Fréttablaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 10.05.2019, Blaðsíða 38
Ástralski listamaðurinn Kailum Graves kann vel við sig í óbyggðum. Ástralski listamaðurinn Kailum Graves vann vídeó­listaverk með myndum úr vefmyndavélum Vegagerðarinnar. Í verkinu Spukhafte Fernwirk­ ung sýnir Graves íslenska vegi og hvernig þeir breyta um ásýnd á heilu ári. Graves dvaldi á Íslandi í tvö skipti á síðustu tveimur árum, samtals í fjóra mánuði. Hann bjó í listamiðstöðinni Nesi á Skaga­ strönd en það er alþjóðleg miðstöð með gestavinnustofum fyrir starf­ andi listamenn á öllum sviðum lista. „Mig langaði að skoða Ísland á annan hátt og í staðinn fyrir að sýna landið í hefðbundnu ljósi vildi ég kanna skilin milli menningar, tækni og umhverfis. Hringvegur­ inn sem tengir allt landið, fólkið og ferðamannastaðina var því áhugavert umfjöllunarefni,“ segir Graves sem nýtur þess að vera fjarri mannabyggð í vondu veðri. Ein fyrsta vefsíðan sem Graves skoðaði eftir að hann kom til lands­ ins var vegagerdin.is. „Þá uppgötvaði ég vefmynda­ vélarnar og fannst frábært að sjá handahófskenndar myndir af kindum, mögnuðum sólsetrum, ferðamönnum að stara á norður­ ljós, óveðri og trukkum. Ég fór að safna saman myndum úr vélunum á hverjum degi í heilt ár.“ Inntur eftir því hvort hann eigi sér uppáhalds vefmyndavél svarar hann að það sé Súðavíkurhlíð 2. „Línurnar í veginum minna mig á íslenska fánann.“ Nafnið Spukhafte Fernwirk­ ung, sem gæti lauslega útlagst sem „dularfull fjarvirkni“, dregur Graves af orðasamband sem Ein­ stein notaði til að lýsa fyrirbærinu „quantum entanglement“. Það er undarlega dáleiðandi að horfa á myndbandið sem finna má á vefslóðinni kailumgraves.com/ spukhafte­fernwirkung/. Listaverk um vegi Íslands www.fi.is Skráðu þig inn – drífðu þig út FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími 568 2533 | www.fi.is íslenska náttúru Upplifðu Gjafabréf FÍ er ávísun á góða samverustund, útivist, hreyfingu og upplifun í íslenskri náttúru. Gjafabréf FÍ gildir sem inneign í ferðir félagsins, fjalla- og hreyfiverkefni, skálagistingu, félagsaðildar eða til kaupa á miklu úrvali ferðabóka sem fást á skrifstofunni. Hægt er að kaupa gjafabréf FÍ á heimsíðu félagsins www.fi.si og á skrifstofu FÍ Mörkinni 6. Tilvalin gjöf fyrir alla ferðafélaga og útivistarfólk 20 KYNNINGARBLAÐ 1 0 . M A Í 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RLANDSBYGGÐIN Hollenska flugfélagið Trans­avia hefur hafið beina sölu á flugsætum til Akureyrar frá Rotterdam, í ferðir sem farnar verða í sumar og næsta vetur. Þetta er í fyrsta sinn sem hollenskt flugfélag selur sjálft sæti í ferðir til Akureyrar, en flugið er tilkomið vegna ferða á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel sem býður upp á skipulögð ferðalög um Ísland frá Akureyri. Transavia selur hins vegar aðeins sætin, óháð Voigt Travel, og má því segja að í fyrsta sinn sé áætlunarflug í boði milli Akureyrar og Hollands. Ljóst er að þetta skapar gríðarleg tækifæri fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi, en einnig fyrir aðrar atvinnugreinar. Norðlendingar hafa nú enn fleiri tækifæri til að kaupa stök flugsæti til Rotterdam, en þessu til viðbótar selur Ferða­ skrifstofa Akureyrar stök sæti, sem og pakkaferðir, til Rotterdam. Vert er að minnast á að frá Rotterdam er svo hægt að fljúga áfram til annarra áfangastaða, en þeir skipta tugum. Markaðsstofa Norðurlands, sem skipa eftir nýafstaðna kosningu Baldvin Esra Einarsson frá Saga Travel sem jafnframt er formaður, Viggó Jónsson frá Drangeyjar­ ferðum, Sigurður Líndal Þórisson frá Selasetri Íslands, Arngrímur Arnarson frá Norðursiglingu og Edda Hrund Guðmundsdóttir frá Hótel Laxá, segist í tilkynn­ ingu fagna þessum stóra áfanga, sem er árangur af áralöngu starfi Flugklasans AIR 66N sem Markaðs­ stofan heldur utan um. Það sé mjög ánægjulegt að geta tilkynnt um aukna umferð um Akureyrarflug­ völl og meiri sýnileika áfangastað­ arins Norðurlands og auka þannig framboð á flugsætum til Íslands, segir þar enn fremur. Beint flug frá Rotterdam til Akureyrar 1 0 -0 5 -2 0 1 9 0 7 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 F 8 -3 B 7 C 2 2 F 8 -3 A 4 0 2 2 F 8 -3 9 0 4 2 2 F 8 -3 7 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 5 6 s _ 9 _ 5 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.