu, þá til dæmis í formi tónleika eða upplesturs.“ Hægt er að fylgjast með dagskrá Akranesvita á Facebook-síðunni Akranesviti. Akranesviti í nýju og spennandi hlutverki Akranesviti er einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á Akranesi. MYND/ AKRANESKAUP- STAÐUR Einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna á Akranesi er Akranesviti. Út- sýnið af toppi hans er frábært og vitinn gegnir stóru hlutverki í lista- og menn- ingarlífi bæjarins en þar eru m.a. haldnir tónleikar og myndlistar- sýningar. Velkomin á Akranes Fjölbreytt og frábær skemmtun Menningarleg upplifun Byggðasafnið í Görðum Akranesviti Eitthvað fyrir alla fjölskylduna Sund og fjöruferð Klifur og golf Skemmtileg útivist fyrir alla Guðlaug og sjósund Göngu- og hjólaleiðir Fjallgöngur á Akrafjall XXXXXXXXXXXXXXXXXXXXKYNNINGARBLAÐ 11 F Ö S T U DAG U R 1 0 . M A Í 2 0 1 9 LANDSBYGGÐIN 1 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 F 8 -2 7 B C 2 2 F 8 -2 6 8 0 2 2 F 8 -2 5 4 4 2 2 F 8 -2 4 0 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.